Læknablaðið - 15.02.2008, Page 17
FRÆÐIGREINAR
SYKURSÝKI 2
Friðný
Heimisdóttir1’2
unglæknir
Vilmundur
Guðnason12
læknir og erfðafræðingur
Gunnar
Sigurðsson1'2’3
innkirtlalæknir
Rafn
Benediktsson1’23
sérfræðingur í
lyflækningum, innkirtla- og
efnaskiptasjúkdómum
Lykilorð: sykursýki af tegund 2,
fótamein, algengi, taugakvilli.
1Hjartavernd, Holtasmára
1, 201 Kópavogi,
2læknadeild HÍ,
Vatnsmýrarvegi 16,101
Reykjavík,
3innkirtla- og
efnaskiptasjúkdómadeild
Landspítala Fossvogi, 108
Reykjavík.
Fyrirspurnir og
bréfaskipti: Rafn
Benediktsson, innkirtla- og
efnaskiptasjúkdómadeild
Landspítala Fossvogi, 108
Reykjavík. Sími: 543-1000.
rafn@hi.is
Einkenni og teikn fótameins hjá
íslenskum sjúklingum með
sykursýki af tegund 2
Ágrip
Tilgangur: Að kanna algengi einkenna og teikna
um fótamein hjá fullorðnum íslendingum með
þekkta sykursýki af tegund 2 og bera niðurstöður
saman við sambærilegan hóp fólks án sykursýki.
Efniviður og aðferðir: Þýðið var 41 einstaklingur
á aldrinum 48-75 ára með þekkta sykursýki af teg-
und 2 (SS2) í að minnsta kosti 8 ár, fæðingardag á
bilinu 1925-1965 og búsetu á höfuðborgarsvæðinu,
auk 34 maka á aldrinum 43-75 ára án sykursýki
(viðmið). Þátttakendur svöruðu stöðluðum spum-
ingum og voru skoðaðir ítarlega af sama aðila með
tilliti til einkenna og teikna sem talin eru einkenna
fótamein hjá sykursjúkum.
Niðurstöður: Algengasta einkennið var sinadrátt-
ur (37% einstaklinga með SS2 og 29% viðmiða) en
þessi munur var ekki marktækur tölfræðilega og
sama gilti um meðalsvæsin eða svæsin einkenni
um taugakvilla sem fundust hjá 39% SS2 sjúklinga
og 27% viðmiða. Claudicatio intermittens var
til staðar hjá 29% SS2 sjúklinga og 9% viðmiða
(p<0,03). Taugakvilli var til staðar, samkvæmt
skilgreiningu sem byggir bæði á einkennum og
teiknum, hjá 12% SS2 sjúklinga en engum í saman-
burðarhópi (p<0,04). Algengasta teiknið var þurr
húð (51% einstaklinga með SS2 og 18% viðmiða,
p<0,003). Óeðlilegt titringsskyn var til staðar hjá
34% SS2 hópsins og 12% viðmiða (p<0,003), en
þrýstingsskyn var óeðlilegt hjá 20% SS2 sjúklinga
og 3% viðmiða (p<0,003). Útæðasjúkdómur var
talinn vera til staðar hjá 15% hvors hóps.
Ályktun: Einkenni og teikn frá fótum eru algeng,
hvort sem fólk hefur sykursýki eða ekki. Algengi
taugakvilla hjá íslendingum með sykursýki 2 er
með því lægsta sem birt hefur verið. Mat á fóta-
meini sykursjúkra þarf að vera staðlað og byggja á
mörgum þáttum, bæði einkennum og kerfisbund-
inni skoðun.
Inngangur
Sykursýki af tegund 2 (SS2) sem telur um 90%
sykursjúkra er algengt og vaxandi vandamál á
Islandi sem og í öðrum löndum heims (1). Uppúr
aldamótunum 2000 var talið að um 5% karla og 3%
kvenna á aldrinum 45-64 ára á íslandi hefðu þessa
tegund sykursýki og algengið hafði þá aukist um
því sem næst 50% á 30 árum (1).
Sykursýki af tegund 2 er oft einkennalaus fyrstu
ENGLISH SUMMARYHH
Heimisdóttir F, Guönason V, Sigurðsson G, Benediktsson R
Foot Disease in lcelandic Patients with Established TVpe 2 Diabetes
Objective: To assess the prevalence of symptoms and
signs of diabetic foot disease in patients with established
type 2 diabetes (T2DM) in lceland and compare it to
controls without diabetes.
Materials and Methods: Participants were 41 individuals
(age range 48 to 75 years), with diabetes of at least 8
years duration, birth date between 1925 and 1965 who
were living in the greater Reykjavik area. The control group
consisted of 34 spouses without diabetes (age range 43
- 77 years).
Results: The most common symptom was leg cramps
which affected 37% of patients with T2DM and 29% of
controls (difference not statistically significant). Moderate
or severe symptoms indicating neuropathy were found in
39% of T2DM patients and in 27% of controls (difference
not statistically significant). Intermittent claudication was
present in 29% of patients with T2DM and 9% of controls
(p<0.03). Based on both symptoms and signs, neuropathy
was considered present in 12% of patients with T2DM
but none of the controls (p<0.04). The most common sign
was dry skin, present in 51 % of patients with T2DM and
in 18% of controls (p<0.003) while abnormal vibration
perception was found in 34% of patients with T2DM and
12% of controls (p<0.003). Abnormal pressure sensation
was found in 20% patients with T2DM and 3% of
controls (p<0.003). Peripheral macrovascular disease was
considered present in 15% of each group.
Conclusion: Symptoms and signs from feet are common
in adult individuals, regardless of diabetes. The observed
prevalence of peripheral diabetic neuropathy is among the
lowest published. The assessment of diabetic foot disease
needs to be standardised, multimodal and take account of
both symptoms and signs.
Key words: Type 2 diabetes mellitus, diabetic foot, neuropathy,
prevalence.
Correspondence: Rafn Benediktsson, rafn<Shi.is
LÆKNAblaðið 2008/94 109