Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 74

Fréttatíminn - 14.11.2014, Blaðsíða 74
74 bækur  RitdómuR LóaboRatoRíum Arnaldur langsöluhæstur Landsmenn hafa tekið nýrri bók Arnaldar Indriða- sonar fagnandi, venju samkvæmt. Kamp Knox er í efsta sæti metsölulista Eymundsson og í öðru sæti listans situr kiljuútgáfa hennar, sem aðeins er seld í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Treflaprjón Guðrúnar S. Magnúsdóttur fer beint í þriðja sæti listans og lífleg vísnabók Egils Eðvarðs- sonar, Ekki er á vísan að róa, situr í fjórða sætinu. Í fimmta sæti er Orðbragð. Þar á eftir koma þrjár spennandi barnabækur; Hjálp eftir Þorgrím Þráinsson, Gula spjaldið í Gautaborg eftir Gunnar Helgason og Vísindabók Villa 2. Í níunda sæti er Hugrækt og hamingja eftir Önnu Valdimarsdóttur og Náðarstund situr í tíunda sæti. bóksaLa  RitdómuR ÖRæfi eftiR ófeig siguRðsson a usturríski örnefnafræðingurinn Bernharður Fingurbjörg skríður kalinn með ljótan holdfúa í ofan- verðu lærinu, inn í Þjónustumiðstöðina í Skaftafelli eftir ævintýralega háskaför um öræfin. Bernharður á erindi til Ís- lands af margvíslegum ástæðum, bæði faglegum og persónulegum, en í upphafi frásagnarinnar hefur hann lent í ýmsum hrakningum og m.a. verið illa bitinn af villifé. Héraðsdýralæknirinn dr. Lassi (sem er kvenkyns) sér að við svo búið má ekki standa, aflimar manninn með frumstæð- um aðferðum, og hefst svo handa við að skrifa skýrslu sem verður efnismeiri en hún hugði í fyrstu. Saga Bernharðs leiðir lesendur um ýmis öngstræti íslenskrar sögu, náttúru og menningar og er bæði raunsæisleg og töfrum slungin. Til grundvallar Öræfum Ófeigs Sig- urðssonar liggur mikil heimildarvinna, lestur á ferðabókum, annálum, árbókum og héraðslýsingum, auk yngri heim- ilda. Margt kannast lesendur við, en að hætti skálda, þá leikur Ófeigur sér að því að snúa örlítið upp á sögurnar, bæta við og draga úr eftir smag og behag, enda ekkert skemmtilegra en þegar sögur eru sagðar af sögum, eins og ítrekað er þegar frásögnin er römmuð inn: „ ... sagði Snorra-Edda í koffortinu, segir Bern- harður, túlkar Túlka, skrifar dr. Lassi í skýrsluna, skrifaði Bernharður mér í bréfi vorið 2003“ (80). Öræfi er bæði skrítin og skemmtileg bók og hún er sérkennilega vel stíluð. Sagan kveikir svo mikla innvortis kátínu að ekki er mælt með því að lesendur reyni að setja ofan í sig vökva eða nokkurs konar næringu meðan á lestri stendur, því búast má við töluverðu flissi og frussi og slíkt býður bara upp á subbuskap. Þótt skemmtunin af Öræfum sé mikil, þá hefur sagan grafalvarlegan undirtón. Villiféð sem bítur Bernharð í upphafi er t.a.m. tákn fyrir hina óhömdu og „hættu- legu“ náttúru sem nú á dögum er svo oft kæfð og kramin. Ást og virðing fyrir landinu – hinu upprunalega og óspillta – er áberandi í sögunni og kjarnast í Öræf- unum og Öræfingum, enda sögðu Eggert og Bjarni að þeir væru „fullkomnustu mennirnir á Íslandi, hógværir, hljóð- látir, hæglátir, minnst mengaðir og tala hreinasta og fullkomnasta málið vegna einangrunar“ (226-227). Dr. Lassi segir snemma í sögunni að bækur séu allt of einsleitar nú á dögum og hana dreymir um að skrifa bók um allt. (43) Einhvers konar altæka skýrslu um einstaklinginn og heiminn. Ekki skal gengið svo langt hér að segja að Öræfi eftir Ófeig Sigurðsson sé bók um allt, en hún er um ansi margt. Og eins og Öræf- ingar að mati þeirra Eggerts og Bjarna, þá nálgast hún fullkomnun. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Skrítin bók og skemmtileg Út er komin Skálmöld, fjórða bókin í Sturlungabálki Einars Kárasonar en jafnframt sú fyrsta. Í bókinni er lýst aðdraganda þess að út braust borgarastyrjöld á Íslandi svo að eldar loguðu og blóðið flaut. Þarna segir af glæsimenninu Sturlu Sighvatssyni sem er metnaðargjarn og sjálfsöruggur höfðingja- sonur sem ætlar sér sífellt meiri völd. Aðrir höfðingjar standa í vegi hans og neita að bugta sig; eftir langvinnar erjur og svik lýstur fjölmennum fylkingum saman á Örlygsstöð- um. Í grimmilegum bardaga falla hetjur í valinn, öldungar og unglingar, og eftir á er margs að hefna. Einar hefur áður gert stóratburðum 