Læknablaðið - 15.02.2008, Side 3
Læknafélag íslands 90 ára
„Til hamingju læknar," sagði Bima Jónsdóttir formaður Læknafélags íslands er hún setti
Læknadaga 2008 í Háskólabíói 21. janúar. Læknadagarnir fóru fram með miklum sóma dag-
ana 21.-25. janúar og voru málþing og fyrirlestrar mjög vel sóttir og gerður góður rómur að.
Læknafélagið var stofnað 14. janúar 1918 og verður afmælisins minnst sérstaklega í tengslum
við aðalfund félagsins í haust. Bima rifjaði upp dagskrá fyrsta stjórnarfundar Læknafélagsins
og minntist forkólfa félagsins á liðnum áratugum. Á myndinni má sjá í baksýn hluta myndar
er tekin var á 50 ára afmæli félagsins sem haldið var í Domus Medica að viðstöddum Kristjáni
Eldjám, þá nýkjömum forseta íslands.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
ívar Valgarðsson (f. 1954) setur í verkum sínum
fram hugleiðingar um skynjun. Litur er til dæmis
fyrirbæri sem umlykur alla, fólk skynjar á ólíkan
hátt en reynir samt að staðsetja innan staðlaðra
kerfa. ívar hefur löngum unnið með iðnaðar-
málningu sem framleidd er
í mismunandi litum til nota
innanhúss og kynnt er á
dæmigerðum litaspjöldum.
Litum eru þar fengin Ijóðræn
og söluvænleg nöfn eins og
„hrímhvítt“, „sólgult" eða
„fagurblátt" og þannig er
settur staðall á fyrirbæri sem
er eins persónubundið og
hugsast getur.
( verki sem er um þessar
mundir til sýnis í i8 galleríi og heitir „Stilla" er opin
málningarfata með bláum lit á miðju gólfi, eins og
nýkomin úr búðinni og tilbúin til notkunar. Fyrir
ofan hana er öryggismyndavél sem beint er að
ósnortnu yfirborði litarins og tengd nærliggjandi
skjávarpa. („beinni útsendingu" er litnum varpað
þannig að blár flötur myndast á hvítum gall-
eríveggnum, eins og vatn í stillu. Hann sýnir ekki
aðeins bláa litinn, heldur einnig endurkast Ijósanna
í blautri málningunni auk ryks og annars tilfallandi
sem sest hefur á yfirboröið í fötunni. Verkið er
þannig leikur að hugmyndinni um hefðbundið mál-
verk sem hangir á vegg og eins fyrirbærinu vegg-
málningu sem í stað þess að vera málað á vegginn
er varpað gegn um vídeó. ívar leikur sér á sömu
nótum með bláa litinn í verkinu „Gárur“ (2008) sem
prýðir forsíðu Læknablaðsins að þessu sinni. Er
ekki greinilegt af hverju myndin er, fljótt á litið? ívar
beinir Ijósmyndavélinni að yfirborði þar sem hann
er nýbúinn að rúlla einni umferð
af sama bláa litnum og í föt-
unni í verkinu sem var lýst hér
að ofan. Málningin er glansandi
blaut og yrjótt eftir rúlluna. Með
perspektífi þvert á flötinn næst
fram blekking sem illmögulegt
er að ímynda sér að sé nokkuð
annað en gárótt yfirborð vatns
eða hafs. Ljósmyndin er í raun
tekin af yfirborði málverks sem
(var var að vinna að, en mál-
verkin hans eru heldur óvenjuleg. Hann rúllar einu
lagi eftir annað af innanhússmálningu á viðarbút
þannig að þykkur hjúpur myndast. Með því að
skiptast á litum má í köntum verksins sjá lagskipt-
inguna eftir tugi umferða eins og jarðfræðilegan
þverskurð.
Með réttu mætti segja að ívar iðki „estetík" í
bókstaflegri merkingu þess orðs. í orðabókum
útleggst það sem „fagurfræði11 en upprunans er að
leita í gríska orðinu „aisthesin“ sem merkir skynjun
en ekki fegurð og þannig væri í þessu samhengi
frekar hægt nota orðið „skynjunarfræði".
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www. laeknabladid. is
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
564 4104-564 4106 (fax)
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ábm. og ritstjóri
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Margrét Árnadóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@lis.is
Blaðamaður/Ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun, bókband
og pökkun
Gutenberg ehf.
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2007/93 95