Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 62

Læknablaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 62
SÉRLYFJATEXTAR CRESTOR AstraZeneca: SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS AstraZeneca^ Crestor 5 mg, 10 mg, 20 mg og 40 mg filmuhúöaöar töflur: Hver tafla inniheldur 5 mg, 10 mg, 20 mg eða 40 mg rósúvastatín (sem rósúvastatln kalslum). Ábendingar: Eðlislæg kólesterólhækkun I blóði (tegund lla, þar með talin arfblendin ættgeng kólesterólhækkun í blóði) eða blönduð blóðfitutruflun (mixed dyslipidaemia) (tegund llb), sem viðbót við mataræði þegar sérstakt mataræði og önnur meðferð án lyfja (t.d. líkamsþjálfun og megrun) hefur ekki borið viðunandi árangur. Arfhrein ættgeng kólesterólhækkun I blóði sem viðbót við sérstakt mataræði og aðra blóðfitulækkandi meðferð (t.d. LDL sfun (LDL apheresis)) eða ef slfk meðferð á ekki við. Skammtar og lyfjagjöf: Áður en meðferð er hafin ætti sjúklingurinn að vera á stöðluðu kólesteróllækkandi fæði, sem skal haldið áfram meðan á meðferð stendur. Skammtur á að vera einstaklingsbundinn og I samræmi við meðferðarmarkmið og svörun sjúklings við meðferðinni, fylgja skal gildandi viðmiðunarreglum. Ráðlagður upphafsskammtur er 5 eða 10 mg til inntöku einu sinni á dag, bæði hjá sjúklingum sem ekki hafa áður fengið statín og sjúklingum sem eru að skipta úr öðrum HMG-CoA redúktasa hemli. Við val á upphafsskammti á að taka tillit til kólesterólgildis viðkomandi sjúklings og hættu á hjarta- og æðasjúkdómum I framtlðinni sem og hugsanlegrar hættu á aukaverkunum. Hækka má skammtinn að næsta skammti að fjórum viknum liðnum sé þess þðrf. I Ijósi fjölgunar á tilkynningum um aukaverkanir 40 mg skammtsins samanborið við lægri skammta ætti eingðngu að Ihuga hækkun skammts að hámarksskammtinum 40 mg hjá sjúklingum með kólesterólhækkun I blóði á háu stigi og I mikilli hættu á hjarta- og æðasjúkdómum (sérstaklega þeir sem eru með ættgenga kólesterólhækkun I blóðl), sem ekki ná meðferðarmarkmiðum með 20 mg og hjá þeim sem verða I reglulegu eftirliti. Mælt er með að sérfræðingur hafi yfirumsjón þegar byrjað er að gefa 40 mg skammt. Crestor má taka á hvaða tlma dags sem er, með eða án matar. Notkun handa börnum: Öryggi og verkun hefur ekki verið staðfest hjá bðrnum. Reynsla af notkun hjá bömum er takmörkuð og bundin við lltinn hóp barna (8 ára og eldri) með arfhreina ættgenga kólesterólhækkun I blóði. Þess vegna er notkun Crestor ekki ráðlögð handa bömum að svo stöddu. Notkun handa öldruðum: Mælt er með 5 mg upphafsskammti hjá sjúklingum >70 ára. Ekki er þörf á öðrum skammtabreytingum I tengslum við aldur. Skammtar handa sjúkllngum með skerta nýrnastarfseml: Ekki er þörf á að breyta skömmtum hjá sjúklingum með væga til I meðallagi skerta nýrnastarfsemi. Ráðlagður upphafsskammtur handa sjúklingum með I meðallagi skerta nýrnastarfsemi (kreatlnln úthreinsun <60 ml/mfn.) er 5 mg. Ekki má nota 40 mg skammtinn handa sjúklingum með I meðallagi skerta nýrnastarfsemi. Ekki má nota Crestor handa sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi og á það við um alla skammta. Skammtar handa sjúkllngum með skerta llfrarstarfseml: Engin aukning varð á almennri