Læknablaðið - 15.10.2006, Side 33
FRÆÐIGREINAR / HRÖRNUN AUGNBOTNA
það orðið tæp 30% (56). Þurr rýrnun er algengara
hér á Islandi en vota formið eða 3:1 hjá 73 ára og
eldri. Ekki er um marktækan kynjamun að ræða.
Báðar þessar íslensku rannsóknir nota
skilgreiningu Framingham-augnrannsóknarinnar
og er heildaralgengi Borgarnesrannsóknarinnar
8,8% og 6,7% á Austfjörðum í nokkru yngra
úrtaki, niðurstöður eru því mjög svipaðar.
Einungis Austfjarðarannsóknin aðgreinir vott
og þurrt form lokastigs AMD.
Árið 1992 gerði Ólöf Ólafsdóttir (109) aft-
urvirka rannsókn á sjúklingum 45 ára og eldri sem
komið höfðu á göngudeild augndeildar með hrörn-
un í augnbotnum. Þar var meðalaldur 73 ár 66%
konur og 34% karlar, flestir búsettir í Reykjavík
og nágrenni, eða 84% þátttakenda. Algengi jókst
með hækkandi aldri upp að 80 ára aldri en fór svo
lækkandi en hugsanleg skýring á því er að eldri
aldurshópar hafi ekki skilað sér í rannsóknina eða
höfðu ekki komið á göngudeildina.
María Gottfreðsdóttir og fleiri framkvæmdu
tvíburarannsókn sem skoðaði meðal annars AMD
(45). Skoðuð voru 50 eineggja tvíburapör og 47
makar þeirra, þar af 26 kvenkyns tvíburapör og 24
karlkyns tvíburapör. Meðalaldur hjá tvíburunum
var 67 ár og hjá mökum þeirra 64 ár. Notuð var
alþjóðaskilgeiningin á AMD. Niðurstöður sýndu
hærra samræmi (,,concordance“) á AMD, eða
90% hjá eineggja tvíburum miðað við maka þeirra
sem var 70%. Reykjavíkur-augnrannsóknin (59)
er rannsókn á augnhag Reykvíkinga 50 ára og
eldri, og unnin í samvinnu við vísindamenn í Japan
árið 1996 og aftur 5 árum seinna. Notað var tilvilj-
unarkennt úrtak úr þjóðskrá hjá Reykvíkingum 50
ára og eldri. í fyrri rannsókninni frá 1996 var þátt-
takan 76%, eða 1045 Reykvíkingar 50 ára og eldri,
og er aldursdreifing eftirfarandi:
Aldurshópur 70-79 ára er 24% þátttakenda og
80 ára og eldri eru 7% þátttakenda.
Teknar voru þrívíddarlitmyndir af augnbotnum
og sjúkdómurinn flokkaður eftir alþjóðaskilgrein-
ingu AMD (3), skipt í byrjunarstigsbreytingar
með undirflokk og lokastigsbreytingar með und-
irflokka. Þessi rannsókn sýndi að algengi byrjunar-
stigsbreytinga jókst úr 9% hjá 50-59 ára í 37% hjá
80 ára og eldri og algengi lokastigsbreytinga jókst
úr 6% hjá 70-79 ára í 31% hjá 80 ára og eldri.
í Rvk-rannsókninni eins og í Austfjarða-
rannsókninni er hlutfall þurrar rýrnunar hærra en
vota formsins eða 3:1. Ef þessar niðurstöður eru
bornar saman við erlendar rannsóknir sem nota
sömu greiningarmörk eins og Beaver Dam Eye
Study (21), Rotterdam Eye Study (22) og Blue
Mountain Eye Study (18) er hlutfall vota forms-
ins hærra í þessum erlendu rannsóknum en þurrar
rýrnunar eða 2:1.
Tafla 3a. Algengitölur hrörnunar í augnbotnum á byrjunar og lokastigi eftir aldursflokkum á Vesturlandi.
Aldur Heildaralgengi %
50-59 0,5%
60-69 3,6%
70-79 33,3%
80 + 46,6%
Tafla 3b. Algengitölur hrörnunar í augnbotnum eftir aldursflokkum í A ustfjarðarannsókninni.
Aldur Heildaralgengi %
43-52 0%
53-62 1,1%
63-72 5,1%
73-82 22,2%
83 + 48,8%
Skyldleiki sjúklinga með þurra og vota formið
var líka skoðaður í Rvk-rannsókninni og sýndi að
þeir sem voru með þurra rýrnun voru skyldari en
samanburðarhópur.
Seinni hluti Rvk-rannsókninnar fór fram í sept
2001 og voru þá 846 einstaklingar skoðaðir aftur.
Niðurstöður sýna að 5 ára nýgengi (30) fyrir þurra
rýrnun er 0,9% en 0,1% fyrir vota formið sem er
í samræmi við fyrri algengitölur og er hærra en í
sambærilegum erlendum rannsóknum (30).
Nýgengi fyrir litþekjubreytingar og þurra
rýrnun er hærra hér á landi en nýgengi fyrir vota
formið í samanburði við sambærilegar erlendar
rannsóknir (28,55).
Sjónhjálpartæki
Ýmis sjónhjálpartæki eru í boði fyrir sjónskerta
einstaklinga til að auðvelda þeim lestur allt frá
stækkunarglerjum í ,,talandi tölvur”. Rannsóknir
hafa sýnt að ef einstaklingur les lítið sem ekkert
í tvö ár þá skerðist geta hans til lesturs mikið og
hann á jafnvel mjög erfitt með lestur eftir það
(110).
Mikilvægt er því að hvetja og leiðbeina þeim
sem eru farnir að missa sjón vegna AMD til að
halda áfram lestri og öðru atferli daglegs lífs með
öllum mögulegum hjálpartækjum sem í boði eru
hverju sinni (99,111-113). Endurhæfing og hvatn-
ing er mikilvæg þar sem sýnt hefur verið fram á að
árangur af notkun sjónhjálpartækja er góður hjá
þessum sjúklingahópi (20, 114). Rannsókn á 212
AMD sjúklingum sem áttu erfitt með lestur fyrir
meðferð á „low vision clinic“ sýndi að 94% gátu
bjargað sér með lestur eftir að hafa fengið kennslu
og aðstoð á endurhæfingarstöð fyrir sjónskerta
(99).
Læknablaðið 2006/92 693