Læknablaðið - 15.09.2006, Side 3
RITSTJÓRNARGREiniAR
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
587 112 hringja- hnoða
Karl Andersen
FRÆÐIGREINAR
591 Endurlífgunartilraunir utan sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu árin
1999-2002
Hjalti Már Björnsson, Sigurður Marelsson, Viðar Magnússon,
Garðar Sigurðsson, Gestur Porgeirsson
Margvíslegar breytingar hafa átt sér stað frá því síðast var gerður upp árangur af
endurlífgunartilraunum utan sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu. Árið 1996 tók
Neyðarlínan til starfa sem hefur einfaldað almenningi mjög að hringja eftir aðstoð
í hið samræmda neyðarnúmer 112. Á sama tíma var þjónustusvæði neyðarbílsins
stækkað og fyrirkomulagi útkalla breytt og tekið upp stefnumótakerfi sem byggist
á því að í neyðarútköllum fara tveir sjúkrabflar: neyðarbíll með lækni frá slökkvi-
stöð í Skógarhlíð og sjúkrabíll af þeirri slökkvistöð sem næst er. Petta á að stytta
tímann þar til fyrsti sjúkrabíll er kominn á vettvang og talið nauðsynlegt vegna
stækkunar höfuðborgarsvæðisins.
599 Heilsuefling í leikskólum í Reykjavík - áhættumat árið 2000
Ágústa Guðmarsdóttir, KristinnTómasson
Rannsókn gerð á 16 leikskólum þar sem þeir voru metnir í fjóra flokka eftir vinnu-
umhverfismat og rannsókn Vinnueftirlitsins byggðri á spurningalista sem starfsfólk
svaraði. Eins og öllum má ljóst vera fylgir því umtalsvert andlegt og líkamlegt álag
að starfa á leikskóla, en jafnframt er þar til staðar mjög mikil starfsánægja. Hér var
einkum skoðaður aðbúnaður, vinnuumhverfi og líkamleg þægindi starfsfólks.
609 íslensk börn með ofvirkniröskun - lýsing á nokkrum þáttum
í meðgöngu og fæðingu
Margrét Valdimarsdóttir, Agnes Huld Hrafnsdóttir, Páll Magnússon,
Ólafur Ó. Guðmundsson
Ofvirkniröskun (athyglisbrestur með ofvirkni) er klínískt heilkenni athyglisbrests,
hreyfiofvirkni og hvatvísi. Einkennin koma í ljós á barnsaldri og geta haldist fram
á fullorðinsár. Rannsóknir benda til margra orsaka en að erfðaþátturinn vegi
þyngst. Fram komu marktæk tengsl milli ofvirkniröskunar hjá barni og þáttanna:
aldur móður innan við tvítugt við fæðingu barns, að barnið hafi verið fyrirburi eða
hafi verið tekið með keisaraskurði eða töngum. Um er að ræða lýsandi rannsókn en
enn eru ekki nægar forsendur til staðar til að draga ályktanir um orsakasamhengi
áhættuþátta.
9. tbl. 92. árg. september 2006
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
564 4104 -564 4106 (fax)
Ritstjórn
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Karl Andersen
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Jóhannes Björnsson,
ábm. og ritstjóri
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@iis.is
Blaðamaður
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@iis.is
Upplag
1700
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun og bókband
íslandsprent ehf.
Steinhellu 10
221 Hafnarfirði
Pökkun
Plastpökkun ehf.
Skemmuvegi 8m
200 Kópavogi
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið 2006/92 583