Læknablaðið - 15.12.2006, Side 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR /
FRA FORMANNI Ll
/
Læknafélag Íslands var komið að fótum fram
um miðja síðustu öld. LI hafði frá byrjun verið
félag einstakra lækna og var það ein af ástæðum
veikrar stöðu þess. Þetta var læknum ljóst á 5. ára-
tugnum og hófust þeir handa við að stofna lands-
hlutafélög lækna m.a. í því skyni að þau gætu orðið
stólpar undir nýrri skipan LÍ. Við þær breytingar,
sem gerðar voru á skipulagi LÍ 1952, breyttist það
úr máttlitlu félagi embættismanna sem tók því sem
þeim var skammtað úr ríkisins hendi, í félag með
breiða og sterka hagsmunagæslu fyrir lækna (1).
LÍ er þannig félag annarra félaga lækna þar sem
einstaklingsaðild er möguleg en veitir takmörkuð
tækifæri til áhrifa á málatilbúnað aðalfundar og
þar með stjórnar félagsins.Til þess að nýta atkvæði
sitt til áhrifa innan LÍ verða læknar að taka þátt
í kjöri aðalfundarfulltrúa sinna félaga eða m.ö.o.
taka virkan þátt í félagsstarfi lækna á þennan hátt.
Fulltrúalýðræði liggur því starfi félgsins til grund-
vallar. Fulltrúar læknahópsins, sem hafa að jafnaði
umboð 20 lækna, taka því ákvarðanir um allt það
sem skiptir máli í starfi LI og stjórnarmenn, sem
segja má að hafi hver um sig umboð 100 lækna, sjá
um að framfylgja þessum ákvörðunum. Hvernig til
tekst um val þessara fulltrúa er háð þátttöku lækna
í félagsmálum stéttar sinnar og má segja að umboð
fulltrúanna sé því veikara sem læknar gerast sinnu-
lausari um hagsmunamál sín.
Ég átti á dögunum samræður við kollega um
málefni LÍ. Þetta er læknir á Landspítala sem
þekktur er fyrir að láta sér annt um sjúklinga sína
og starf og sýna réttindum sínum og samstarfs-
fólks ræktarsemi. Snemma í tali okkar kom það
fram að hann taldi það altalað á spítalanum að
LI hefði hrakist af leið og sjónarmið spítalalækna
ættu undir högg að sækja hjá forystu félagsins.
Ég sagðist hafa heyrt það en taldi vandasamt að
fara eftir öðru en fyrirmælum aðalfundar en þar
væri fast að helmingur fulltrúa starfsmenn LSH.
Hann taldi að samt sem áður ættu spítalalæknar
ekki nógu skýra rödd innan stjórnar LÍ. Ég spurði
hann þá hvort hann gerði sér grein fyrir að fimm af
níu stjórnarmönnum LÍ væru launþegar á sjúkra-
húsinu. Hann kvaðst ekki hafa gert sér grein grein
fyrir því, en þeir væru varla helgir menn; það skipti
verulegu máli; læknar sem ættu hagsmuni annars
staðar en á sjúkrahúsinu hefðu undirtökin í valda-
taflinu þar innan veggja.
Þetta svar olli mér nokkrum heilabrotum,þegar
við slitum samtalinu þar sem ég vissi ekki betur en
að 3 af 9 læknum í stjórn LÍ væru eingöngu laun-
þegar LSH og tilheyrðu því þeim „valdalitla" hópi
sem nefndur var (2). Það má velta þessu áfram
yfir til heimilislæknanna en þeir eru tveir í stjórn
LÍ fyrir um 200 lækna. Þannig hefur að mínu mati
tekist nokkuð bærilega að gæta jafnræðis í full-
trúalýðræðinu í LÍ að öðru leyti en að jafnstöðu
karla og kvenna. Um þessar mundir eru 5 af 9
stjórnarmönnum konur og endurspeglar það hlut-
fall ekki kynjaskiptingu stéttarinnar en gæti gert
það í tímans rás. Við getum kallað þetta til gamans
uppbót fyrir misrétti fortíðarinnar.
Þrautalending þess sem þrátt fyrir að vera
talinn eiga eðlilega aðkomu að valdastofnunum LÍ
en telur sjónarmið sín verða undir, er auðvitað sú
að stofna sérstakt félag um skoðanir sínar innan
eða utan LÍ. Það hefur þann kost, að ekki þarf
að ná málamiðlun um niðurstöðu hópsins; minni
áreynsla fer í að leita að hinum eina sanna tóni og
minni hætta verður á að minni hluti myndist, sem
heldur uppi gagnrýni á niðurstöðu meirihlutans
og veikir þar með áhrif hópsins út á við. Ókost-
urinn er sá að lítill hópur hefur að jafnaði minni
slagkraft en stór og auðveldara veður að deila
og drottna yfir hópnum í heild með því að láta
hluta hans jagast um molana sem til falla t.a.m. í
samningum.
Mál Stefáns E. Matthíassonar er eitt birting-
arform þess vanda sem lítil læknafélög með sér-
hæfðan, einsleitan hóp innanborðs gætu ratað í. í
því máli eru allir leikendurnir í miklu návígi og eitt
aðalhlutverkið í höndum eins af brautryðjendum
Skurðlæknafélags íslands - stéttarfélags, fyrr-
verandi formanns og núverandi varaformanns auk
margvíslegra persónulegra tengsla sem flækja það
mál svo ekki sé meira sagt. Hvernig væri umhorfs
í Skurðlæknafélaginu ef LÍ hefði ekki tekið upp
þykkjuna fyrir Stefán en Skurðlæknafélagið þess í
stað axlað ábyrgð sína sem stéttarfélag hans?
Það félag væri nú vísast brunarústin ein.
Nœst um félagsgjöldin.
1 fsberg JÓ. Líf og lækningar. Hið íslenska bókmenntafélag,
Reykjavik 2005, bls. 279.
2 LSH án skurðlækna: Kandidatar: Fjöldi starfsmanna:
29,Læknar án sérfræðileyfis: Fjöldi starfsmanna i hlutastarfi:
28, Fjöldi starfsmanna í fullu starfi: 83, Sérfræðingar og
yfirlæknar (sviðsstjórar meðtaldir): Fjöldi starfsmanna i
hlutastarfi: 173, Fjöldi starfsmanna í fullu starfi: 169
Sigurbjörn
Sveinsson
form@lis.is
Höfundur er formaður
stjórnar LÍ.
Læknablaðið 2006/92 893