Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.11.2014, Qupperneq 49

Fréttatíminn - 14.11.2014, Qupperneq 49
salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík Tími til að vakna! Rakel Garðarsdóttir og Margrét Marteinsdóttir Bókin fyrir alla sem bera velferð sína og umhverfisins fyrir brjósti Það eru litlu breytingarnar sem skipta máli – og jörðin mun þakka okkur margfalt fyrir. Losnum úr viðjum stjórnlausrar neyslu og sóunar – sem hefur slæm áhrif bæði á heilsu og fjárhag. Hér er fjallað á aðgengilegan hátt um matarnýtingu, hreinsiefni, snyrtivörur, plast, fatnað, leikföng og ótalmargt fleira … Við sjáum varúðarmerkin alls staðar, útrýmingu dýrategunda, súrnun sjávar, hlýnandi jörð og bráðnandi jökla. Umhverfismálin eru stærsta áskorun 21. aldar. Ef jörðin á að bera öll þau börn sem við viljum eignast, og ef við viljum að þau lifi góðu lífi - þá þurfum við að endurhanna og endurhugsa nánast allt sem við gerum, borðum, neytum og njótum. Við þurfum að endurmeta fegurðarskynið, orkunotkun, matarvenjur, ferðalög og fataval. Þessar breytingar eru lífsnauðsynlegar en ekki neikvæðar, þetta er áskorun sem er skapandi og spennandi. Andri Snær Magnason, rithöfundur ÁSTARÓÐUR TIL JARÐAR Öll berum við ábyrgð á framtíð barna okkar sem er samofin heilsu móður jarðar. Ekkert kemur í hennar stað. Jörðin þjónar mannkyninu af alúð en heilsu hennar fer hrakandi vegna ágangs okkar. Við þurfum að hlúa að henni og það gerum við best með því að breyta hegðun okkar. Vakandi veröld - ástaróður Flokkum44 Áætlaður niðurbrotstími í hafi. Eplakjarni 2 mánuðir Plastflaska 450 ár Mjólkurferna 3 mánuðir Frauðbauja 50 ár Lopasokkar 1-5 ár Girni 600 ár Dagblað 6 mánuðir Glerflaska ekki vitað Áldós 200 ár Plastpoki 200-1000 ár Niðursuðudós 50 ár Einnota bleyja 450 ár Sígarettustubbur 1-5 ár Krossviður 1-3 ár Bómullarskyrta 2-5 mánuðir Pappakassi 2 mánuðir HVAÐ TEKUR ÞAÐ LANGAN TÍMA AÐ EYÐAST? Vakandi veröld - ástaróður Flokkum 45 Skemmtilegast er að nota hugmyndaflugið til að endurnýta gamalt góss.26 Vakandi veröld - ástaróður Snyrtivörur KROPPURINN RAKSÁPA Hrærið saman og berið á allan líkamann í sturtunni eða baðkerinu. Ef þið viljið hafa blönduna grófari má nota meira magn af kaffikorgi. Afganginn af honum er hægt að setja í blómabeð og í moldina hjá pottaplöntum innandyra. Setjið allt í skál og hrærið vel í nokkrar mínútur. Hellið í brúsa með pumpu eða flösku sem hægt er að kreista sápuna úr. ½ bolli kókosolía ½ bolli kaffikorgur Kókosolíu er hægt að nota sem húðmjólk. Svo er hægt að búa til sitt eigið skrúbb þar sem kókosolían er í aðalhlutverki eins og í fjölmörgum öðrum heimagerðum snyrtivörum. ½ bolli olía (möndlu-, ólífu- eða lárperuolía)¼ bolli hunang ¼ bolli jurtasápa 10 dropar ilmkjarnaolíur að eigin vali Aðferð Aðferð Allt hrært saman í skál og svo sett í glerkrukku með góðu loki. Best að láta blönduna standa í um hálfa klukkustund áður en hún er notuð í fyrsta sinn. ¼ bolli kókosolía ¼ bolli möndluolía ½ bolli sjávarsalt 10 dropar af náttúrulegum ilmkjarnaolíum að eigin vali Aðferð Innihald Innihald Innihald Jafnt fyrir konur sem karla Þessar tvær blöndur eru magnaðar SJAMPÓ Hellið öllu í tóman sjampóbrúsa og hristið hann vel áður en þið þvoið ykkur með þessum góðu náttúrulegu efnum. Best er að bera sjampóið beint í hársvörðinn því það er dálítið vatnskennt. 1 bolli vatn ½ bolli jurtasápa 1/8 bolli af aloe vera geli5 dropar af ilmolíu (þó eftir smekk eins og áður) Aðferð Innihald HÁRNÆRING Takið utan af lárperunni og stappið kjötið vel. Bætið kókosmjólkinni og kókosolíunni við og hrærið þar til blandan verður mjúk. Berið í hárið. Látið hana vera í hárinu í 10-15 mínútur. Skolið og þvoið svo með sjampói. Þetta er mjög góð leið til að halda hárinu mjúku og glansandi. Hrærið allt saman. Einfalt! 1 lárpera (avókadó) 1 bolli kókosmjólk 2 tsk kókosolía 2 tsk eplaedik 1 bolli vatn nokkrir dropar af náttúrulegum ilmkjarnaolíum að eigin vali Aðferð Aðferð Innihald Innihald Eplaedik losar hárflóka og kemur líka í veg fyrir flösu HRINGRÁSIN HEIMAÞað er ódýrara að búa til sínar eigin snyrtivörur, sérstaklega þegar við erum komin upp á lag með það. Svo er gaman að búa til hringrás heima. Nota sömu brúsana og krukkurnar aftur og aftur. Sultukrukkurnar og aðrar gler- og jafnvel plastumbúðir öðlast þá nýjan tilgang. Svo eru heima-tilbúnu snyrtivörurnar líka góðar gjafir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.