Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 34
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Kjaramál í nútíð og framtíð Sigurður Einar Sigurðsson ses@fas.is Höfundur situr í stjórn LÍ og er jafnframt formaður samninganefndar. Hann er svæfingalæknir við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. í pistlunum Af sjónarhóli stjórnar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Nú þegar nýr kjarasamningur sjúkrahúslækna (ekki þó skurðlækna) og heilsugæslulækna hefur verið samþykktur er rétt að staldra örlítið við og skoða hvað við sömdum um og á hvaða leið við erum í okkar kjaramálum. Einstök atriði samnings- ins hafa verið kynnt á fundum eftir undirskrift og óþarfi að fara í smáatriði hér en það er hins vegar augljóst á þeim samtölum sem ég hef átt við lækna sem formaður samninganefndar að almenn þekk- ing lækna á eigin kjarasamningi er býsna bágborin. Menn gefa sér lítinn tíma til að lesa samninginn sem er kannski skiljanlegl þar sem hann er um 30 blaðsíður en það er hins vegar verra að einstök atriði í samningnum eða túlkun hans eru misskilin og síðan virðast myndast einhvers konar drauga- sögur (urban myths) sem ómögulegt virðist að kveða niður. Dæmi um þetta er „salan“ á yfirvinnu og gæsluvaktafríum í samningnum 2002. Vissulega má segja að fríin sem voru veitt ef yfirvinna og/ eða vaktavinna fór yfir ákveðin mörk voru felld burt sem slfk en í staðinn kom veruleg hækkun á taxta fyrir vaktir og reyndar stuðlaði þessi sala að grunnkaupshækkun líka. Pví er svo við að bæta að í samningnum er tafla sem veitir mönnum heimild til þess að skipta út greiðslum fyrir gæsluvaktir í frí, og þessi frí eru alveg jafnrétthá þeim fríum sem við áður höfðum, það er ef aðstæður leyfa. Þarna er að vísu ekki sambærileg tafla fyrir staðarvaktir (ennþá). Þarna er því mönnum leyfilegt að taka frí fyrir vaktagreiðslur og er þessi aðferð mun sanngjarnari til dæmis fyrir þá sem taka mikið af vöktum þá var samkvæmt gamla kerfinu hámark á hvað við gátum unnið okkur inn mikil frí og voru menn oft búnir að ná því hámarki um haustið og gátu því ekki unnið sér inn meira frí, en þetta gerist að sjálfsögðu ekki nú og frí fyrnast heldur ekki eins og áður gerðist. Önnur svona þjóðsaga er með viðbótarþættina en þegar menn eru að ræða þá heyrist gjarnan að þeir hafi ekki skilað sér til manna og „enginn hafi fengið neitt“. Þetta er heldur ekki rétt en til að gera hlutina sýnilegri þá var í núverandi sanmingi selt inn bókunarákvæði sem beinlínis kveður á um að við getum fylgst með að þeir peningar sem við sömdum um að færu í viðbótarþætti skili sér þangað. Hér ber þó að benda á eitt: Viðbótarþættir á grunnlaun eru ein- staklingsbundnir og eru hugsaðir sem slíkir. Þessu má að sumu leyti líkja við framgangskerfi þannig að ef menn eru til dæmis að taka að sér sérstök verkefni eða telja sig á einhvern annan hátt vera verðugir þess að fá viðbótarþætti þá skulu menn sækja um þá. Hins vegar þýðir þetta ekki að allir fái það sama. Menn hafa vissulega ákveðið að sumir þættir eins og „helgun" og doktorspróf skuli gefa sömu tölu allstaðar en aðrir þættir eru ein- staklingsbundnir og þó segi í sanmingnum að það geti numið allt að 15 eða 20% þá þýðir það ekki að allir fái 15 eða 20% og sumir fá kannski ekki neitt. Svona einstaklingbundin laun eru kannski eitthvað sem ekki öllum líkar en almennt má segja að þetta er ekki svo stór hluti heildarlauna og gefi mönnum ákveðinn sveigjanleika og þegar menn læra betur á þetta þá verði sátt um þetta. Hvað þá um framtíðina? Hvert stefnum við? Fyrir það fyrsta þá er að velta fyrir sér hvort læknar munu áfram semja sem einn (eða næstum því) stór hópur eða hvort við teljum hag okkar betur borgið með að skipta okkur í minni hópa sem eiga þá eitt- hvað sameiginlegt sem hinir eiga ekki. Svarið við þessu veltur kannski nokkuð á hvernig tekst til hjá skurðlækum. í mínum huga var í nýliðnum sanm- ingaviðræðum á nokkrum stöðum þar sem atriði fengust í gegn vegna einmitt stærðar okkar. Það er styrkur í fjölda. Hins vegar má einnig segja að þegar verið er að semja fyrir stóran mislitan hóp þá þarf að vera góð samstaða ef leggja á sérstakar áherslur á hluta hópsins, sbr. unglækna í þessum samningi. Ástæðurnar fyrir að einn hópur fær meira en annar þurfa að vera nokkuð ljósar og það er mín tilfinning að einn hópur einfaldlega telji sig betri og mikilvægari lækna en aðra hreinlega gangi ekki upp. Er þá einhver lausn til? Að mínu viti er svo. Eg tel að við eigum áfram að semja sem einn stór hópur en kjarasamningurinn verði að vera sveigjanlegri svo að einstakir læknar eða hópar geti aðlagað sig á hverjum stað og fengið kjör við hæfi. Við getum séð þessa þróun til dæmis í Svíþjóð þar sem menn eru miðlægt í raun að semja um grunn sem allir hafa, en æ stærri hluti samnings- ins hefur verið fluttur á einstaka staði og þar hafa menn meira frjálsræði. Þetta er auðvitað ekkert alveg svona einfalt því að þessu verður að fylgja að mönnum sé þá leyft að semja staðbundið í raun og veru en ekki sé sífellt verið að krukka í þetta frá ráðuneytinu og að læknar læri að semja á þennan hátt ásamt því að gera sér grein fyrir að ekki eru þá allir með sama samning og menn geti borið mismikið úr býtum. Þarna má líka sjá fyrir sér hóp á vegum Læknafélags íslands sem hjálpar eftir þörfum þar sem samningar ganga ekki snuðrulaust fyrir sig. Þessi lausn held ég að geti gefið okkur bæði kosti þess að vera sem einn stór hópur í mikil- 390 Læknablaðið 2006/92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.