Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.11.2014, Qupperneq 24

Fréttatíminn - 14.11.2014, Qupperneq 24
É g komst inn í þetta leikrit út af skyldleika, eins og ég kemst inn í allt. Ég á góða fjölskyldu,“ segir grínistinn Dóri DNA sem leikur eitt aðalhlutverk- anna í Útlenska drengnum sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói á sunnudag. Höfundur verksins er Þórarinn Leifsson sem er kvæntur Auði Jónsdóttur, náfrænku Dóra. Vildi allt í einu verða leikari Dóri, sem heitir fullu nafni Halldór Laxness Halldórsson, hefur verið áberandi í skemmtanalífinu síðasta áratug eða svo. Fyrst í tónlistar- senunni en síðar sem einn með- lima hins vinsæla uppistandshóps Mið-Íslands. Dóri lærði svo Fræði og framkvæmd í Listaháskólanum en það virtist ekkert benda til þess að hann ætlaði sér að verða leikari. „Nei, en við vorum að vinna mik- ið með leikurunum á sviðinu í skól- anum. Og það kviknaði leiklistar- baktería hjá mér og ég sá pínu eftir því að hafa ekki farið þá leið. Ég hef svo unnið skipulega í þessu eft- ir að ég útskrifaðist. Ég var fyrst að djöflast mikið með Mið-Íslandi og fór svo að vinna á auglýsingastofu eins og allir grínistar gera. Síðan hætti ég þar til að einbeita mér að leikhúsinu,“ segir Dóri. Síðustu misseri hefur Dóri unn- ið bak við tjöldin í leikhúsi. Hann var aðstoðarleikstjóri Kristínar Jó- hannesdóttur í Karma fyrir fugla og aðstoðaði Þorleif Arnarson í Englum alheimsins. Þá var hann dramatúrg í Harmsögu Mikaels Torfasonar sem Una Þorleifsdótt- ir stýrði og í Þingkonunum sem Benedikt Erlingsson leikstýrði. Þorsteinn Bachmann á leik- sigur Og nú er svo komið að Dóri lætur í fyrsta sinn til sín taka á leiksviði. Hann er spenntur og telur verkið gott. „Þetta er ógeðslega fyndið og flott verk. Það fjallar um krakka í bekk. Skólastjórinn fer og að- stoðarskólastjórinn tekur við. Hann leggur fyrir þau leskönnun, nokkurs konar Pisa-könnun, og kemst að því að því persónan sem ég leik, Dóri litli, er útlendingur. Þá breytist allt. Hann verður ein- hvers konar hælisleitandi í eigin skóla,“ segir Dóri sem staðhæfir að persóna hans sé ekki byggð á honum sjálfum, þrátt fyrir að hún beri sama nafn og hann hafi fengið hlutverkið í gegnum klíku. „Dóri litli er samt nettur ég. Nema að hann er frekar lélegur í íslensku sem ég var alltaf góður í. En hann er kjaftaskur í tólf ára bekk.“ Vigdís Jakobsdóttir leikstýrir verkinu og í öðrum hlutverkum eru Þorsteinn Bachmann, María Heba Þorkelsdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Benedikt Karl Gröndal og Magnea Björk Valdimarsdóttir. „Það er náttúrlega mjög ósann- gjarnt að ég sé að stíga mín fyrstu skref á atvinnuleiksviði og þá þarf helvítið hann Þorsteinn Bachmann að eiga leiksigur aldarinnar sem þessi aðstoðarskólastjóri. Þetta er bara John Cleese-frammistaða hjá honum,“ segir Dóri. Streð að vinna í mörgu í einu Dóri hefur í nógu að snúast með- fram fyrsta hlutverkinu í atvinnu- leikhúsi. Hann leikstýrir uppsetn- ingu leikfélags MH, grínast með Mið-Íslandi, var að byrja að vinna á auglýsingastofu og er með nýja sketsa á Rás 2. Auk þess að leika smá í Áramótaskaupinu. „Ef ég næ að kalla mig grínista þá rúmast allt sem ég er að gera innan þess. En það er streð að vinna í svona mörgum hlutum í einu. Í þessari viku er ég að frum- sýna á sunnudaginn, það eru skets- ar í loftinu, við erum með prufu- kvöld með nýju efni hjá Mið-Íslandi í næstu viku, og ég er að vinna hjá Hvíta húsinu. Þetta er eins og mér skilst að bókhald útgerðarinnar hafi verið eftir hrunið, það vildi enginn ýta á enter til að sjá hversu illa stödd þau voru. Þannig að ég er að forðast að ýta á enter í excel- skjalinu. Ég segi bara eins og við gerum í Mið-Ís- landi, ég keyri þetta á spjald- inu. Ég er með gott spjald,“ segir hann og bendir á andlitið á sér. „Síðan lendir maður ein- hvern tímann. Þú mátt ekki staldra við og hugsa.