Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.11.2014, Side 20

Fréttatíminn - 14.11.2014, Side 20
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk lausadreifingar um land allt. Dreifing með Fréttatímanum á bæklingum og fylgiblöðum er hagkvæmur kostur. Ert þú að huga að dreifingu? „Líknardauði hefur þótt vera eitthvað sem til- heyri almættinu en munurinn á fóstureyðingu og líknardauða er sá að fóstrin hafa ekkert um málið að segja á meðan líknar- dauði er ekki framkvæmdur nema með sam- þykki sjúklings.“ Lýður Árnason. Í síðustu viku endaði 29 ára gömul kona, Brittany Mayn- ard frá Bandaríkjunum, líf sitt eftir að hafa greinst með ólæknandi heilaæxli. Hún ákvað „að deyja með reisn“, í stað þess að ganga í gegnum erfiða með- ferð sem myndi ekki bjarga lífi henn- ar. Brittany endaði líf sitt með aðstoð lækna í faðmi fjölskyldunnar á heim- ili sínu í Portland, Oregon, en það er eitt þeirra fimm fylkja í Bandaríkj- unum sem leyfa líknardráp. Í sömu viku var breskri móður leyft að enda líf 12 ára gamallar dóttur sinnar, Nancy Fitzmaurice, með aðstoð lækna. Dótturinni, sem gat hvorki gengið, talað, séð, borðað né drukkið, hafði verið spáð lífi til fjögurra ára aldurs en tólf ára gömul var hún með þroska á við 6 mánaða. Síðustu tvö árin hafi hún lifað við „óbærilegan sársauka og þjáningu“ vegna vandamála og sýkinga eftir uppskurð. Fordæmismál í Bretlandi Líknardráp er leyfilegt í fimm ríkj- um Bandaríkjanna og í Bretlandi, Sviss, Belgíu og Hollandi. Sem dæmi má taka að í Hollandi deyja um 140.000 manns á ári og um 2.8% fá að deyja með aðstoð læknis. 80% þeirra eru krabbameinssjúklingar. Líknardráp er einungis framkvæmt að ósk deyjandi sjúklings sem líður óbærilegar kvalir og á enga von um bata, en einmitt þess vegna er mál hinnar 12 ára Nancy Fitzmaurice sérstaklega umdeilt þar sem hún ákvað ekki sjálf að deyja, líkt og í tilfelli Brittany Maynard, heldur var það móðir hennar sem tók ákvörðunina. Málið er fordæmis- mál en hingað til hafa sjúklingar þurft að vera dauðvona eða verið bundnir við öndunarvél til að geta fengið aðstoð við líknardauða. Meirihluti lækna á Íslandi á móti líknardrápi Læknafélag Íslands hefur ekki tekið opinbera afstöðu með eða á móti líknardrápi en Jón Snædal, öldrunarlæknir og formaður siða- ráðs lækna, lýsti því yfir á málþingi um efnið i vor að hann teldi að góð líknarmeðferð, mannsæmandi með- ferð við lífslok, væri það sem stefna ætti að. Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar, telur ekki nauðsynlegt að Læknafélagið taki afstöðu en segir þó vera mikilvægt að tala um málefnið. „Þetta hefur komið til tals og menn eru alltaf að fylgjast með því sem gerist annars- staðar og reynslu þeirra þjóða sem hafa leyft beint líknardráp. Hér var gerð skoðanakönnun meðal lækna fyrir allmörgum árum síðan og þar kom mjög skýrt fram að íslenskir læknar eru á móti lögleiðingu líkn- ardráps og mér skilst að það sama sé uppá teningnum hjá Alþjóðasam- tökum lækna þar sem meirihlutinn hefur verið á móti.“ Talsmaður líknarmeðferða Salvör er sammála Jóni Snædal í því að mikilvægt sé að bjóða upp á góðar líknarmeðferðir. „Það skiptir mjög miklu máli hvernig er hlúð að þeim sem eru deyjandi og að góðar líknarmeðferðir bjóðist. Rannskóknir hafa sýnt að gæði líknarmeðferðar hefur áhrif á það hvort fólk vilji flýta dauða eða ekki. Ég hef verið talsmaður þess að við förum mjög varlega í að leyfa líknardráp því ég held að það gæti haft mikil áhrif á heilbrigðisþjón- ustuna og haft í för með sér ýmsar ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Ég hef ekki orðið vör við aukinn áhuga hér á landi á lögleiðingu líknardráps og ég tel að við eigum frekar að einbeita okkur að því að hlúa betur að því fólki sem er veikt og að geta boðið þeim upp á góða líknandi meðferð.