Læknablaðið - 15.10.2006, Side 9
FRÆÐIGREINAR / LIFRARBÓLGA
Lifrarbólga af völdum lifrarbólguveira
B og C hjá innflytjendum á Islandi
Guðrún Jónsdóttir1
Námslæknir
Haraldur Briem2
Smitsjúkdóma-
Læknir
Þorsteinn Blöndal3
Lungnalæknir
Gestur Pálsson4
Barnalæknir
Sigurður Olafsson’
Lyf- og meltingarlæknir
Þórólfur Guðnason4
Smitsjúkdóma-
LÆKNIR BARNA
Læknadeild Háskóla
íslands1, sóttvarnarlæknir2,
lungna- og berklavarnadeild
Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur3,
Barnaspítala Hringsins4,
meltingarlækningaeining
Landspítala.5
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Sigurður Ólafsson
Landspítala
sigurdol@landspitali. is
Lykilorð: lifrarbólga B,
lifrarbólga C, innflytjendur,
faraldsfrœði.
Ágrip
Inngangur: Lifrarbólga B og C eru mikið heilsu-
farsvandamál í heiminum. Algengi þessara sjúk-
dóma er mjög mismunandi eftir landsvæðum. Hér
á landi hefur nýgengi lifrarbólgu B og C aukist á
undanförnum árum. Jafnframt hefur fjöldi inn-
flytjenda. meðal annars frá löndum þar sem veiru-
lifrarbólga er landlæg, aukist verulega. Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna faraldsfræði lifr-
arbólgu B og C hjá innflytjendum á íslandi.
Efniviður og aðferðir: Kannaðar voru móttöku-
skrár lungna- og berklavarnadeildar Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur og göngudeildar
smitsjúkdóma á Barnaspítala Hringsins tímabilið
2000-2002 en á þessar deildir var flestum innflytj-
endum frá löndum utan EES vísað til skoðunar.
Klínískar upplýsingar fengust úr sjúkraskrám
göngudeilda Landspítala. Athugað var uppruna-
land og niðurstöður veirurannsókna og lifrarprófa.
Einnig var aflað upplýsinga úr smitsjúkdómaskrá
sóttvarnarlæknis og hjá Útlendingaeftirliti um
fjölda útgefinna dvalarleyfa.
Niðurstöður: Rannsóknin tók til um 70% innflytj-
enda frá löndum utan EES sem fengu dvalarleyfi á
tímabilinu. Blóðsýni var tekið úr 2946 einstakling-
um. Greindust 83 (2,8%) með lifrarbólgu B og
24 (0,8%) með lifrarbólgu C. Algengi lifrarbólgu
B var hæst hjá innflytjendum frá Afríku 11/171
(6,4%; 95% CI: 3,3-11,2%) og lifrarbólgu C hjá
innflyljendum frá Austur-Evrópu 16/1502 (1,1%;
95% CI: 0,6-1,7%) en 482 (16%) höfðu merki um
fyrri sýkingu af völdum lifrarbólgu B. Af öllum
tilkynntum tilfellum af lifrarbólgu B voru innflytj-
endur 56% og af lifrarbólgu C 10%.
Ályktanir: 1. Meirihluti þeirra sem greindust á
tímabilinu með lifrarbólgu B hér á landi voru
innflytjendur. 2. Lifrarbólga B var algengari hjá
innflytjendum en lifrarbólga C. 3. Algengi lifr-
arbólgu B réttlætir áframhaldandi skimun hjá inn-
flytjendum enda er hægt að takmarka útbreiðslu
sjúkdómsins með bólusetningum.
Inngangur
Lifrarbólga B og C eru mikið heilsufarsvandamál
í heiminum og eru ein helsta orsök skorpulifrar og
lifrarfrumukrabbameins (1).
ENGLISH SUMMARY
Jónsdóttir G, Briem H, Blöndal Þ, Pálsson G, Guðnason Þ, Ólafsson S
Viral hepatitís B and C among immigrants in lceland
Læknablaðið 2006; 92: 669-73
Background: Viral hepatitis B and C are a major health
problem worldvide. The prevalence of these diseases
varies throughout the world. In lceland, the incidence of
hepatitis B and C has increased in recent years. At the
same time, the number of immigrants from countries
where viral hepatitis is endemic, has also increased. The
aim of this study was to investigate the epidemiology of
hepatitis B and C among immigrants in lceland.
Material and methods: Immigrants from outside the
European Economic Area (EEA) were screened for
hepatitis B and C. Medical records for the years 2000-
2002 were reviewed for country of origin, viral serology
and liver transaminases. Information was gathered
from the State Epidemiologist’s central registry of
notifiable diseases and from the lcelandic Directorate of
Immigration on the number of residence permits issued.
Results: 70% of all immigrants from countries outside
the EEA during the study period were included in
the study. Blood samples were obtained from 2946
immigrants. 83 (2.8%) had hepatitis B and 24 (0.8%) had
hepatitis C. Prevalence of hepatitis B was highest among
immigrants from Africa, 11/171 (6.4%; 95% Cl: 3.3-
11.2%) and hepatitis C among immigrants from Eastern
Europe, 16/1502 (1.1%; 95% Cl: 0.6-1.7%). 482 (16%)
had serological markers of previous hepatitis B infection.
Of all registered cases of hepatitis B, immigrants were
56% and of hepatitis C 10%.
Conclusions: 1. Majority of those diagnosed with
hepatitis B during the study period were immigrants. 2.
Among immigrants, hepatitis B was more prevalent than
hepatitis C. 3) The high prevalence of hepatitis B justifies
screening for the disease in this population.
Key words: hepatitis B, hepatitis C, immigrants,
epidemiology.
Correspondance: Sigurður Ólafsson,
sigurdol@landspitali.is
Læknablaðið 2006/92 669