þéttni (systemic exposure) rósúvastatlns hjá einstaklingum með Child-Pugh skor 7 eða lægra. Hins vegar hefur aukin almenn þéttni komið fram hjá einstaklingum með Child-Pugh skor 8 og 9. Hjá þessum sjúklingum ætta að hafa I huga að meta nýrnastarfsemina. Engin reynsla er af notkun hjá einstaklingum með Child-Pugh skor sem hærra en 9. Crestor er ekki ætlað sjúklingum með virkan lifrarsjúkdóm. Kynþáttur: Aukin almenn þéttni hefur sést hjá aslskum einstaklingum. Ráðlagður upphafsskammtur er 5 mg fyrir sjúklinga af aslskum uppruna. Ekki má nota 40 mg skammtinn hjá þessum sjúklingum. Skammtur handa sjúkllngum með þekkta áhættuþættl vöðvakvllla: Ráðlagður upphafsskammtur er 5 mg hjá sjúklingum með þekkta áhættuþætti vöðvakvilla. Ekki má gefa sumum þessara sjúklinga 40 mg skammtinn. Frábendingar: Ekki má nota Crestor: handa sjúklingum með ofnæmi fyrir rosuvastatini eða einhverju hjálparefnanna; handa sjúklingum með virkan lifrarsjúkdóm, þar með talið óútskýrða, viðvarandi hækkun á transamfnösum I sermi og hækkun á transamfnösum I sermi sem er meiri en þreföld eðlileg efri mörk (ULN [upper limit of normalj); handa sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi (kreatlnln úthreinsun <30 ml/mín.); handa sjúklingum með vöðvakvilla; handa sjúklingum sem fá ciclosporin samhliða; á meðgöngu og brjóstagjöf og handa konum á barneignaraldri sem ekki nota viðeigandi getnaðarvörn. Ekki má nota 40 mg skammtinn handa sjúklingum með þekkta áhættuþætti vöðvakvilla/rákvöðvalýsu. Sllkir þættir geta verið: I meðallagi skert nýrnastarfsemi (kreatlnln úthreinsun <60 ml/mln.); vanstarfsemi skjaldkirtils; saga eða fjðlskyldusaga um arfgenga vöðvasjúkdóma; saga um eituráhrif á vöðva við meðferð með öðrum HMG-CoA redúktasta hemli eða flbrati; misnotkun áfengis; ástand þar sem plasmagildi geta hækkað; asfskir sjúklingar; samhliða notkun flbrata. Sérstök varnaðarorö og varúðarreglur við notkun: Áhrlfá nýru: Próteinmiga greind með strimilprófi og aðallega upprunnin I plplum, hefur komið fram hjá sjúklingum sem höfðu fengið stóra skammta af Crestor, sórstaklega 40 mg en það var I flestum tilvikum tímabundið eða ósamfellt. Ekki hefur verið sýnt fram á að próteinmiga sé fyrirboði um bráðan eða versnandi nýrnasjúkdóm. Mat á nýrnastarfsemi skal höfð I huga við reglubundið eftirlit hjá sjúklingum sem fá 40 mg skammt. Áhrlf á belnagrlndarvöðva: Greint hefur verið frá áhrifum á beinagrindarvöðva hjá sjúklingum sem fá meðferð með Crestor, t.d. vöðvaverkjum, vöðvakvilla og I mjög sjaldgæfum tilvikum rákvöðvalýsu og á það við um allar skammta og sérstaklega við skammta >20 mg. Mællng kreatínkínasa: Kreatfnkfnasa (CK) ætti ekki að mæla eftir erfiðar æfingar eða þegar önnur llkleg ástæða fyrir CK hækkun er fyrir hendi sem getur ruglað mat á niðurstöðum. Ef grunnlína CK gildis er umtalsvert hækkuð (>5xULN) ætti að gera mælingu þvl til staðfestingar innan 5-7 daga. Ef endurtekin mæling staðfestir grunnllnu CK >5xULN, ætti ekki að hefja meðferð. Áður en meðferð er hafln: Eins og gildir um aðra HMG-CoA reduktasa hemla, á að ávlsa Crestor meö varúð til sjúklinga með þekkta áhættuþætti vöðvakvilla/rákvöðvalýsu. Slíkir þættir geta verið: