Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.11.2014, Síða 50

Fréttatíminn - 14.11.2014, Síða 50
Metsölulisti Eymundsson Handbækur/Fræðibækur/Ævisögur. Vika 45 1. Guðrún Magnús- dóttir hefur áður gefið út hinar vinsælu bækur, Sokkaprjón, Húfuprjón og Vettlingaprjón. Einfaldar og skýrar uppskriftir að treflum, krögum og vefjum fyrir börn og fullorðna. Í bókinni eru einnig gagnlegar leið- beiningar, góð ráð og kennsla bæði í prjóni og hekli. Treflaprjón á toppnum! www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu É g vinn við það að mat-reiða texta úr Biblíunni og er þarna á heimavelli. Ég veit að maður þarf að vera skapandi og túlkandi í allri mat- reiðslu, alveg sama hvernig hún er,“ segir Svavar Alfreð Jóns- son, sóknarprestur í Akureyrar- kirkju, sem hefur sent frá sér bókina Biblíumatur. Fátt skemmtilegra en að elda og borða Í bókinni er að finna fjölmargar forvitnilegar uppskriftir og segir Svavar að hann hafi notið vinnunnar mikið. „Þarna sam- einast mörg af mínum helstu áhugamálum. Ég þurfti að grúska svolítið til að finna þessar uppskriftir. Svo þurfti ég að elda og bjóða fólki í mat – ég geri fátt skemmtilegra en að borða góðan mat með vinum og ættingjum – og að skrifa og taka myndir af öllum réttunum, ég er áhugaljósmyndari. Síðast en ekki síst hef ég mikið dálæti á þessu merkilega ritsafni sem Biblían er,“ segir Svavar en um ár er síðan hann hóf undirbún- ing bókarinnar með bókaútgáf- unni Hólum. Sleppti geitakjöti og úlf- aldamjólk Hvernig tók fjölskyldan í þetta brölt á þér? „Við hjónin erum mjög sam- stíga í þessu og þetta féll bara í góðan jarðveg hjá öllum fjöl- skyldumeðlimum. Enda eru þetta frekar heilsusamlegir rétt- ir, ferskir og ljúffengir. Það er ekki mikil fita í þessu og mjög lítill hvítur sykur, þeir notuðu bæði berjasaft og hunang sem sætu.“ Þegar talað er um biblíumat er vitaskuld ekki verið að ræða uppskriftir úr Biblíunni. „En þarna eru gamlar uppskriftir sem hafa varðveist frá ritunar- tíma Biblíunnar. Svo hafa menn verið að leika sér með hráefni sem vitað er að mikið var notað á þessum tíma og á því svæði sem þessir atburðir allir gerð- ust,“ segir Svavar. „Ég reyndi að sleppa hráefni sem er illfáanlegt á Íslandi. Til að mynda geitakjöti og úlfalda- mjólk, ég veit ekki til þess að Mjólkursamsalan hafi mikið verið með hana. En þarna er mikið af lambakjöti, kjöti af fiðurfé og grænmeti og ávextir. Það er lítið salt í þessum rétt- um, þetta er heilsusamlegur og hreinn matur. Og yfirleitt ekki mjög flókin matreiðsla.“ Fiskurinn var erfiðastur Eru einhverjar uppskriftir í sér- stöku uppáhaldi hjá þér? „Þær eru svo margar góðar! Ég hef verið að elda þessa rétti á töluvert löngun tíma og er nú byrjaður aftur að elda þá. Það hefur reynst mjög gaman. Í gær var ég til dæmis með kjúklinga- bringur, steiktar og soðnar í granateplasafa. Ég var í mest- um vandræðum með fiskinn þegar ég undirbjó bókina. Ég þurfti að gera nokkuð margar tilraunir til að finna rétta fiskinn enda eru fiskitegundir okkar nokkuð frábrugðnar þeim sem þarna fundust.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Sameinaði áhugamálin við það að elda biblíumat Séra Svavar Alfreð Jónsson hefur meðfram störfum sínum í Akureyrarkirkju skrifað matreiðslu- bókina „Biblíumatur“ sem nú er komin út. Við vinnuna sameinaði hann öll sín helstu áhugamál; matargerð, skriftir, ljósmyndir og heilaga ritningu. Hann varð að laga uppskriftirnar að íslenskum markaði enda er úlfaldamjólk til að mynda ekki algeng hér um slóðir. Séra Svavar Alfreð Jónsson hefur sent frá sér bókina Biblíumatur. Í henni er að finna uppskriftir að forvitnilegum réttum eins og Salatið hans Columella og Ísraelskt morgunverðarsalat. Hunangsbakað lambakjöt í myntusósu 1,8 kg lambakjöt í litlum bitum 12 bollar vatn 1 bolli fínsaxaður laukur 1 tsk hvítlaukspipar 1 bolli ólívuolía 2 bollar söxuð græn paprika 1 bolli hunang 1 bolli þurrt hvítvín eða mysa 2 msk sítrónusafi 1 tsk salt 2 bollar fersk mynta ¼ bolli sykur ½ bolli granateplasafi Kúskús Fersk mynta til skrauts Hitið ofninn í 175 °C. Sjóðið kjötið í vatninu þangað til það er orðið meyrt. Hellið þá vatninu af því og geymið kjötið. Steikið laukinn og hvítlauks- piparinn í ólívuolíunni í stórri pönnu. Bætið kjötinu og paprikunni út í og látið malla við vægan hita í 20 mínútur. Ausið þá öllu upp úr pönnunni í stórt eldfast fat. Hellið hunangi, víni (mysu) og sítrónusafa yfir og saltið létt. Bakið í 40 – 45 mínútur. Setjið á meðan myntu, sykur, safa og vatn í blandara og búið til mauk. Hellið því yfir kjötið þegar 10 mínútur eru eftir af bökunartímanum. Berið fram á kúskúsbeði og skreytið með myntu. Uppskriftin er fyrir 6 – 8 manns.  matur 50 viðtal Helgin 14.-16. nóvember 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.