13. aldar skil í Óvinafagnaði, Ofsa og Skáldi. Ofsi hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Einar fer aftur til fortíðar Fjölmiðlakonan Sigríður Arnardóttir, Sirrý, hefur sent frá sér sína aðra barnabók, Tröllastrákurinn eignast vini. Fyrri bók hennar um sama efni naut talsverðra vinsælda. Í bókinni segir af tröllastráknum Vaka sem leiðist stundum að eiga enga vini. En dag nokkurn breytist það þegar hann kynnist Sögu sem er mannabarn. Hann hjálpar henni við að byggja kofa og þar þarf ýmislegt að gera: teikna, mæla, saga og negla. Það eru ekki allir jafn hrifnir af þessum tápmikla tröllastrák en Saga á gott ráð við því! Tröllastrákurinn eignast vini er 30 blaðsíður að lengd og hana prýða myndir Freydísar Krist- jánsdóttur. Bókinni fylgir geisladiskur með lestri Kristjáns Franklíns Magnús leikara á sögunni. Önnur barnabók frá Sirrý t eikningar Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur fegra sjaldn-ast raunveruleikann. Þvert á móti gerir Lóa góð- látlegt gys að daglegum vandamálum okkar misgæfu- legra mannskepnanna og fátt fær sloppið undan hennar smásjá. Skemmtilegast verður grínið þegar lesandi þekkir sjálfan sig í því (og það er ósjaldan). Sem dæmi má nefna dagatal, þar sem endurtekningin spilar stóra rullu: / Í janúar: „Hverjum datt í hug að láta mig fá kreditkort?“ / júlí: „Ísland er snilld, svefn er ofmetinn“ / október: „Gemmér bland í poka fyrir átta þúsund. Já, ég er á nátt- fötum útí búð.“ Og áfram gengur lúppan, tvisvar í henni er að finna setninguna: „Af hverju búum við á þessu skeri?“ Líka bregður fyrir kunnuglegum persónum, eins og Fjölskylduboða-Stasi, sem telur ofan í fólk í veislum („þriðja ferðin, tólfta pönnukakan“), Vinnustaðaalkanum sem „kemst bara ekki í dag“ vegna þess að hann hefur nælt sér í einhverja gubbupest, Hollustufasistanum sem vill ekki leyfa kökum að vera kökur í friði og Fjórum tegundum karldýra í Vesturbæjarlauginni, svo aðeins fátt sé nefnt af skemmtilegheitum í Lóaboratoríum. Teikningar Lóu Hlínar bera sterk höfundareinkenni og þær eru vísast ekki fyrir teprur. Naktir skrokkarnir, gamlir, feitir og loðnir (hjálp!). Illa tennt fólk, ófríð börn, vindgangur og viðbjóðslegir líkamsvessar fá gott og verðskuldað pláss í bókinni. Í myndum Lóu er sagður „óþægilegur sannleikur“ eins og ekkert sé sjálfsagðara, oft ýktur og gróteskur. Þar sem sýnt er frá veröld barna liggur móðirin iðulega sofandi áfengissvefni með flösku í hendi... eða dansar um dauðadrukkin á meðan börnin hafa ofan af fyrir sér sjálf. Einhver gæti freistast til þess að bera höfundarverk Lóu Hlínar saman við verk annars teiknara sem sérhæft hefur sig í „ósmekklegu“ gríni, Hugleiks Dagssonar, og víst má finna snertiflöt. Húmor Lóu er þó ekki nándar nærri eins svartur og Hugleiks og sem teiknarar eru þau mjög ólík. Teikningar Lóu fylla oftast vel út í myndflöt- inn, þær skarta skemmtilegum smáatriðum og texti er óspart notaður til myndlýsinga. Rannsóknir Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur á mannlegri hegðun eru alltaf áhugaverðar og oftast bráðfyndnar. Fólk er hvorki tiltakanlega fallegt né gott – og það er voða lítið hamingjusamt. Þrátt fyrir þetta skynjar lesandi að teiknaranum þykir vænt um þessi afkvæmi sín og það sem skiptir miklu máli – lesandanum þykir það líka. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Áfengisdauðar mæður og annað gott  Öræfi Ófeigur Sigurðsson Mál og menning 2014, 342 síður  Lóaboratoríum Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Ókeibæ 2014 Helgin 14.-16. nóvember 2014 Ófeigur Sigurðsson. Saga Bern- harðs leiðir lesendur um ýmis öngstræti íslenskrar sögu, náttúru og menning- ar og er bæði raunsæisleg og töfrum slungin. Lóa Hlín Hjálmtýs- dóttir. 15396 Sirry_U og kápa á númeri TVEIR HRAFNAR listhús, Art Gallery Baldursgata 12 101 Reykjavík +354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885 art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is Opnunartímar 12:00-17:00 fimmtudaga til föstudaga 13:00-16:00 laugardaga og eftir samkomulagi 8. nóvember - 29. nóvember JÓN ÓSKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.