Læknablaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÁHUGAMÁL
alveg með því að íslenskir auðkýfingar eigi góð vín
í kjöllurum. Ég er þó ekki til frásagnar um það, hef
sjaldan kornið í helgustu vé þeirra.”
Hvað þarfað vera í vínkjallara til að hann standi
undir nafni?
„Það þurfa að vera nokkrar flöskur. Nokkrir
kassar, kannski svona hundrað iíöskur. Þá ertu
kominn með kjallara.”
Hvers konar úrvalþarfað vera í kjallaranum?
„Þú ræður því auðvitað en það þarf þó að vera
meira og fjölbreyttara en þú getur klárað á einu
bretti. Kannski er það besta skilgreiningin á vín-
kjallara; samsafn flaskna sem þú klárar ekki allar í
einu. Þá skiptir fjöldinn heldur ekki máli.”
Áttu þér uppáhaldstegundir og árgerðir?
„Auðvitað á ég það en víntegundir eru eins og
skáldin. Sum eiga við eitt ástand á meðan önnur
eiga við annað. Eitt skáldið er ljóðrænt, annað er
meistari hrynjandinnar og svo framvegis. Það sem
maður fær útúr Bordeauxvíni er kraftur, léttleiki
og fágun en úr Búrgúndarvíni fær maður gjöf-
ulleika, ljúffengi og fágun. Ég legg rosalega mikið
upp úr þokka vínanna, þokki og jafnvægi eru það
sem mestu máli skipta.”
Hvernig skilgreinast þessi hugtök?
„Þau skilgreinast af jafnvægi vínsins og bragð-
gæðum. Það er dálítið erfitt að skilgreina bragð-
gæði en mörg vín sem vinna keppni sigra gjarnan
á hávaða. Þetta eru ávaxtadrifnir boltar sem eru
áhrifamiklir við fyrstu smökkun en svo langar
mann ekki í meira. Þá er líklegra að maður spyrji
eftir hógværa bragðinu, þessu víni sem syngur svo
fallega. Það er með vínin einsog söngkeppnina í
Llanchollen í Wales að sá sem sigrar þar er sá sem
hefur hæst en er ekki endilega sá sem syngur fal-
legast. En maður deilir ekki um smekk manna.”
Hefur smekkur þinn breyst í áranna rás?
„Nei, ég er enn fastur í Bordeaux og Búrgúnd-
arvínum.”
Hvað þykir þér um vín frá öðrum heimshlutum,
eins og Ástralíu, Kaliforníu og Suður-Afríku?
„Áströlsku vínin eru hvað samkvæmust sjálfum
sér. Þau eru nokkuð bragðgóð og það er talsvert
mikil mynta í rauðvínunum. Þeir hafa haldið því.
Aðrar þjóðir eru dálítið að gera vín undir kjörorð-
inu: Ég líka. Ætli það verði ekki teljast árangur af
hnattvæðingunni að verið er að framleiða vín sem
eiga að falla í smekkinn alls staðar. Hafa engin sér-
einkenni en geta gengið hvar sem er. Ég er ánægð-
ur með Kaliforníuvín því þó þau séu berjarík og
vanti stundum þokkann þá eru þau bragðgóð.
Annar vandi sem vínræktendur í heiminum eiga
við að etja stafar af gróðurhúsaáhrifunum. Með
hækkandi hitastigi eykst alkóhólmagn vínanna
vegna vaxandi sykurinnihalds berjanna. Vín sem
voru 12-12,5% eru nú orðin allt að 14%. Þau
verða þyngri. Vín eins og Beaujolais verða ekk-
ert skemmtileg þegar þau eru komin uppfyrir sitt
kjöralkóhólmagn. Maður finnur jafnvel alkóhólið
í bragðinu. Það truflar.”
En hvernig notar þú vín. Daglega og þá alltaf
með mat eða bara við hátíðleg tœkifœri?
„Það er allur gangur á því. Stundum bragða ég
vín daglega en síðan líða kannski einhverjir dagar
á milli án þess. Maður verður að taka tillit til lifr-
arinnar. Hún vinnur úr 7 grömmum af alkóhóli á
klukkutíma og það er ekkert hægt að reka á eftir
henni. Lifrin er eins og kona í biðröð. Hún tekur
sinn tíma alveg sama hvað margir bíða. Gallinn
við flestar flöskur er þó sá að vínið geymist stutt
eftir að búið er að opna þær. Það er þó allt í lagi að
setja opnaða flösku í kæliskápinn í nokkra daga.
Það gerir víninu lítið til, sérstaklega hvítvíni. En ég
hef ekki vanið mig á að drekka vín með öllum mat.
Oárennilegur fiskur sem ég hef eldað sjálfur kallar
alls ekki á vín.”
En er ekki talsvert af þessu umstangi í kringum
vín óttalegt húmbúkk?
„Það verður það til dæmis þegar menn tala um
að vín séu ónýt vegna slæmrar geymslu. Ég reyni
að nota heilbrigða skynsemi í minni umgengni
við vín. Það er til dæmis yfirleitt út í hött að lykta
af tappanum. Því þó að tappinn sé grunsamlegur
þá verður maður að smakka á víninu til að ganga
úr skugga um að það sé drykkjarhæft. Geymsla á
víni er heldur ekki jafn mikilvægt atriði og margir
halda. Ég geymdi fínustu flöskurnar mínar uppi í
klæðaskáp lengi vel og það hefur ekki haft nein
áhrif á innihaldið.”
Hefurðu fengið ónýtt vín?
„Já, bæði á veitingastöðum og einnig í ríkinu.
Og þá skila ég því bara. Flestar skemmdir stafa frá
tappanum og margir vilja meina að korktappinn sé
alls ekki heppilegur tappi á vínflöskur."
llvað með aldur vína? Gildir reglan því eldri
því betri?
„Nei, það er nú ekki svo einfalt.Til að vín eldist
vel þurfa þau að vera fín í tauinu í upphafi.Tau er
Læknir óskast
í hlutastarf á Grund
Má vera notaður.
Nánari upplýsingar hjá yfirlækni
ÁrnaTómasi Ragnarssyni
í síma 530 6100
Læknablaðið 2006/92 881