Læknablaðið - 15.10.2006, Side 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BARNAHÚS
Barnahús hlýtur alþjóðlega
viðurkenningu
Hávar
Sigurjónsson
Barnahúsið islenska hefur vakið verðskuldaða
athygli út fyrir landsteinana og orðið barnavernd-
aryfirvöldum í Svíþjóð og Noregi fyrirmynd að
stofnun sams konar barnahúsa þar sem sinnt er
rannsóknum og viðtölum við börn sem talið er að
hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eða misnotk-
un.
í byrjun september hlaut Barnahúsið á íslandi
viðurkenningu alþjóðlegu samtakanna IPSCAM
fyrir brautryðjendastarf á þessu sviði og veitti
Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu
viðurkenningunni viðtöku fyrir hönd Barnahúss-
ins.
Viðurkenningin var veitt á heimsráðstefnu
ISPCAM (International Society for Prevention of
of Child abuse and neglect) sem haldin var dagana
3.-6. september í York á Englandi en hana sóttu
fulltrúar víða að úr heiminum sem láta þennan
mikilvæga málaflokk til sín taka.
„Það er mikill heiður og hvatning að Barnahús
skuli hafi hlotið þessa viðurkenningu,” segir Jón
R. Kristinsson barnalæknir en hann er einn þeirra
sérfræðinga sem starfað hafa við Barnahúsið frá
upphafi. „Undirbúningur að stofnun Barnahúss
hófst 1997 að tillögu Barnaverndarstofu sem hafði
að leiðarljósi rannsóknaraðstöðu í Bandaríkjunum
„Children Advocacy Centers” sem eru stöðvar þar
sem rannsakaður er grunur um kynferðisafbrot
gegn börnum. Undirbúningsnefnd að stofnun
Barnahúss hóf störf í september 1997 og starfaði
samfellt þar til Barnahús hóf starfsemi í byrjun
nóvember sama ár.” Undirbúningsnefndina skip-
uðu auk Jóns, Sigríður Jósefsdóttir saksóknari,
Gísli Pálsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Sigur-
björn Víðir Eggertsson aðstoðaryfirlögregluþjónn,
Ólafur Guðntundsson yfirlæknir, Þorgeir Magn-
ússon sálfræðingur og Soffía Gísladóttir félags-
málastjóri. Af hálfu Barnaverndarstofu störfuðu
með nefndinni Hrefna Friðriksdóttir lögfræð-
ingur, Anni Haugen félagsráðgjafi og Bragi
Guðbrandsson forstjóri. Til frekari ráðgjafar var
kallaður Aðalsteinn Sigfússon sálfræðingur. Vigdís
Erlendsdóttir sálfræðingur var ráðin forstöðumað-
ur Barnahúss og síðan einnig Ragna Guðbrands-
dóttir félagsráðgjafi og Þorbjörg Sveinsdóttir
sálfræðingur.
Auk Jóns R. Kristinssonar hefur Þóra F. Fischer
kvensjúkdómalæknir starfað við Barnahúsið frá
upphafi. Aðrir læknar sem sinnt hafa læknisskoð-
unum á börnum í Barnahúsi eru Gestur Pálsson
barnalæknir og Ebba Margrét Magnúsdóttir kven-
sjúkdómalæknir.
„Það er ánægjulegt að segja frá því að íslenska
barnahúsið hefur orðið barnaverndaryfirvöldum
bæði í Svíþjóð og Noregi fyrirmynd að stofnun
Barnahúsa. I Svþjóð hefur barnahús þegar tekið
til starfa í Linköping og fleiri eru að opna víðar í
landinu. Skemmst er að minnast heimsóknar Syl-
víu Svíadrottningar í Barnahúsið íslenska er hún
var hér í opinberri heimsókn. Norska Stórþingið
var nýlega að samþykkja lög þar sem kveðið er
á um stofnun barnahúss og má fullvíst telja að
starfsemin hér á íslandi hafi átt sinn þátt í þeirri
lagasetningu.”
Að sögn Jóns er hugmyndin að Barnahúsinu sú
að þar fari fram allar rannsóknir og viðtöl við barn
vegna meints kynferðisofbeldis eða misnotkunar
undir handleiðslu og stjórn sérmenntaðs fagfólks,
það er að segja rannsóknarviðtöl, læknisskoðun,
greining og meðferð. Allir dómstólar landsins hafa
nýtt sér þjónustu Barnahússins að Héraðsdómi
Reykjavíkur undanskildum.
Jón R. Kristinsson segir mikla sérþekkingu þurfa
til að átta sig á getu barna til að segja frá atburðum
sem þau hafa upplifað og eins að meta þroska
þeirra og áreiðanleika frásagnarinnar. „Manni
finnst að börn séu nánast alltaf minni-
máttar í þessum vondu málum og miklvægt sé
að vernda þau eftir mætti við vinnslu þessara
mála þannig að ekki sé bætt á þeirra hremm-
ingar. Með því að öll rannsókn þessara mála
séu á sama stað og ekki sé verið að velta börn-
unum margoft upp úr þessum ljótu málum
og segja endurtekið frá þeirra erfiðu lífs-
reynslu.ÞáermarkmiðiBarnahúsnáð.Þarersaman-
komin sérþekking við rannsókn þessara mála.”
Aðspurður um hlutverk læknis við rannsókn á
barni sem grunur er um að hafi orðið fyrir kyn-
706 Læknablaðið 2006/92