Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2006, Page 56

Læknablaðið - 15.10.2006, Page 56
VIRKT • EINFALTV. BRAGÐGOTT • NÝJAR PAKKNINGASTÆRÐIR AUGMENTIN GlaxoSmithKline. (Amoxicillln og klavúlansýra) Ábendingar Sýkingar af völdum sýkla, sem eru næmir fyrir lyfjablöndunni Frábendingar: Ofnæmi fyrir beta-laktam lyfjum, t.d. penisillini og cefalóspórínsamböndum. Mononucleosis. Saga um gulu eða skerta lifrarstarfsemi, sem tengist gjöf á Augmentin eða skyldum lyfjum. Aukaverkanir: Við venjulega skömmtun lyfsins má búast við aukaverkunum hjá 5% sjúklinga. Aukaverkanir frá meltingarvegi, s.s. linar hægðir, ógleði, uppköst og meltingartruflanir eru þó algengari ef hærri skammtar eru gefnir. Virðast þessar aukaverkanir algengari við gjöf þessa lyfs en við gjöf amoxicillíns eins sér. Algengar (>1 %): Meltingarvegur: Unar hægðir. Húð: Útbrot, kláði. Sjaldgæfar (0,1-1%): Blóð: Afturkræf hvítfrumnafæð, afturkræf blóðflagnafæð. Meltingarvegur. Ógleði, uppköst. Húð: Ofsakláði. Milliverkanir: Próbenecíð seinkar útskilnaði amoxicillins, en ekki útskilnaði klavúlansýru. Þvl er ekki mælt með samtímis gjöf próbenecfðs og Augmentin. Samtímis gjöf amoxicillíns °g allópúrfnóls getur aukið líkur á ofnæmisútbrotum f húð. Engar upplýsingar eru um samtfmis gjöf Augmentin og allópúrfnóls. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur Augmentin dregið úr virkni getnaðarvarnataflna. Varúð: Við skerta nýrnastarfsemi (kreatfnínklerans < 30 ml/mln.) þarf að minnka skammta fyrir 250 mg + 125 mg töflur og 500 mg + 125 mg töflur og ekki á að nota 875 mg + 125 mg töflur. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Vegna aspartaminnihalds mixtúrunnar skal gæta varúðar hjá sjúklingum með fenýlketonureu. Lenging é prótrombín tíma hefur verið lýst f einstaka tilvikum hjá sjúklingum sem fá Augmentin. Þegar blóðþynningarlyf eru gefin samtímis skal viðeigandi eftirliti vera framfylgt. Augmentin skal ekki nota ef grunur leikur á einkyrningasótt (mononudeosis) þar sem útbrot sem líkjast mislingaútbrotum hafa verið tengd notkun amoxicillfns við þennan sjúkdóm. Langvarandi notkun getur einnig valdið fjölgun ónæmra sýkla. Notkun á meðgöngu: Rannsóknir á æxlun hjá dýrum (músum og rottum með skömmtum allt að tíföldum þeim skömmtum sem notaðir eru hjá mönnum), þar sem Augmentin var gefið i inntöku og í æð, hafa ekki leitt í Ijós fósturskaða. Takmarkaðar upplýsingar eru fyrir hendi um notkun Augmentin á meðgöngu hjá konum. Eins og á við um öll lyf skal forðast notkun á meðgöngu nema læknir telji notkun nauðsynlega Brjóstagjöf: Augmentin má gefa konum með barn á brjósti. Að því undanskildu að hætta getur verið á að Augmentin hvetji til ofnæmis, vegna útskilnaðar örlltils af lyfinu I móðurmjólk, eru ekki þekkt nein skaðleg áhrif á börn á brjósti. Skammtastærðir handa fullorðnum: Skammtar fara eftir aldri, líkamsþunga og nýrnastarfsemi sjúklingsins, og einnig því hve alvarleg sýkingm er. Eftirfarandi skammtar eru gefnir upp eftir innihaldi amoxicillfns/klavúlansýru, nema þegar skammtar eru tilgreindir sem einstakt innihaldsefni. Vægar og miðlungs slæmar sýkingan 250/125mg þrisvar a dag; EÐA 500/125mg tvisvar eða þrisvar á dag; EÐA 875/125mg tvisvar á dag. Alvarlegar sýkingar (þ.á.m. langvinnar eða endurteknar þvagfærasýkingar og sýkingar í neðri loftvegi): 2 x 250/125mg þrisvar á dag; EÐA 1-2 x 500/125mg þrisvar á dag; EÐA 875/125mg þrisvar á dag. Ekki má skipta tveimur Augmentin 250/125mg út fyrir eina Augmentin 500/125mg þar sem það er ekki jafngilt. Æskilegt er að gefa lyfið við upphaf máltfðar. Skammtastærðir handa börnum: Mixtúra 80/11,4 mg/ml (1 ml mixtúra = 80 mg amoxicillín): Dagskammtur 25/3,6 mg/kg - 45/6,4 mg/kg. Athugið: Fullbúin mixtúra hefur 7 daga geymsluþol í Isskáp (2-8°C) Afgreiðslutilhögun: R. Greiðslutilhögun: 0. Pakkningar og hámarksverð 1. jan. 2003: Mixtúruduft: 80 mg + 11,4 mg/ml: 70 ml kr. 2.465; 25 + 6,25 mg/ml: 80 ml kr. 991; 50+12,5 mg/ml: 80 ml kr. 1.751 Töflur: 250+ 125 mg: 20stk. kr. 1.823; 500+ 125 mg: 20stk. kr. 2.829; 875 + 125 mg: 12 stk. kr. 2.546. 01.03.03. GlaxoSmithKline

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.