Fréttatíminn - 14.11.2014, Page 62
62 hönnun Helgin 14.-16. nóvember 2014
Fæst hjá Jóni & Óskari.
Laugavegi 61 // Kringlunni // Smáralind.
Tel.+354 552 4910 // www.jonogoskar.is.
Norðurljós
Nýjasta hönnun úr Icecold silfurlínunni
er innblásin af hinum töfrandi Norðurljósum.
Tilvalin gjöf til vina og vandamanna erlendis.
Northern lights
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
43
98
9
Men frá 16.900 kr.
Lokkar 15.900 kr.
Salt og pipar borið
fram á flottan máta
Mikið úrval er af sérstöku og fallegu salti,
pipar og öðru kryddi sem gaman er að bera
fram á matarborðið. Fallegar litlar skálar
eða krukkur henta vel til þess, eða jafnvel
skeljar utan af ostrum eða jafnvel stórar
bláskeljar eða hörpudiskar. Smáatriðin geta
skipt sköpum og ótrúlega einfalt er að bæta
punktinum yfir i-ið með sniðugum og öðru-
vísi skálum utan um kryddið.
Kopar er kúl
H úsmunir og skraut úr málmi halda vinsældum sínum og að þessu sinni er það kopar-
inn sem er á toppnum. Hann hefur
alltaf sótt í sig veðrið öðru hverju,
sérstaklega í eldhúsinu, í pottum
og pönnum og tekötlum. En nú hef-
ur hann aldeilis stækkað sviðið því
hönnuðir eins og Tom Dixon nota
hann óspart í ljós og húsmuni og
má finna stóla og húsgögn úr kopar.
Falleg áferðin gefur heimilinu fágað
útlit án þess að líta of ríkmannlega
út og tónar kopar vel við iðnaðarút-
litið sem hefur verið í tísku, grófan
við og marmara.
Kostir koparsins eru margvísleg-
ir hann leiðir hita og rafmagn vel,
og hann er mjög mótanlegur sem
gefur skemmtilega möguleika, en
hann er þó ekki eins linur og gull.
Hann hefur bakteríudrepandi eigin-
leika og er því tilvalið að nota hann í
hurðarhúna og krana.