Læknablaðið - 15.12.2006, Side 17
Til hamingju,
Reykjalundur!
DIANA er upplýsinga- og stjórnunarkerfi, þróað sérstaklega fyrir íslenska
heilbrigðisgeirann, sjúkrastofnanir, sjálfstaett starfandi sérfræðinga og
heilsugæslustöðvar. DIANA inniheldur meðal annars rafrænar sjúkraskrár,
lyfseðla, eyðublöð fyrir Tryggingastofnun og fleiri aðila, bókunarkerfi,
reikningakerfi og tengingu við rafrænt læknanet, Kerfið er þróað í nánu
samstarfi við lækna og starfsfólk í heilbrigðisgeiranum.
Rík áhersla er lögð á að uppfylla kröfur notenda á hverjum tíma með
stöðugri framþróun kerfisins. Sem dæmi geta notendur hannað eigin
eyðublöð. Við þróun gagnagrunna og fyrirspurna í kerfinu hefur verið
tryggt að svörun og vinnsla sé hröð.
DIANA tekur mið af kröfum Landlæknisembættisins um upplýsingaöflun á
heilbrigðissviði og uppfyllir einnig kröfur um gagnaöryggi þar sem unnið er
með viðkvæmar persónuupplýsingar. Allar aðgerðir (kerfinu eru skráðar,
sem tryggir áreiðanleika og rekjanleika gagna.
JSfrDIANA
sjúkraskrárkerfi
Skýrr hf. er eitt stærsta upplýsingatæknifyrirtæki landsins, með um 220 starfsmenn og 2.300 viðskiptavini
af öllum stærðum og gerðum, sem sækja til fyrirtækisins samþættar heildarlausnir. Skýrr er samstarfsaðili
Microsoft, Orade, BusinessObjects og VeriSign. Fyrirtækið er vottað samkvæmt alþjóðlega gæða- og
öryggisstaðlinum ISO 9001. Starfsemi Skýrr skiptist í hugbúnaðarlausnir og rekstrarþjónustu.
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SIBS,
hefur tekið í notkun sjúkraskrárkerfið
DIANA frá Skýrr hf.
Samstarf Reykjalundar og Skýrr á sviði
upplýsingatækni hefur verið langt og
farsælt, en þess má geta að Skýrr rekur í
dag mestallan tölvubúnað Reykjalundar.
V