skert nýrnastarfsemi; vanstarfsemi skjaldkirtils; eigin saga eða fjölskyldusaga um arfgenga vöðvasjúkdóma; saga um eituráhrif á vöðva við meðferð með öðrum HMG-CoA reduktasta hemli eða fíbrati; misnotkun áfengis; aldur > 70 ár; ástand þar sem plasmagildi geta hækkað; samhliða notkun fíbrata. Hjá þessum sjúklingum ætti að meta áhættu af meðferð á móti hugsanlegum ávinningi hennar og er klínískt eftirlit ráðlagt. Ef grunnlína CK gildis er umtalsvert hækkuð (>5xULN) ætti ekki að hefja meðferð. Meðan á meðferð stendur: Biðja ætti sjúklinga um að tilkynna þegar I stað óútskýrða vöðvaverki, þróttleysi eða krampa, sérstaklega ef einnig verður vart lasleika eða hita. Hjá þessum sjúklingum ætti að mæla CK-gildi. Hætta á meðferð ef CK-gildi eru umtalsvert hækkuð (>5xULN) eða ef vöðvaeinkenni eru alvarleg og valda daglegum óþægindum Qafnvel þó CK gildi eru s 5xULN). Ef einkenni lagast og CK gildi verður aftur eðlilegt, má Ihuga að hefja á ný meðferð með Crestor eða öðrum HMG-CoA redúktasta hemli og gefa minnsta skammt undir nánu eftirliti. Ekki er krafists reglulegs eftirlits með CK gildum hjá sjúklingum án einkenna. I kllnlskum rannsóknum komu engar vlsbendingar fram um aukin áhrif á beinagrindarvöðva hjá litlum hópi sjúklinga sem fókk Crestor og aðra meðferð samtímis. Aukin tíðni vöðvaþrota og vöðvakvilla hefur hinsvegar komið fram hjá sjúklingum sem fengu aðra HMG-CoA redúktasa hemla ásamt fíbrlnsýruafleiðum þ.m.t. gemflbrózlli, clclosporlni, nikótlnsýru, azól sveppalyfjum, próteasahemlum og makrólið sýklalyfjum. Gemflbrózll eykur hættu á vöðvakvilla þegar það er notað samhliða sumum HMG-CoA redúktasa hemlum. Þess vegna er ekki ráðlagt að nota Crestor og gemfibrozil á sama tíma. Ávinning af frekari breytingum á líplðgildum með samsettri notkun Crestor ásamt flbrati eða nlaclni skal vandlega meta á móti hugsanlegri áhættu slíkra samsetninga. Ekki má nota 40 mg skammtinn samhliða flbrötum. Ekki á að nota Crestor handa sjúklingum með bráðan, alvarlegan sjúkdóm sem bendir til vöðvakvilla eða gæti leitt til nýrnabilunar af völdum rákvöðvalýsu (t.d. blóðsýking, lágþrýstingur, meiriháttar skurðaðgerðir, áverki, alvarleg efnaskiptaröskun, innkirtlaröskun og truflun á saltajafnvægi eða krampa sem ekki er stjórn á). Áhrlfállfur: Eins og á við um aðra HMG-CoA redúktasa hemla, ætti að nota Crestor með varúð handa sjúklingum sem neyta áfengis I miklum mæli og/eða hafa sögu um lifrarsjúkdóm. Ráðlagt er að mæla lifrarstarfsemi áður en og þremur mánuðum eftir að meðferð er hafin. Hætta á meðferð með Crestor eða minnka skammta þess ef gildi transamínasa I sermi eru hærri en 3 eðlileg efri mörk. Hjá sjúklingum með slðkomna kólesterólhækkun (secondary hypercholesterolaemia) I blóði af völdum skertrar starfsemi skjaldkirtils eða nýrungaheilkennis (nephrotic syndrome), ætti að meðhöndla undirliggjandi sjúkdóm áður en meðferð með Crestor er hafin. Kynþáttur: Rannsóknir á lyfjahvörfum sýna aukna þóttin (exposure) hjá asískum einstaklingum samanborið við einstaklinga af hvftum kynþætti. Milliverkanir viö önnur lyf og aörar mllliverkanir: Clclosporln: Við samhliða meðferð með Crestor og ciclosporini var AUC gildi rosuvastatins