Læknablaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 41
UMRÆÐA & FRETTIR / FRÆÐSLUMYND
anlegt að sum greiningarskilmerkin fyrir ADHD,
sérstaklega hvað einkenni um athyglisbrest snertir,
gætu í raun skýrst af skertum málskilningi. Lélegur
málskilningur getur farið mjög leynt og kemur
oft ekki í ljós fyrr en barnið er prófað forntlega.
Málþroskaröskun samhliða ADHD gæti hugsan-
lega skýrt hvers vegna meðferð með örvandi lyfj-
um, sem er algengasta meðferðarform við ADHD,
virðist ekki bæta námsárangur eða félagslega færni
barnanna. Niðurstöður rannsókna í þessari ritgerð
vekja þá spurningu hvort athyglisbrestseinkennin í
ADHD stafi í raun af skertum málskilningi. Það er
þörf á frekari rannsóknum til að athuga hvort svo
geti verið,” segir Sólveig.
Fjórða rannsóknin sýnir fram á að meðferð
með TENS (taugaraförvun gegnum húð) hafði
jákvæð áhrif á vitsmunastarf, hegðun og svefn-
mynstur barna með ADHD. Þær niðurstöður sem
sýndu að marktækt dró úr hreyfivirkni barnanna í
svefni segir Sólveig vera sérstaklega áhugaverðar
í ljósi þess að svefntruflanir eru algengt vandamál
barna sem eru með ADHD.
„Niðurstöður okkar sem sýna að TENS með-
ferð dregur úr hreyfivirkni í svefni gætu bent
til þess að börnin eyði meiri tíma í REM (rapid
eye movement) svefni, en meðan á því svefnstigi
stendur eru engar vöðvahreyfingar til staðar og
líkaminn er sem lamaður. Fyrri rannsóknir hafa
sýnt að börn með ADHD eyða minni tíma í REM
svefni en önnur börn. REM svefn tengist fram-
leiðslu á taugaverjandi þáttum (BDNF) og kann
þannig til dæmis að hafa jákvæð áhrif á minni og
nám. Niðurstöður okkar geta hugsanlega verið
vísbending um að TENS meðferð hafi jákvæð
áhrif á svefn barna með ADHD og hafi um leið
jákvæð áhrif á hegðunarmynstur þeirra og vits-
munastarf. Þessar niðurstöður gætu einnig verið
klínískt mikilvægar í ljósi rannsókna sem sýnt hafa
fram á auknar svefntruflanir hjá börnunt með
ADHD sem eru á meðferð örvandi lyfja. Frekari
rannsókna er þörf til að kanna þetta betur.”
Sólveig segir meginniðurstöðu doktorsrann-
sóknar sinnar vera þá að „þegar greining á ADHD
fer fram sé það grundvallaratriði að skimað sé
fyrir öðrum hugsanlegum röskunum sem valdið
geti einkennum eins og til dæmis málþroskarösk-
un og svefntruflunum svo tryggt sé að börnin fái
viðeigandi meðferð.”
Leikin fræðslumynd
um heílabilun
Hugarhvarf - lífið heldur áfram með heilabilun
Fyrr á árinu var gefin út á mynd-
diski fræðslumyndin Hugarhvarf
- lífið heldur áfram með heilabilun.
Höfundar handrits myndarinnar eru
þær Berglind Magnúsdóttir sálfræð-
ingur á öldrunarsviði Landspítala,
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir
hjúkrunarfræðingur og kennslustjóri
sjúkraliðaskóla heilbrigðisskóla FÁ
og Þórunn Bára Björnsdóttir sjúkra-
þjálfari á öldrunarsviði Landspítala.
Leikarar í myndinni eru Krist-
björg Kjeld og Gísli Alfreðsson,
leikstjóri Lárus Ýmir Óskarsson,
kvikmyndatöku önnuðust Friðþjóf-
ur Helgason og Jón Karl Helgason
og framleiðandi er Kvik. Myndin er
55 mínútur að lengd og fjöldi fyr-
irtækja, stofnana og félagasamtaka
styrkti gerð hennar og gáfu allir
vinnu sína sem komu að gerð mynd-
til að auka skilning á umönnun
heilabilaðra, styrkja þá og gefa
hugmynd um góð og árangursrík
samskipti við ástvin sinn eða skjól-
stæðing.”
Pálmi V. Jónsson sviðstjóri lækn-
inga á öldrunardeild Landspítala
segir meðal annars um myndina:
„Myndin er í senn raunsönn, fagleg
og listræn. Hún sýnir glögglega að
bæði sjúklingar og aðstandendur
geta sótt margvíslegan stuðning en
hún höfðar einnig til starfsfólks.
Myndin getur hjálpað starfsfólki að
leiðrétta fyrirfram gefnar hugmynd-
ir og gefur ýmis ráð um það hvernig
best er að vinna nteð sjúklingum
svo að báðum líði vel. Allir þeir sem
hafa unnið að gerð þessarar myndar
eiga þakkir skildar fyrir frábært
framlag.”
arinnar.
í kynningu með myndinni segir
að fræðsla til ættingja og umönn-
unaraðila sé mikilvæg til að þess
að viðhalda lífsgæðum þeirra sem
greinasl með heilabilun. „Aukin
þekking minnkar fordóma og eykur
hæfni fólks til þess að sinna heilabil-
uðum. Myndin er ætluð
bæði leikum og lærðum
Læknablaðið 2006/92 877