“ Margir vilja enda líf sitt Lýður Árnason læknir er fylgjandi líknardrápi. Hann var meðlimur í stjórnlagaráði þar sem málið var tekið til umræðu á sínum tíma. „Þetta fór aldrei inn í sjálft plagg- ið. Þetta er svo erfitt og ofboðslega umdeilt mál sem fólk á almennt erfitt með að taka afstöðu til. Mörgum þykir það ekki vera sið- legt að grípa inn í náttúrulegt ferli og flýta fyrir dauða. Þetta er byggt á svipuðum rökum og andstæðing- ar fóstureyðinga byggðu á, á sínum tíma. Líknardauði hefur þótt vera eitthvað sem tilheyri almættinu en munurinn á fóstureyðingu og líkn- ardauða er sá að fóstrin hafa ekkert um málið að segja á meðan líknar- dauði er ekki framkvæmdur nema með samþykki sjúklings. Af hverju ættum við ekki að virða það rétt eins og aðrar óskir. Það yrðu auðvi- tað að vera mjög strangir verkferlar til staðar, sem ættu að koma í veg fyrir hverskyns vandamál sem upp gætu komið.“ Lýður segist margoft hafa upp- lifað það í sínu starfi sem læknir að fólk vilji enda líf sitt. Stundum sé það ótímabært en í öðrum tilfellum sé fólk satt lífdaga, mikið veikt og lifi við miklar líkamlegar þjáningar. „Þetta er auðvitað mjög margslung- ið að takast á við og í raun er ekkert eitt rétt og annað rangt. En mín afstaða er sú að þetta ætti að vera kostur fyrir þá sem vilja það.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is  lÍknardráp Eigum að hlúa vel að dauðvona fólki Líknardráp hefur verið mikið til umræðu í breskum og bandarískum fjölmiðlum síðustu daga. Líknardráp er leyft í Bandaríkjunum, Bretlandi, Sviss, Belgíu og Hol- landi. Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar, segist ekki vera talsmaður líknardráps heldur sé hún sammála stærstum hluta íslensku læknastéttarinnar um að líknandi meðferð sé almennt betri kostur. Lýð Árnasyni lækni finnst að líknardauði ætti að vera kostur fyrir þá sem þess óska. Salvör Nordal, heimspekiprófessor og forstöðumaður Siðfræðistofnunar, vill fara varlega í það að leyfa líknardráp. Hún segir mikilvægara að geta boðið dauðvona fólki upp á mannsæmandi meðferð. Móðir Nancy Fitzmaurice hefur fengið mikla samúð í breskum fjölmiðlum. Mál Brittany Maynard vakti mikla athygli en hún ákvað að binda enda á líf sitt þann 1. nóvember síðastliðinn. Á Íslandi er leyft að meðferð sé hætt eða þá að meðferð sé ekki hafin hjá einstaklingum sem eru dauðvona, en líknardráp er ekki leyft. Það sem átt er við með líknar- drápi er að við lífslok fái deyjandi einstaklingur læknisfræðilega aðstoð við sjálfsvíg óski hann þess. Þetta er til dæmis gert með því að læknir gefur sjúklingnum lyf sem hann tekur til að stytta sér aldur. Helstu rökin gegn þessu eru að það sé ekki hægt að ætlast til að manneskja deyði aðra, það stríði gegn hugmyndum um lækningu og svo þau trúarlegu rök að lífið sé ávallt heilagt. Rökin með eru fyrst og fremst þau að það sé réttur einstaklingsins að ákveða líf og dauða og að það sé mannúðlegt að deyða einstakling sem líður óbærilegar kvalir og bíður þess eins að deyja. 20 fréttaskýring Helgin 14.-16. nóvember 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.