að meðaltali 7 sinnum hærra en hjá heilbrigðum sjálfboðaliðum. Samhliða meðferð hafði ekki áhrif á plasmaþóttni ciclosporins. K-vitamín hemlar: Eins og á við um aðra HMG-CoA redúktasa hemla getur orðið hækkun á INR (International Normalised Ratio) við upphaf meðferðar með Crestor eða þegar skammtur er aukinn hjá sjúklingum sem samhliða fá meðferð með K-vítamín hemli (t.d. warfarini). INR getur lækkað þegar meðferð með Crestor er hætt eða skammtur er minnkaður. f sllkum tilvikum er viðeigandi eftirlit með INR æskilegt. Gemflbrozll og önnur blóðfltulækkandl lyf: Tvöföldun varð á Cmax og AUC rosuvastatins við samhliða notkun Crestor og gemfibrozils. Samkvæmt upplýsingum úr sórtækum rannsóknum á milliverkunum er engra lyfjahvarfa milliverkunar sem skipir máli að vænta við meðferð með fenofibrati en þrátt fyrir það getur komið fram milliverkun á lyfhrifum. Gemfibrozil, fenofibrat, önnur flbröt og blóðfitulækkandi skammtar (> eða jafnt og 1 g/dag) af nlaclni (nikótlnsýru) auka hættu á vöðvakvilla þegar þau eru gefin samtlmis HMG-CoA redúktasa hemlum, sennilega vegna þess að þeir geta valdið vöðvakvilla þegar þeir eru gefnir einir sór. Ekki má nota 40 mg skammtinn samhliða notkun fíbrata. Þessir sjúklingar eiga einnig að hefja meðferð með 5 mg skammtinum. Sýrublndandl lyf: Við samhliða gjöf Crestor með sýrubindandi mixtúru, dreifu sem innihélt ál- og magnesfumhýdroxfð lækkaði plasmaþéttni rosuvastatins um u.þ.b. 50%. Áhrifin voru minni þegar sýrubindandi lyfið var tekið 2 klst. á eftir Crestor. Klínfsk þýðing þessarar milliverkunar hefur ekki verið rannsökuð. Erytromycln: Samhliða notkun Crestor og erytromycins leiddi til 20% minnkunar á AUC (0-t) og 30% lækkunar á Cmax rosuvastatins. Þessi milliverkun gæti stafað af auknum þarmahreyfingum af vðldum erytromycins. Getnaðarvarnalyf tll Inntöku/uppbótarmeðferð með hormónum: Samhliða notkun Crestor og getnaðarvarnalyfja til inntöku leiddi til 26% aukningar á AUC etinylestradiols og 34% aukningar á AUC norgestrels. Þessa auknu plasmaþéttni ætti að hafa I huga þegar skammtur getnaðarvarnalyfs til inntöku er ákveðinn. Engar upplýsingar um lyfjahvörf eru fyrirliggjandi hjá einstaklingum sem fá Crestor og uppbótarmeðferð með hormónum samhliða og þess vegna er ekki hægt að útiloka svipuð áhrif. Hins vegar var samsetningin mikið notuð hjá konum I klínlskum rannsóknum og þoldist vel. önnur lyf: Samkvæmt upplýsingum úr sértækum rannsóknum á milliverkunum er ekki búist við neinum milliverkunum við digoxin sem hafa klínlska þýöingu. Cýtókróm P450 ensím: Niðurstöður in vitro og in vivo rannsókna sýna að rosuvastatin hvorki hemur nó hvetur cýtókróm P450 ísóensfm. Að auki er rosuvastatin lólegt hvarfefni fyrir þessi ísóenslm. Milliverkanir við rosuvastatin, sem hafa klínlska þýðingu, hafa hvorki komið fram við samhliða notkun fluconazols (CYP2C9 og CYP3A4 hemill) nó ketoconazols (CYP2A6 og CYP3A4 hemill). Samhliða notkun itraconazols (CYP3A4 hemill) og rosuvastatins olli 28% stækkun á AUC rosuvastatins. Þessi litla aukning er ekki talin hafa kllnlska þýðingu. Þess vegna er ekki að vænta milliverkana vegna umbrota fyrir tilstilli cýtókróm P450. Aukaverkanlr: Aukaverkanir