Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2006, Síða 87

Læknablaðið - 15.10.2006, Síða 87
HUGLEIÐING HÖFUNDAR Trúin flytur liðmús Það er ein af þversögnunum í minni tilveru að ég elska eina starfsstétt umfram aðrar, lækna auðvit- að, bæði nær (þá sem ég er svo heppin að þekkja) og fjær. Því ég hef ekkert nema góða reynslu af því að leita til lækna, jafnvel þótt þeir séu ókunn- ugir. En - hvernig kemur það heim og saman við þá staðreynd að ég dríf mig yfirleitt ekki fyrr en í lengstu lög. Og það sem meira er, fer helst ekki eftir ráðleggingum og uppáskriftum. Ef það er skrifað upp á fer ég að vísu í næsta apótek með reseftið, og sný heim með lyfin, alls hugar fegin. Gái svo hvort mér ætli nú ekki að fara að skána meðan dollur og meðalaglös hvíla í friði uppi á hillu. Þeim er svo hent, kyrfilega útrunnum og óáteknum í næstu flutningum, eða í síðbúinni vorhreingerningu. (Undantekning: Ef Einar Thor ordínerar út af lungnakjaftæði er dollan strax opnuð og meira að segja farið að reglum um inn- töku). Ég man eftir stórfelldu lyfjamisferli af fram- angreindri sort þegar ég átti heima í París. Þrálátir bakverkir og maginn ekki orðinn vel góður. Ég neyddist af stað. Lækninum var illa brugðið yfir því að þessi framandi sjúklingur væri búin að „abímera“ (skemma) í sér magann með aspiríni, jafnvel á fastandi maga. (Svona fer fyrir þverhaus- um sem vilja ekki taka meðul, því þeir kunna það ekki heldur). Ég fór frá lækninum með uppáskrift á fimm eða sex tegundir af lyfjum, og syngjandi út úr apótekinu yfir því hvað þetta var ódýrt miðað við ísland, meðan ég vigtaði lyfjapokann fríhendis gegn ímynduðum íslenskum poka og gerði verð- samanburð. Þegar heim var komið settist ég niður og las spjaldanna á milli hvað var í hverjum stauk og hvers konar aukaverkunum mætti hugsanlega búast við af inntöku. Ég sá fyrir mér að sístemið mundi hrynja ef ég færi allt í einu að taka sex sortir af töflum samtímis, með yfirvofandi marg- feldi aukaverkana, svo ég valdi úr tvær tegundir og nartaði eitthvað í þær, ekki samkvæmt for- skrift. Önnur var, af illri nauðsyn, verkjatöflur. Skömm er frá því að segja fyrir manneskju sem hefur forneskjulega lyfjamótstöðu, að þetta reynd- ust svo merkar pillur að síðan bregð ég mér ekki milli landa nema hafa þær í farteskinu. Hefur það iðulega komið sér vel, einkum fyrir aðra en mig, og varð nú síðast til þess að „bjarga lífi“ sessunautar míns í langflugi eins og hann orðaði það, en hann var altekinn af höfuðverk (vonandi ekki af því að tala við mig). Það merkilega við þetta franska verkjalyf er að það þjónar tilgangi sínum, slær sem sagt á verk, og hefur ekki aðrar aukaverkanir en þær að skapið skánar og símtöl lengjast, að því er virðist fyrir hvetjandi áhrif á talstöðina. (Bakverkirnir í París læknuðust svo endanlega með því að ég fór að venja komur mínar í nálæga líkamsræktarstöð í átjánda hverfi og rifjaði þar upp mér til samlætis marga gleðisnauða stund við sömu iðju úr einni og annarri svitastokkinni rækt í Reykjavík og nágrenni.) Það sæmir mér sem sagt síst að vera lyfjaþver- haus, úr því ég hef prófað eitt sem virkar, fyrir utan lungnatöflurnar hjá Einari sem fyrst var getið - og svo hálspilluna í Frankfurt. Þar var rithöfundurinn kominn á bókastefnu, með svo svæsna hálsbólgu að hann varð eiginlega hræddur. Læknirinn skrifaði upp á lyf með því formerki að ekki mætti láta það í sig nema endilega þyrfti. Eina töflu á dag. Ég ætl- aði þá að harka þetta af mér, enda viðvörun lækn- isins ískyggileg. Hálsbólgan varð þó ískyggilegri en viðvörunin og át ég því pilluna, í votta viðurvist. Varð einkennalaus á korteri. Spurði vottana hvort ég væri orðin endanlega vitlaus eða hvort svona túrbómeðul væru yfirleitt til. Þeir sögðu að svona meðul væru til. Við skulum þá segja það, en svo mikið víst að ekkert sem á daga mína hefur drifið kemst nær yfirskilvitlegri reynslu eða kraftaverki á staðnum en áhrifin af þýsku hálspillunni. Skammarlegri efahyggjunni varðandi meðul fylgir svo skefjalaus vantrúin á allt sem getur flokkast undir kírúrgískt inngrip. Þó hef ég neyðst til að láta draga úr mér tannbrot heima og heiman. En þá passa ég að láta ekki deyfa mig og lágmarka þannig skaðann af inngripinu. Mótstaðan gegn kírúrgískum inngripum náði hámarki þegar gamalt hnjámeiðsl tók sig upp hér um árið þannig að ég komst hvorki lönd né strönd nema með harmkvælum og hækjum. Þrátt fyrir þá kröppu stöðu leist mér ekki á að leita læknis frekar en fyrri daginn - sá fyrir mér speglun, uppskurð jafnvel, sýkingar í kjölfarið og frekari örkuml. Svo fór þó að læknir kom mér til bjargar og læknaði mig. Með því að lána mér íbúðina sína. Ég var þá gestkomandi á íslandi og hefði ekki átt auðvelt með að halda kyrru fyrir á mínum góða gististað - en það gerði ég nú í lánsíbúðinni. Var við rúmið í þrjá daga. Studdi mig við hurðarkarm eða hækju þegar ég fór á ról og vingsaði veika fætinum. Upp úr þessu varð hnéð smám saman albata og hefur ekki til þess spurst síðan. Kannski trúin flytji þá ekki bara fjöll, heldur einnig liðmús. Því ef það er eitthvað sem ég trúi á þegar kvillarnir herja þá er það hæfileg hvfld, með viðeigandi hörku til þess að kría sér út hvfldina. Steinunn Sigurðardóttir Steinunn Sigurðardóttir rit- höfundur fæddist í Reykjavík 1950. Hún lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum i Reykjavík 1968 og BA prófi í sálarfræði og heim- speki frá University College í Dublin 1972. Steinunn var fréttamaður útvarps og fréttaritari með hléum frá 1970-1982. Hún hefur einnig starfað sem blaðamaður og þáttagerðarmaður við útvarp og sjónvarp. Steinunn gaf út fyrstu bók sína, Ijóðabókina Sífellur, 19 ára gömul og vakti hún strax athygli. Hún skrifar jöfnum höndum skáldsögur og Ijóð, og smásögur úr hennar penna eru með þeim snjall- ari sem til eru á íslensku. Árið 1995 fékk hún Islensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Hjartastað og síðasta bók hennar, Sólskinshestur, var tilnefnd til sömu verðlauna 2005. - Bækur hennar hafa verið þýddar á önnur mál og frönsk kvikmynd byggð á skáldsög- unni Tímaþjófinum var frum- sýnd árið 1999. Læknablaðið 2006/92 747
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.