Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.11.2014, Page 38

Fréttatíminn - 14.11.2014, Page 38
Minja er gjafavöruverslun með áherslu á íslenska og erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja K raftaverk Skafkorti› Þú skefur gylltu himnuna af þeim löndum sem þú hefur heimsótt og útbýrð þannig persónulegt heimskort. 82 X 58 cm • Kr. 2.990 Sársauki barnæskunnar fylgir Reyni Traustasyni eins og fram kemur í upphafi bókar hans, Afhjúpun, sem væntanleg er á næstunni. Pabbi hans var aðeins til staðar fyrstu mánuðina. Hann var erfiður sem unglingur, skap- stór, í stöðugri uppreisn og byrjaði snemma að drekka. F yrstu minningar mínar eru frá Deildartungu þar sem móðir mín var kaupakona. Við Vala frænka vorum úti á túni. Ég vissi snemma að þetta var ekki hefð- bundið fjölskyldumynstur. Pabbinn var aðeins til staðar fyrstu mán- uðina en svo hvarf hann. En afi og amma voru alltaf skammt undan. Þau voru tilbúin til þess að taka við mér þegar á þurfti að halda. Í þeirra augum var ég glókollur þótt einhverjir aðrir litu á mig sem svart- höfða. Ég var f imm ára þegar við mamma fluttum til Flateyrar. Hún var komin í samband við góðan mann sem hafði ættleitt mig. Við sigldum vestur með strandferða- skipi. Skyndilega var ég kominn á stað þar sem sjórinn skipti öllu. Þar var lífsbjörgin. Ég kunni illa við sjóinn. Og svo kunni ég illa við staðinn. Strax annan daginn lenti sveitadrengurinn í útistöðum við þorpspiltana sem höfðu hann undir. Einn settist á andlit mitt. Hann var hlandblautur. Það var orðrómur um það í pláss- inu að ég væri Kanabarn. Ástæðan var sú að ég hafði lært nokkra frasa á ensku sem ég slengdi fram í tíma og ótíma. How are you eða You are crazy. Sögurnar mögnuðust og það tók móður mína tíma að kveða þær niður. Ég heyrði kvitt um þetta sjálfur. Bekkjarbróðir minn spurði mig í söngtíma hvernig mér fyndist að vera lausaleiksbarn. Hann sagðist hafa heyrt það frá föður sínum, for- manni barnaverndarnefndar. Ekki það að ég sætti slæmri meðferð. Barnaverndarnefnd hafði, reglum samkvæmt, fengið skýrslu um ætt- leiðinguna og formaðurinn lak upp- lýsingunum. Reiðin ólgaði innra með mér. Ég var annars flokks. Ég átti góða barnæsku. Foreldrar mínir voru samhentir og það var nóg að bíta og brenna. Sjálfur var ég erfiður. Ég var skapstór og í stöðugri uppreisn, þoldi ekki fyr- irskipanir. Þetta ágerðist þegar ég varð unglingur og byrjaði að drekka og gerði nánast það sem mér sýndist og var í raun óþolandi. Þá fyrst reyndi á foreldra mína sem tóku þó bernskubrekunum af nokkru æðruleysi. Seinna fór ég til fundar við blóð- föður minn í Reykjavík. Ég hafði starfað sem sjómaður um hríð og var drukkinn. Ég hafði bankað upp á og mér var strax vel tekið. Ég krafðist þess að við færum í sjómann. Svo ræddum við mál- in. Ég komst að því að hann bjó líka yfir harmi. Hann var tvíburi sem kom undir í skyndikynnum í miðju hjónabandi. Pabbinn skipti sér aldrei af honum. Þeir hittust aldrei. Löngu seinna lágu leiðir og mín- ar og þessa afa míns saman. Ég var sjómaður á togara sem gerður var út frá bæ á Norðurlandi. Hann var leigubílstjóri á staðnum. Ég pantaði leigubíl og ákvað að hefna fyrir tvær kynslóðir lausaleiksbarna og kenna honum lexíu. Bílstjórinn var gam- all maður með alpahúfu. Við ókum Barnið á Búrfelli áleiðis á flugvöllinn. Ég sat í aftur- sætinu, dálítið drukkinn, og reif kjaft. Ég setti út á aksturslagið og var hinn leiðinlegasti. Það fauk í bíl- stjórann sem sagði mér að þegja. En ég færðist í aukana. Loksins snar- hemlaði hann og skipaði mér að fara út úr bílnum. Ég hallaði mér fram á milli sætanna og spurði hvort hann væri viss. Hann titraði af reiði og sagði mér að hunskast út. Ég væri fyllibytta. Ég brosti til hans. „Þú ert afi minn, fíflið þitt.“ Bílstjóranum krossbrá. Ég út- skýrði í fáum orðum hver ég væri og hvernig hann hefði komið fram við ættliðinn á milli okkar. Hann ók rólega af stað. Við þögðum báðir og fyrr en varði vorum við komnir að flugstöðinni. „Hvað kostar bíllinn?“ spurði ég. Hann horfði á mig dapur á svip og sagði svo lágum rómi: „Þú skuldar mér ekkert.“ Drifkrafturinn sem hefur rekið mig áfram var þörfin til að sanna mig. Verkefni lífsins var að virkja þessa orku. Hugsanlega er þetta skýringin á því hvernig lífshlaup mitt þróaðist. Ég var reiður ungur maður. Það var ekki fyrr en eftir að ég eignaðist mína eigin fjölskyldu að ég náði sátt við sjálfan mig og flesta aðra. Faðir minn, sem ól mig upp, dó ungur. Við höfðum á köflum átt í útistöðum. Á dánarbeði hans náð- um við loksins saman og við urðum sáttir. Blóðböndin skiptu mig ekki máli. En sársauki barnæskunnar fylgdi mér. Reynir 8 ára gamall við heyskap á Flateyri. Á toppi Mont Blanc í fyrra með Pierre leiðsögumanni. Reynir og Jón Bjarki Magnússon hafa reynt margt saman. Fréttaritarinn Reynir Traustason stóð vaktina árið 1990. 38 bækur Helgin 14.-16. nóvember 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.