Læknablaðið - 15.10.2006, Side 65
UMRÆÐA & FRETTIR / SVAR VIÐ BREFI TIL BLAÐSINS
Svar við athugasemd Reynis T. Geirssonar
og Ragnheiðar I. Bjarnadóttur
Svar við athugasemd Reynis T. Geirssonar og
Ragnheiðar I. Bjarnadóttur við greinina: íslensk
börn með ofvirkniröskun - lýsing á nokkrum þátt-
um í meðgöngu og fæðingu. Læknablaðið 2006; 92:
609-14.
Við fögnum því að grein okkar hefur orðið til-
efni til faglegrar umræðu í Læknablaðinu. Eins og
áður hefur komið fram (1) er talið að margir þættir
geti orsakað ofvirkniröskun þó ekki sé enn hægt
að segja til með vissu um vægi einstakra þeirra
annað en að erfðaþátturinn vegur langþyngst. I
grein okkar eru ekki dregnar ályktanir um orsaka-
samhengi enda gefa niðurstöðurnar ekki tilefni til
slíks. Niðurstöðurnar eru lýsandi fyrir það úrtak
sem notað var og geta gefið mikilvægar vísbend-
ingar um hvaða þætti þurfi að skoða nánar hvað
varðar hugsanlega orsakaþætti ofvirkniröskunar
hjá íslenskum börnum en lítið hefur verið birt um
þetta efni hér á landi lil þessa.
Athugasemdir Reynis og Ragnheiðar beina
athyglinni að vissum þáttum sem við viljum
skýra betur. Astæðan fyrir kynjamismuninum í
rannsókninni er sú að fleiri drengir greinast með
ofvirkniröskun en stúlkur og því er hærra hlut-
fall drengja en stúlkna í þeim hópi sem vísað er á
BUGL. Misminni (recall bias) getur verið til stað-
ar enda var bent á það í greininni. Varðandi úrval
(selection bias) kemur skýrt fram í greininni að
einungis þau börn sem vísað var á BUGL á tveggja
ára tímabili og greindust með ofvirkni taka þátt í
rannsókninni. Það er umdeilanlegt hvort rétt sé að
tala um brottfall þar sem rannsóknin er afturvirk,
en það eru 7,5% barna sem ná ekki inngöngu
í rannsóknarhópinn og eru það þau börn sem
greindust með ofvirkni en voru ekki með upplýs-
ingaskrá. Viðmiðunarhópur var valinn með tilliti
til hverrar rannsóknarbreytu og er það vissulega
veikleiki við rannsóknina að ekki sé valið viðmið
fyrir hvert barn. Varðandi tíðni keisaraskurða og
tangarfæðinga er það réttmæt gagnrýni að úrtaks-
stærðir mættu vera stærri.
Eftirfarandi fullyrðingu í athugasemdunum er
mótmælt: „Ef reikna á marktækni á svona lágar
tölur með Fishers prófi, fæst óhjákvæmilega mark-
tæk niðurstaða, en útreikningur sem þessi er hins
vegar ekki réttlætanlegur.“ Það að fáir einstakling-
ar séu í úrtakinu hefur ekki áhrif á gildi þess töl-
fræðiprófs sem notað er (Fisher exact prófs) og
leiðir ekki til þess að óhjákvæmilega fáist marktæk
niðurstaða. Fisher próf er einmitt notað, frekar en
t-próf. þar sem það gildir við þær aðstæður þegar
fáir einstaklingar eru í sumum þeim hópum sem
bornir eru saman. Þá er rangt að tvö tilfelli af tang-
arfæðingum séu í viðmiðunarhópnum, heldur eru
það 0,8 % af 4114 börnum sem svarar til 33 tilfella
af tangarfæðingum. Mismunandi fjöldi árganga í
viðmiðunarhópum frá Fæðingarskráningu skýr-
ist af því að ekki fengust upplýsingar um sumar
rannsóknarbreytur á því árabili sem börnin voru
að fæðast og var valinn sá(þeir) árgangur(ar) sem
lá(gu) næst í tíma.
Varðandi aldur mæðra og tengsl við ofvirkn-
iröskun barns er rétt að gagnlegt hefði verið að
sýna líkindahlutfall (Odds ratio: OR) fyrir því
að mæður barna með ofvirkniröskun séu yngri
en tuttugu ára borið saman við mæður í viðmið-
unarhópnum. Hins vegar má reikna OR út frá
þeim upplýsingum sem gefnar eru í greininni og
fæst þá OR=2,75 og 95% öryggismörk (CI): 1.77,
4.27. Varðandi gagnrýni á fyrirburafæðingar þá
er rétt að árétta að ekki var um eitt slembiúrtak
úr fæðingarskránni að ræða, heldur er öll fæð-
ingarskráin frá árunum 1998 til 2002 notuð. Við
samanburðinn eru tilfellin borin saman við mikinn
fjölda slembiúrtaka úr viðmiðunarhópnum þar
sem hvert slembiúrtak er valið með sama kynja-
hlutfalli og rannsóknarhópurinn. Þetta er gert
til þess að leiðrétta fyrir þeim mismun sem er á
fjölda drengja og stúlkna í rannsóknarhópnum.
I greininni er fullyrt að það séu marktækt fleiri
fyrirburafæðingar í rannsóknarhópnum en hjá
viðmiðunarhópnum, 19,9% á móti 3,6%. Byggt
á þeim 10.000 slembiúrtökum sem notuð voru, þá
er tilsvarandi líkindahlutfall fyrir því að fyrirburi
greinist með ofvirkniröskun OR=6,0 (95% C1:2.6,
13.6). Það er rétt að viðmiðunarhópurinn er yngri
en rannsóknarhópurinn, en bent er á í greininni
að lífslíkur fyrirbura hafa aukist með árunum og
því má búast við því að munurinn á tíðni fyrirbura
í rannsóknarhópnum og viðmiðunarhópnum sé
frekar vanmetinn en hitt.
Við teljum mikilvægt að samstarf vísindamanna
sé sem mest í rannsóknarvinnu. Það sem einnig
skiptir máli hér er að um viðkvæmt málefni er að
ræða sem ekki hefur verið fullrannsakað. Þó eru
niðurstöður rannsókna sífellt að bæta vitneskju
manna varðandi orsakaþætti ofvirkniröskunar. I
nýlegri yfirlitsgrein eftir Biederman og Faraone
(2) sem eru leiðandi í rannsóknum á ofvirkni í
heiminum í dag, kemur fram að nokkrar rann-
sóknir benda til þess að vandamál í meðgöngu og
fæðingu eins og yfirvofandi fæðingarkrampi eða
Fyrir hönd
höfunda greinarinnar
Margrét
Valdimarsdóttir
Læknablaðið 2006/92 725