Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 38
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Læknanemar í læknafélagi? Sigurbjörn Sveinsson form@lis.is Höfundur er formaður stjóraar LÍ. I pistlunum Af sjónarhóli stjórnar birta stjórnarmenn LI sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Fyrir rúmum áratug þegar ég tók sæti í stjórn Læknafélags íslands (LI) bar töluvert á erfiðum samskiptum unglækna og forystu félagsins. Svo hafði verið um nokkurra ára skeið og virtist heldur bæta í en draga úr. Mér sem aðkomumanni fund- ust tilefnin oft léttvæg eða að minnsta kosti ekki þess eðlis að gæfu tilefni til hurðarskella og ann- arrar fyrirferðar. Eg minntist þess ekki að ástandið hefði verið svona 15 árum áður þegar ég sat í stjórn LI fyrir unglækna en vera má að sá friður, sem þá ríkti í stjórn félagsins, hafi stafað af skorti á ágrein- ingi um kjaramál. Þau hafa enda jafnan verið erfiðasta úrlausnarefni kynslóðanna í LÍ. En tilfinning unglæknisins í stjórn á þeim tíma var mun frekar um stolt og ábyrgð en fyrir nýjum vígvelli eftir prófafargan læknadeildar. Samskipti unglækna og LI fóru bara versnandi undir lok síðustu aldar og óþarfi er að rifja upp hinn sögulega skilnað Félags ungra lækna (FUL) við LÍ í miðjum frágangi kjarasamnings vorið 2002. Þetta ástand var auðvitað erfitt fyrir stjórn LÍ og formann þess og krafðist skýringar og við- unandi úrlausnar. Óánægja unglækna með kjör var skiljanleg og þeir gerðu sanngjarnar athuga- semdir bæði við grunnlaun sín og samningsbundna meðferð á vinnutíma og frí honum tengdum. Hins vegar virtust mér unglæknar almennt koma harka- lega niður í samfélagi lækna og upplifa félagslegt umhverfi LI framandi og hin mörgu sameiginlegu mál önnur en kjaramál tæplega á vetur setjandi. Samninganefnd LI brást við hinu fyrra úrlausn- arefni með ítarlegum undirbúningi kröfugerðar þar sem málefni unglækna fengu veglegan sess eða með öðrum orðum forgang. Var hlutur þeirra óumdeilanlega réttur meira en annarra í síðasta kjarasamningi. Stjórnin velti því síðan fyrir sér hvernig lending læknanema gæti orðið félagslega mýkri í röðum lækna og komu fulltrúar Félags læknanema á fund hennar til að ræða þessi mál síðastliðinn vetur. Ur varð sú hugmynd að þeir læknanemar, sem aðild eiga að FUL (aðildarfélagi LI), nemar á 5. og 6. ári, verði félagar í LI fyrir þá aðild. Hefur stjórnin gert tillögur að lagabreyt- ingum í þessu skyni (sjá heimasíðu), sem kynntar voru á síðasta aðalfundi og mun bera þær upp að nýju að öllu óbreyttu. FUL mun á næsta aðalfundi væntanlega breyta lögum þannig að umrædd- ir læknanemar verða fullgildir meðlimir FUL. Þegar læknanemar skyldu hefja störf á Landspítalanum síðastliðið vor kom í ljós að yfirstjórn sjúkrahússins hafði breytt einhliða kjörum þeirra frá fyrra ári. Læknanemar voru að vonum ósáttir við þessa niðurstöðu, höfðu þó engan samning og yfirstjórnin að öllum líkindum í réttu skjóli laganna. Þegar formaður FUL reyndi svo að tala máli þeirra bæði gagnvart spítala og almenningi fékk hann kárínur frá yfirmönnum sínum eins og hann hefur greint frá á öðrum vett- vangi. Þessi staða var og er ómöguleg bæði fyrir læknanema og ekki síður lækna, þar sem hún getur skapað óvissu í upphafi hvers orlofstíma og óróleika á vinnustað. Því er það allra hagur að læknanemar hafi stuðning af stéttarfélagi. Síðasti aðalfundur félagsins samþykkti eftirfar- andi ályktun: „Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn á Egilsstöðum dagana 1. og 2. september 2006, felur stjórn félagsins að koma inngöngu læknanema í félagið í framkvæmd.” í umræðum um þessa ályktunartillögu komu fram vangaveltur um stöðu læknanema gagnvart læknafélögum í nágrannalöndum. I máli Sigurðar E. Sigurðssonar, varaformanns LÍ, kom fram að hann mælti ein- dregið með þessari breytingu á lögum LÍ og taldi að ungt fólk, sem von bráðar yrði læknar, myndi flytja með sér ferskan anda og kraft og að ekki væri hægt að ímynda sér neitt það við veru þess í LÍ, sem skaðað gæti hagsmuni eða ímynd lækna í bráð og lengd. Vitnaði hann meðal annars í reynslu Norðmanna, sem hafa farið þessa leið, gert eldri læknanema að fullgildum félögum í norska lækna- félaginu og eru mjög sáttir við reynslu sína. Eva Nilsson Bágenholm, formaður sænska læknafélagsins, segir aðspurð í bréfi til mín, að í Svíþjóð hafi læknanemar eigið félag, Félag lækna- nema. Þeir hafi mikil áhrif innan læknafélagsins; annars vegar eigi þeir 12 fasta fulltrúa á aðalfundi (af um 143) og hins vegar áheyrnarfulltrúa með málfrelsi í stjórn læknafélagsins sem geti haft mikil áhrif á umræðu. Jafnframt hafa þeir einn fulltrúa með atkvæðisrétt í samninganefnd ásamt fulltrúa í kennslu- og vísindanefnd. Aðild að félagi lækna- nema gefur aðild að sænska læknafélaginu. Stjórn Félags læknanema fær aðstoð frá læknafélaginu til þess að reka öflugt starf. Hún segir Félag lækna- nema mjög þýðingarmikið þegar kemur að nýlið- un í læknafélaginu. Orðrétt segir hún: „Okkur er mjög í mun að hafa sterka nemendahreyfingu innan okkar félags því þau eru framtíðin!” Stjórn Læknafélags íslands mun hlýða fyrirmælum aðalfundar á Egilsstöðum og vinna þessu máli brautargengi. 698 Læknablaðið 2006/92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.