Læknablaðið - 15.10.2006, Síða 28
FRÆÐIGREINAR / HRÖRNUN AUGNBOTNA
5a. nýœðamyndim
5c. örvefsmyndun
Skilgreiningar á sjóndepru (WHO)
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur
sett fram eftirfarandi skilgreiningar á sjóndepru,
sem margar af stærri faraldsfræðirannsóknum í
augnsjúkdómum nota (10).
Sjónskerðing eða sjóndepra (low vision) er
skilgreind sem sjónskerpa minni en 6/18 á betra
auga með besta gleri eða sjónvídd minna en 20°.
Með slíka sjón er lestur torveldur með venjulegum
lestrargleraugum.
Lögblinda (legal blindness). Talað er um lög-
blindu þegar sjónskerpa er 6/60 eða minna á betra
Mynd 6. Fyrri skýringarmyndin sýnir nýœðamyndun undir litþekju og seinni myndin
sýnir blœðingu orsakaða afnýœðum í litþekjunni. (8)
auga. Lestur með bestu hjálpartækjum takmarkast
við stórar fyrirsagnir en sjónvarpsáhorf er lítt eða
ekki mögulegt.
Blinda. Sjónskerpa er þá minna en 3/60 á betra
auga með besta gleri eða sjónsvið minna en 10°.
Með slíka sjón eiga menn erfitt með að fara um
á ókunnum slóðum og lestur er ekki mögulegur,
jafnvel með bestu sjónhjálpartækjum.
Sjónskerpubreytingar í AMD
Einkenni sjúklinga með lokastig AMD koma fyrst
og fremst fram sem sjóntap og er það mismunandi
eftir tegund og stigi sjúkdómsins. Sjóntapið hefur
áhrif á skörpu sjónina (central vision) en hliðarsjón
helst yfirleitt óbreytt. Almennt er ekki um neinar
breytingar á sjónskerpu að ræða hjá þeim sem hafa
byrjunarstig sjúkdómsins.
A mynd 7 sést samanburður á því hvernig annars
vegar heilbrigður einstaklingur sér ákveðna mynd
og hins vegar hvernig AMD sjúklingur á lokastigi
sér sömu mynd.
Einstaklingar með byrjunarstig upplifa yfirleitt
engin einkenni, eða þau koma það hægt að við-
komandi gerir sér oft ekki grein fyrir sjóntapi
(11).
Við þurra rýrnun verður oft fyrst vart við
þokukennda og óskýra sjón, auk þess er líka
talað um truflaða sjón, sem fer hægt versnandi á
mörgum árum (12).
Við vota hrörnun verður yfirleitt fyrst bjögun
á sjón (metamorphopsia) sem lýsir sér í því að
beinar línur verða bognar og/eða bylgjukenndar
(sjá mynd 8). Auk þess lýsa þeir oft auknu næmi
fyrir glampa eða glýju (glare sensitivity) og
minnkaðri litasjón sem stafar af því að keilur
drepast. Ljósflökt er algengt og jafnvel hefur verð
lýst ofsjónum (13).
Það getur líka borið á skerlu „contrast sensiti-
vily“ en þá er átt við að erfitt er að greina á milli
ákveðins hlutar og bakgrunns eins og til dæmis að
greina þrep á tröppum (14). Skýringin á þessum
einkennum er breytt hlutfall milli áreitis og svör-
unar.
Eftir mislöng byrjunareinkenni getur orðið
skyndilegt og mikið sjóntap. í 70% augna með
nýæðamyndun versnar sjónskerpa í 6/60 eða verra
innan tveggja ára frá greiningu (9,15). Ef blæðing
eða örvefsmyndun hefur átt sér stað í augnbotni
vegna votrar hrörnunar þá kemur fram skuggi í
sjónsviðið, (scotoma) auk þess sem skarpa sjónin
minnkar (mynd 7).
Amsler- sjónsviðspróf
Amsler sjónsviðsprófið er góð aðferð til að greina
688 Læknablaðið 2006/92