Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 26

Læknablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 26
FRÆÐIGREINAR / HEILSUEFLING í LEIKSKÓLA anlega geta slíkar aðstæður skapast í vinnuum- hverfi starfsmanna á leikskólum til dæmis vegna lágra launa og valdið því að smám saman þrói reyndir starfsmenn með sér mikil óþægindi vegna langvarandi streituviðbragða. Hugsanlega veikir það niðurstöður rannsókn- arinnar að starfsmenn meta sjálfir óþægindi sín og heilsufar. Þeir gera mismunandi kröfur og hafa ólíkar viðnþcgí)gnvart sjálfum sér. Sterk- ara hefði verið að meta það líka með skoðun utanaðkomandi aðila en á því voru ekki tök. I þessu sambandi má benda á, að í rannsókn Itala á stórum hópi starfsmanna stórverslana (21) kemur fram að læknar meta að um 34,5% starfsmanna hafi engin óþægindi frá hrygg síðastliðna 12 mán- uði, út frá líkamsskoðun, spurningalista og út frá aflfræði áhættugreiningar. I þessu verkefni eru að meðaltali 70% starfsmanna sem skrá óþægindi frá mjóbaki síðustu 12 mánuði. Vinnumatseinkunnin gefur tækifæri til að bera saman úttekt á vinnuumhverfi við mat starfsmanna sjálfra á vinnuumhverfi sínu, líkamsbeitingu og lík- amlegri og andlegri líðan. Einkunnin gefur nýja möguleika á að meta mismunandi leikskóla út frá sýnilegu vinnuumhverfi, en mikilvægt er að tryggja betri prófun og stöðlun á sjálfu matinu, sem er of huglægt í dag. Matið sýnir einnig að mikilvægt er að gera áhættumat sem byggir á fleiri en einum þætti, til dæmis sérhæfðu mati á vinnuumhverfi, sem staðfest er af starfsmönnum, að minnsta kosti að hluta til, en síðan er andlegi þátturinn tengdur öðru, svo sem menntun, aldri og stærð leikskóla. Mikilvægt er að draga fram þá miklu starfs- ánægju sem starfsmenn lýsa við svörun á spurn- ingum um starfsanda, hrós og stuðning sem starfs- menn sýna hvor öðrum. Þessir þættir hafa ekki verið dregnir fram áður með svo jákvæðum hætti svo vitað sé. Verkefnið hefur fengið mjög jákvæð viðbrögð á meðal starfsmanna og leikskólarnir voru spenntir að fá að taka þátt. Það má leiða líkur að því að starfsmenn hafi farið að hugsa um vinnuumhverfið sem þáll sem hægt væri að hafa áhrif á. Áður en verkefnið fór af stað réðu ríkjum viðhorfin: Hvað er best fyrir börnin og hér gerum við það sem þarf að gera, hvernig sem farið er að því. Lokaorð Þar sem aðbúnaðurinn er metinn verstur einkenn- ast vinnustaðirnir af litlum leikskólum sem hafa elstu starfsmennina sem hafa unnið lengst og á sama stað og þar sem meirihluti er faglærður bæði á starf og líkamsbeitingu. Þar er einkennandi mikil starfsánægja, samheldni og hrós, en þar eru einnig mestu líkamlegu óþægindin. Þar meta starfsmenn líkamlegt erfiði meira en andlegt en meta aðbún- aðinn betri en vinnumatseinkunn sýnir. Þrengsli, hávaði, annar aðbúnaður og aldur er nátengdur líkamlegri líðan. Andleg og félagsleg líðan bætir ekki upp líkamlega líðan til langs tíma. Byggt á þessu má draga þá ályktun að: Starfs- ánægja er ekki alltaf til vitnis um að vinnuum- hverfið sé í lagi. Þakkir eru færðar öllum starfsmönnum Leik- skóla Reykjavíkur sem komu að þessu verkefni á einn eða annan hátt. Heimildir 1. Bright KA, Calabro K. Child Care Workers and workplace hazards in the United States: Overview of research and implications for occupational health professionals. Occup Med 1999; 49:427-37. 2. Calabro KS, Bright KA, Cole FL, Mackey T, Lindenberg J, Grimm A. Child Care Work. Organizational Culture and Health and Safety. AAOHN Journal 2000; 48(10): 480-6. 3. King PM, Gratz R, Scheuer G, Claffey A. The ergonomics of child care: conducting worksite analyses. WORK 1996; 6: 25- 32. 4. Gratz RR, Claffey A. Adult Health in Child Care: Health Status, Behaviors, and Concerns of Teachers, Directors, and Family Child Care Providers. Ear Childhood Res Quarterly 1996;11:243-67. 5. Owen BD. Intervention for Musculoskeletal Disorders Among Child-Care Workers. Pcdiatrics 1994; 94/Suppl. 60:1077-9. 6. Calder J. Occupational Health and Safety Issues for Child- Care Providers. Pediatrics 1994; 94/Suppl. 60:1072-4. 7. HelgadóttirB,RafnsdóttirGL,GunnarsdóttirHK,Hrafnsdóttir KÓ, Tómasson K, Jónsdóttir S, et al. Könnun á heilsufari, líöan og vinnuumhverfi starfsfólks á leikskólum í Reykjavík (skýrsla). Reykjavík: Vinnueftirlitið, 2000. www.vinnueftirlit. is/page/research 8. SPSS. SPSS Base 7.5 for Windows, User's Guide. In: Chicago, IL.: SPSS, 1997. 9. Wayne WD. Biostatistics: A Foundation for Analysis in the Health Sciences. John Wiley&Sons,Toronto 1987:610-5. 10. Arbejdstilsynet. Arbejdsmiljpvejviser 46. Dag- og dögn- institutioner for b0rn og unge (serial online) 1999 (cited 2000 Feb).: www.at.dk/sw5808.asp#afs5 11. Swanson NG, Piotrkowski CS, Curbow B, Graville S, Kushnir T, Owen D. Occupational health and Safety Issues in Child -Care work. Pediatrics 1994; 94/Suppl. 60:1079-80. 12. Gratz RR, Claffey A, King P, Scheuer G. The Physical Demands and Ergonomics of Working with Young Children. Ear Child Develop Care 2002; 172:531-7. 13. Vinnueftirlitiö. Hávaði og heyrnarvernd. Reykjavfk: Vinnueftirlitiö 2001. 14. Branchearbejdsmilj0rádet Social & Sundhed. St0j i Daginstitutioner (serial online) 2001 (cited 2002 Nov). 15. Arbejdstilsynet. St0j og akustik (serial online)2001 (cited 2004 Nov). 16. Haakensen EB. Má det st0ye i barnehagen? (serial online) 2005 (cited 2005 Nov). ? 17. Siebert GW. Hazardous Noise of a Child Care Center. Am Ind HygAssocJ 1989; 50: A809. 18. Markon P, LeBeau D. Health and safety at work for day-care educators. Chicoutimi 1994; Canada: Universite du Quebec. 606 Læknablaðið 2006/92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.