sem hafa komið fram við meðferð með Crestor eru venjulega vægar og tfmabundnar. Innan við 4% þeirra sjúklinga sem fengu Crestor I klínfskum samanburðarrannsóknum þurftu að hætta I rannsókn vegna aukaverkana. Tlðni aukaverkana er flokkuð samkvæmt eftirfarandi: Algengar (>1/100, <1/10); Sjaldgæfar (>1/1.000, <1/100); Mjög sjaldgæfar (>1/10.000, <1/1.000); Koma örsjaldan fyrir (<1/10.000). Ónæmlskerfl. Mjög sjaldgæfar: Ofnæmi þar með talinn ofsabjúgur. Taugakerfl. Algengar: Höfuðverkur, sundl. Meltlngarfærl. Algengar: Hægðatregða, ógleði, kviðverkir. Húð og undlrhúð. SJaldgæfar: Kláði, útbrot og ofsakláði. Stoðkerfl, stoðvefur og beln. Algengar: Vöðvaverkir. Mjög sjaldgæfar: Vöðvakvilli og rákvöðvalýsa. Almennar aukaverkanlr. Algengar: Þróttleysi. Eins og á við um aðra HMG-CoA redúktasa hemla hefur tlðni aukaverkana tilhneigingu til að vera skammtaháð. Áhrlf á nýru: Próteinmiga, greind með strimilprófi og aðallega upprunnin I plplum, hefur komið fram hjá sjúklingum sem fá meðferð með Crestor. Breytingar á próteinmagni I þvagi úr engu eða snefilmagni I ++ eða meira, á einhverjum tlma meðan á meðferð með 10 og 20 mg stóð, komu fram hjá <1% sjúklinga og hjá um 3% sjúklinga sem fengu 40 mg. Breyting úr engu eða snefilmagni I + jókst minniháttar við 20 mg skammtinn. I flestum tilvikum dró úr próteinmigu eða hún gekk sjálfkrafa til baka þegar meðferð var haldið áfram og ekki hetur verið sýnt fram á að hún só fyrirboði um bráðan eða versnandi nýrnasjúkdóm. Áhrlf á belnagrlndarvöðva: Greint hefur verið frá áhrifum á beinagrindarvöðva hjá sjúklingum sem fá meðferð með Crestor, t.d. vöðvaverkjum, vöðvakvilla og I mjög sjaldgæfum tilvikum rákvöðvalýsu, og á það við um alla skammta og sérstaklega skammta > 20 mg. Skammtaháö aukning á CK gildum hefur komið fram hjá sjúklingum sem fengu rósúvastatln, meirihluti tilvikanna voru væg, án einkenna og tlmabundin. Ef CK gildi eru hækkuð (>5xULN), ætti að stöðva meðferð. Áhrlfá llfur: Eins og við á um aðra HMG-CoA redúktasa hemla, hefur komið fram skammtaháð hækkun á transamlnösum hjá fámennum hópi sjúklinga sem fengu rósúvastatln; meirihluti tilvikanna voru væg, án einkenna og tlmabundin. Helmlldaskrá 1. Jones PH, Davidson MH, Stein EA et al. Comparison of the Efficacy and Safety of Rosuvastatin Versus Atorvastatin, Simvastatin and Pravastatin Across Doses (STELLAR Trial), Am J Cardiol 2003; 92:152-160. Pakkningar og verö: Filmuhúðaðar töflur 5 mg: 28 stk. (þynnupakkað), kr. 4.258; 98 stk. (þynnupakkað), kr. 11.315. Filmuhúðaðar töflur 10 mg: 28 stk. (þynnupakkað), kr. 4.258; 98 stk. (þynnupakkað), kr. 11.315; 100 stk., kr. 12.548. Filmuhúðaðar töflur 20 mg: 28 stk. (þynnupakkað), kr. 6.213; 98 stk. (þynnupakkað), kr. 16.119; 100 stk., kr. 18.465. Filmuhúðaðar töflur 40 mg: 28 stk. (þynnupakkað), kr. 9.097; 98 stk. (þynnupakkað), kr. 27.624. Handhafi markaösleyfls: AstraZeneca A/S, Albertslund, Danmörk. Umboö á íslandl: Vistor hf., Garðabæ. ATC-flokkun: C 10 A A 07. Afgrelðsla: R. Grelösluþátttaka: 0. Sjá nánari upplýsingar í Sórlyfjaskrá. AstraZeneca, desember 2005 Ol CRESTOR rósúvastatín 418 Læknablaðið 2006/92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.