“ Meðfram þessum störfum er Dóri nýkvænt- ur f jölskyldu- maður. Kona hans er Magnea Guð- mundsdóttir arki- tekt og búa þau í miðborg Reykjavíkur. Fyrir átti Dóri soninn Kára en saman eiga þau rúmlega ársgamla dóttur, Guð- nýju, sem er alnafna móður Dóra. „Mér finnst gaman að finna mig upp á nýtt. Einu sinni var ég rappd- rengur. Síðan varð ég einhvers konar montrass. Síðan djammaði ég ofboðslega mikið og var upp- tekinn af næturlífinu. Síðan komu börn og nú er maður bara upptek- inn af því að vera fjölskyldufaðir. Langömmubox og allt það, ég dýrka það. Sem betur fer er ég ungur þannig að ég er eygja það að fara aftur af stað á djamminu upp úr fer- tugu.“ Montrass í ræktinni Dóri er duglegur á samskiptamiðl- inum Twitter og er þar með 4.500 fylgjendur. Á þeim vettvangi lýsti hann því yfir fyrir skemmstu að hann ætlaði að skafa af sér spikið í ræktinni. Hann sleppur ekki við að vera spurður um hvernig það gangi nú allt saman. Sér í lagi þar sem hann gúffaði í sig múffu á undra- verðum hraða í upphafi viðtalsins. „Operation The Rock, eins og ég kalla þetta, er af og á hjá mér. Þetta er bara erfitt fyrir mig. Ef þú lest viðtöl við fólk sem grennist þá talar það alltaf um að hafa fundið sjálfsöryggið. Málið er bara að ég er sjálfsöruggur og hef alltaf verið. Ég lít oft í spegil og hugsa, „You’re one hunk of a man Halldór!“ Það er því voða erfitt að finna hvatann til að grenna sig þeg- ar maður er bara svona ógeðslega sáttur í eigin skinni,“ segir hann léttur í bragði. „Ég er samt orðinn rosalega sterkur. Málið er bara að menn eru orðnir miklu sterkari en þeir voru. Hundrað í bekk er ekki það sama og það var. Ég man þegar ég heyrði fyrst af lyftingum. Þá voru menn bara að lyfta þar til þeir tóku 100 í bekk og svo slöppuðu þeir bara af. Núna er ég að sjá einhverja ræfla í bekknum að dæla hundrað eins og ekkert sé,“ segir Dóri sem æfir með belti í ræktinni og segir öðr- um til ef sá gállinn er á honum. „Ég hitti Þorstein Bachmann og hann sagðist vera hræddur um að slasa sig í réttstöðulyftu. Ég sagði að gott form og tækni myndu alltaf hindra mann frá því að slasast. Og við það tognaði ég feitt í lyft- unni sem ég var að sýna og var frá í tvo mánuði. Ég átti það skilið fyrir að vera svona mikill montrass.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Gaman að finna mig upp á nýtt Dóri DNA leikur sitt fyrsta hlutverk í atvinnuleikhúsi í Út- lenska drengnum sem frumsýnt verður um helgina í Tjarnar- bíói. Hann segir leiklistarbakteríuna hafa komið óvænt til sín og hefur síðustu ár unnið markvisst að því að komast þangað sem hann er í dag. Dóra gengur þó erfiðlega að skafa af sér spikið þrátt fyrir yfirlýsingar þar um því hann segist vera svo ánægður með sjálfan sig. Ljósmynd/Hari Ef þú lest viðtöl við fólk sem grennist þá talar það alltaf um að hafa fundið sjálfs- öryggið. Málið er bara að ég er sjálfsöruggur og hef alltaf verið. Ég lít oft í spegil og hugsa, „You’re one hunk of a man Halldór!“ 24 viðtal Helgin 14.-16. nóvember 2014
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.