Læknablaðið - 15.12.2006, Page 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MYNDGREINING
Sameindamyndgreining
Aðferð til að greina sjúkdóma á frumu- og sameindastigi
„Sameindamyndgreining er það nýjasta i mynd-
greiningu og flytur okkur frá því að geta einungis
greint það sem þegar er aflaga farið og til þess
að sjá breytingar í frumum áður en einkenni eru
farin að gera vart sig,” segir Vilmundur Guðnason
forstöðumaður Hjartaverndar en á dögunum
efndi Hjartavernd til málþings og kynningar um
sameindamyndgreiningu. „Aðferðum sem jafn-
gilda sameindamyndgreiningu hefur þó verið beitt
um skeið einsog til dæmis með joðupptökum og
geislamerkingum í skjaldkirtli. Þetta er þó alltaf
mjög staðbundið en með sameindamyndgreiningu
fær þetta mun breiðara notkunarsvið. Nú höfum
við aukna sameindaþekkingu og meiri þekkingu
á efnafræði frumna ásamt þessari tækni og þá er
okkur kleift að skoða einstakar sameindir og ein-
staka efnafræðilega ferla og menn hafa verið að
búa til efni og geislamerkja eða flúormerkja sem
hægt er að setja inn í efnaskiptaferla til að geta
metið efnaskipti í ákveðnum vefjum útfrá þeirri
vitneskju að ef um merkjanleg frávik frá því sem
telst normalt er að ræða er hægt að grípa inn í
ferilinn. Þetta er hugmyndafræðin á bakvið sam-
eindamyndgreiningu.”
Vilmundur segir að til þess að geta síðan stað-
sett nákvæmlega hvaðan merkið kemur þá sé
samtímis hægt að taka myndir með segulómun eða
tölvusneiðmyndun, „ . . . til að geta séð nákvæm-
lega hvar í strúktúrnum frávik í efnaskiptum eru
að eiga sér stað. Með þessu er hægt að greina mjög
vel sjúkdóma sem eru ekki farnir að hafa aflagandi
áhrif á líffærin. Sameindamyndgreining er mjög
gagnleg við greiningu krabbameina á frumstigi.
Staðsetja frumubreytingar og einnig til að fylgjast
með meðferð við krabbameinum og möguleikar
þessarar tækni eru fjölmargir en það er líka ótal
margt sem hafa verður í huga einsog kom skýrt
fram á málstofunni sem við héldum. Spurningar
vakna um hvort ráðast eigi til atlögu við allt sem
sameindamyndgreiningin leiðir í ljós. í þessu
verður að vera einhver skynsemi og hún fæst ekki
nema með ítarlegum rannsóknum. Þetta er aðferð
sem hentar okkur hér hjá Hjartavernd mjög vel
þar sem okkar hlutverk er að rannsaka tilurð
ákveðinna sjúkdóma, helst allra núna, og gera það
með sem bestum vísindalegum hætti og færa síðan
þekkinguna yfir í klíníkina.”
Sigurður Sigurðarson geislafrœðingur.
Vilmundur Guðnason forstöðumaður
Hjartaverndar.
Sigurður Sigurðarson geislafræðingur hjá
Hjartavernd segir að sameindamyndgreiningu
megi lýsa þannig að þar sé hægt að greina á sjón-
rænan hátt breytingar sem verða á frumu- og/eða
sameindastigi. „Til að lýsa muninum á þessu
tvennu, hefðbundinni myndgreiningu og sam-
eindamyndgreiningu, má segja að sú hefðbundna
hafi á sjónrænan hátt sýnt fram á breytingar í líf-
færum, einhvers konar aflaganir. Hins vegar hafa
einnig verið notaðar kjarnalækningar (ísótópar) til
að greina virknibreytingar í líffærakerfum eða líf-
færum en það hefur vantað tækni til að samtvinna
þetta: að sýna virknibreytingar á sjónrænan hátt
og hvar þær eiga sér nákvæmlega stað. Sameinda-
myndgreining sameinar að vissu leyti þetta tvennt,
nú er hægt að skoða sjónrænt hvar virknibreyt-
ingar eiga sér nákvæmlega stað á frumu- eða sam-
eindastigi.”
Þeir eru báðir sammála um að sameindamynd-
greining sé ein markverðasta nýjung í læknisfræði
sem komið hafi fram á seinni árum og Vilmundur
leggur áherslu á að með þessu færist forvarnir við
mörgum alvarlegum sjúkdómum á nýtt stig. „Með
því að standa skynsamlega að rannsóknum getur
sameindamyndgreining gert okkur kleift að skilja _
og greina alls kyns sjúkdóma löngu áður en þeir ^ avar
eru farnir að hafa áhrif á lífsgæði fólks.” Sigurjónsson
Læknablaðið 2006/92 885