Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 57

Læknablaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRA FORMANNI Ll / Læknafélag Íslands var komið að fótum fram um miðja síðustu öld. LI hafði frá byrjun verið félag einstakra lækna og var það ein af ástæðum veikrar stöðu þess. Þetta var læknum ljóst á 5. ára- tugnum og hófust þeir handa við að stofna lands- hlutafélög lækna m.a. í því skyni að þau gætu orðið stólpar undir nýrri skipan LÍ. Við þær breytingar, sem gerðar voru á skipulagi LÍ 1952, breyttist það úr máttlitlu félagi embættismanna sem tók því sem þeim var skammtað úr ríkisins hendi, í félag með breiða og sterka hagsmunagæslu fyrir lækna (1). LÍ er þannig félag annarra félaga lækna þar sem einstaklingsaðild er möguleg en veitir takmörkuð tækifæri til áhrifa á málatilbúnað aðalfundar og þar með stjórnar félagsins.Til þess að nýta atkvæði sitt til áhrifa innan LÍ verða læknar að taka þátt í kjöri aðalfundarfulltrúa sinna félaga eða m.ö.o. taka virkan þátt í félagsstarfi lækna á þennan hátt. Fulltrúalýðræði liggur því starfi félgsins til grund- vallar. Fulltrúar læknahópsins, sem hafa að jafnaði umboð 20 lækna, taka því ákvarðanir um allt það sem skiptir máli í starfi LI og stjórnarmenn, sem segja má að hafi hver um sig umboð 100 lækna, sjá um að framfylgja þessum ákvörðunum. Hvernig til tekst um val þessara fulltrúa er háð þátttöku lækna í félagsmálum stéttar sinnar og má segja að umboð fulltrúanna sé því veikara sem læknar gerast sinnu- lausari um hagsmunamál sín. Ég átti á dögunum samræður við kollega um málefni LÍ. Þetta er læknir á Landspítala sem þekktur er fyrir að láta sér annt um sjúklinga sína og starf og sýna réttindum sínum og samstarfs- fólks ræktarsemi. Snemma í tali okkar kom það fram að hann taldi það altalað á spítalanum að LI hefði hrakist af leið og sjónarmið spítalalækna ættu undir högg að sækja hjá forystu félagsins. Ég sagðist hafa heyrt það en taldi vandasamt að fara eftir öðru en fyrirmælum aðalfundar en þar væri fast að helmingur fulltrúa starfsmenn LSH. Hann taldi að samt sem áður ættu spítalalæknar ekki nógu skýra rödd innan stjórnar LÍ. Ég spurði hann þá hvort hann gerði sér grein fyrir að fimm af níu stjórnarmönnum LÍ væru launþegar á sjúkra- húsinu. Hann kvaðst ekki hafa gert sér grein grein fyrir því, en þeir væru varla helgir menn; það skipti verulegu máli; læknar sem ættu hagsmuni annars staðar en á sjúkrahúsinu hefðu undirtökin í valda- taflinu þar innan veggja. Þetta svar olli mér nokkrum heilabrotum,þegar við slitum samtalinu þar sem ég vissi ekki betur en að 3 af 9 læknum í stjórn LÍ væru eingöngu laun- þegar LSH og tilheyrðu því þeim „valdalitla" hópi sem nefndur var (2). Það má velta þessu áfram yfir til heimilislæknanna en þeir eru tveir í stjórn LÍ fyrir um 200 lækna. Þannig hefur að mínu mati tekist nokkuð bærilega að gæta jafnræðis í full- trúalýðræðinu í LÍ að öðru leyti en að jafnstöðu karla og kvenna. Um þessar mundir eru 5 af 9 stjórnarmönnum konur og endurspeglar það hlut- fall ekki kynjaskiptingu stéttarinnar en gæti gert það í tímans rás. Við getum kallað þetta til gamans uppbót fyrir misrétti fortíðarinnar. Þrautalending þess sem þrátt fyrir að vera talinn eiga eðlilega aðkomu að valdastofnunum LÍ en telur sjónarmið sín verða undir, er auðvitað sú að stofna sérstakt félag um skoðanir sínar innan eða utan LÍ. Það hefur þann kost, að ekki þarf að ná málamiðlun um niðurstöðu hópsins; minni áreynsla fer í að leita að hinum eina sanna tóni og minni hætta verður á að minni hluti myndist, sem heldur uppi gagnrýni á niðurstöðu meirihlutans og veikir þar með áhrif hópsins út á við. Ókost- urinn er sá að lítill hópur hefur að jafnaði minni slagkraft en stór og auðveldara veður að deila og drottna yfir hópnum í heild með því að láta hluta hans jagast um molana sem til falla t.a.m. í samningum. Mál Stefáns E. Matthíassonar er eitt birting- arform þess vanda sem lítil læknafélög með sér- hæfðan, einsleitan hóp innanborðs gætu ratað í. í því máli eru allir leikendurnir í miklu návígi og eitt aðalhlutverkið í höndum eins af brautryðjendum Skurðlæknafélags íslands - stéttarfélags, fyrr- verandi formanns og núverandi varaformanns auk margvíslegra persónulegra tengsla sem flækja það mál svo ekki sé meira sagt. Hvernig væri umhorfs í Skurðlæknafélaginu ef LÍ hefði ekki tekið upp þykkjuna fyrir Stefán en Skurðlæknafélagið þess í stað axlað ábyrgð sína sem stéttarfélag hans? Það félag væri nú vísast brunarústin ein. Nœst um félagsgjöldin. 1 fsberg JÓ. Líf og lækningar. Hið íslenska bókmenntafélag, Reykjavik 2005, bls. 279. 2 LSH án skurðlækna: Kandidatar: Fjöldi starfsmanna: 29,Læknar án sérfræðileyfis: Fjöldi starfsmanna i hlutastarfi: 28, Fjöldi starfsmanna í fullu starfi: 83, Sérfræðingar og yfirlæknar (sviðsstjórar meðtaldir): Fjöldi starfsmanna i hlutastarfi: 173, Fjöldi starfsmanna í fullu starfi: 169 Sigurbjörn Sveinsson form@lis.is Höfundur er formaður stjórnar LÍ. Læknablaðið 2006/92 893
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.