Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 59

Læknablaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BRÁÐAÚTKÖLL AÐKOMUSV/EÐI VIND STEFNA eiga að vera hluti af útbúnaði. Eitt sett af heyrna- skjólum með talkerfi þarf vera aftur í flugvél svo að hægt sé að eiga samskipti við flugmenn án þess að þurfa að færa sig úr stað. Tryggja skal að nægur mannskapur sé til taks á flugvelli til að flutningur sjúklings í og úr flugvél sé öruggur. Flugmenn hefja flugtak eftir að sjúkra- flutningamenn hafa gefið merki um að búið sé að ganga tryggilega frá sjúklingi og búnaði. Sjúkra- flutningamenn skulu alla jafnan sitja í sætum sfnum með sætisbeltin fest meðan á flugi stendur þegar ekki er verið að sinna sjúklingi. Sjúklingur skal hafður í tryggilega niðurfestum börum með öryggisólar spenntar allt flugið. Fylgdarmenn sjúklinga (ættingjar eða aðrir) skulu sitja með sætisbelti spennt allt flugið þar sem tryggt er að þeir trufli ekki störf áhafnarinnar. Sérstaklega skal reyna að takmarka alla notkun oddhvassra hluta í flugrými eftir að flug hefst. Flelstu lyf sem líklegt er að þurfi að nota í flutningi á að vera búið að draga upp. Allir viðbótarhlutir í flugrými skulu festir tryggilega niður svo sem töskur, súrefniskútar, sprautudælur, monitorar og öndunarvél. Ef verið er að flytja sjúkling í annarlegu ástandi sem getur með einhverju móti ógnað flugöryggi, skulu lögreglumenn fylgja viðkomandi sjúklingi og skal hann festur í börur með handjárnum. í lengri sjúkraflugum er oft þörf á að bæta viðbótareldsneyti á flugvélina. Af öryggisástæðum er helst beðið með að flytja sjúkling um borð á meðan verið er að setja eldsneyti á flugvélina. Óheimilt er að opna dyr flugvélar meðan hreyflar eru enn í gangi. Að taka að móti þyrlu Ef þyrla er væntanleg til aðstoðar á vettvang þurfa þeir sem eru á staðnum ávallt að reyna að finna hentugan lendingarstað í nágrenninu. Flaldin eru sérstök námskeið í móttöku þyrlu og sé þess nokk- ur kostur ætti aðili með slíka sérþekkingu að taka að sér stjórnun á jörðu niðri. Lendingarstaður þyrlu þarf að vera á auðu svæði og að minnsta kosti 30 metrar í þvermál. Undirlag þarf að vera slétt, hart og ekki fokgjarnt og festa þarf niður allt sem fokið getur. Svæðið allt þarf að vera laust við hindranir, færa þarf bfla með loftnet í örugga fjarlægð. Halli lendingarsvæðisins má ekki vera meiri en 5°. Ef lenda þarf í snjó er æskilegt að reyna að finna snjólausan hól. Pyrla lendir alltaf upp í vindinn. Bíða skal eftir leyfi frá áhöfn þyrlunnar til að nálgast þyrluna og þegar gengið er að henni skal koma að framan eða frá hlið. Við afturhluta þyrlunnar er algert bann- svæði. Þegar gengið er að þyrlunni þarf að vera hálfboginn og koma að henni neðan úr brekku ef lent er í halla. Ekki má fara með bíl eða farartæki undir þyrluspaðana. Að lokum hvetjum við alla lækna til að fara varlega við störf sín á vettvangi. Þakkir Jón Bjartmarz, Slysavarnarfélagið Landsbjörg Helga Magnúsdóttir Auðunn Kristinsson Við þyrluflug að nœturlagi notar áhöfnin oft nœt- ursjónauka. Sé það gert á ekki að lýsa upp lending- arstað nema þess sé óskað. Efóskað er eftir lýsingu er hœgt að nota blys sem lendingarstjóri stendur með um 20 metra fyrir framan lendingarstaðinn í stefnu vinds. Einnig er hœgt að nota bílljós til að lýsa, er þá best ef tveir bílar geta lýst upp lend- ingarstað úr um 100 metra fjarlœgð auk þess sem bíll sme er um 30 metrum fyrir framan þyrlu er með Ijós blikkandi. Læknablaðið 2006/92 719
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.