Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2008, Síða 34

Læknablaðið - 15.02.2008, Síða 34
FRÆÐIGREINAR KRABBALÍKISÆXLI Tafla I. Samanburður á sjúklingum með dæmigerð og afbrigðileg krabbalíki í lungum á íslandi 1955-2005. (Gefinn er upp fjöldi sjúklinga og prósentur í sviga). Vefjafræði Dæmigerð Afbrigðileg Samtals Konur(%) 32 (59,3) 10 (100) 42 (65,6) Meðalaldur 47 59,7 Æxli staðsett utarlega í lunga (%) 13(24,1) 2 (20) 15 (23,4) Æxlisstærð (cm) 2,41 3,11 Eitilmeinvörp (%) 6(11,1) 2 (20) 8 (12,5) Fjarmeinvörp (%) 2(3,7) 4 (40) 6 (9,4) Inngangur Krabbalíki eru æxli sem eiga rætur sínar að rekja til taugainnkirtlafrumna (neuroendocrine cells) (1). Þessi æxli greinast oftast í kviðarholi, sér- staklega í botnlanga (2). í fjórðungi tilfella greinast þau í lungum og/eða berkjum og eru þau oftast í kringum 2% af illkynja æxlum í lungum (1, 3). Krabbalíki í lungum greinast í báðum kynjum og á öllum aldri. Yfirleitt vaxa þau hægt og stað- bundið, en einnig er vel þekkt að þau meinverpist og er það helsta ástæða þess að þau eru flokkuð með illkynja æxlum. Meðferð felst í skurðaðgerð þar sem æxlið ásamt nærliggjandi lungnavef er fjarlægt (1,4,5). Krabbalíki eru oft miðlægt í lung- um og getur þá þurft að grípa til umfangsmikilla skurðaðgerða til að komast fyrir þau. Hefð er fyrir því að flokka krabbalíki í lungum í tvo flokka eftir vefjagerð; annars vegar dæmigerð og hins vegar afbrigðileg krabbalíki (6). Þessi flokkun er einn sterkasti forspárþáttur lífshorfa hjá þessum sjúklingum (1, 3, 4, 7, 8) en sjúklingar með afbrigðilega vefjagerð eru oftar með mein- vörp og lífshorfur þeirra eru umtalsvert lakari. Vefjagerð þessara æxla hefur því verið notuð til að ákveða hversu umfangsmikla skurðaðgerð eigi að framkvæma (1, 5, 7, 9). Óvíst er þó hvort þessi skipting sé áreiðanleg og hvort vefjagerð sé örugg vísbending um klíníska hegðun þessara æxla. Tilgangur þessarar rannsóknar var að rannsaka faraldsfræði krabbalíkisæxla á Islandi en jafnframt kanna árangur meðferðar og afdrif sjúklinga út frá því hvort þeir greindust með dæmigerða eða afbrigðilega vefjagerð. Efniviður og aðferðir Rannsóknin er afturskyggn og var samþykkt af bæði Vísindasiðanefnd og Persónuvernd. Hún nær til allra greindra tilfella af krabbalíki í lungum á íslandi á tímabilinu frá 1. janúar 1955 til 31. desember 2006. Tilfelli fundust í gegnum krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Islands en til að tryggja að öll tilfelli væri tekin með í rannsókn- ina var einnig leitað í greiningarskrám sjúkrahúsa og gagnagrunni Rannsóknarstofu Landspítala í meinafræði (frá 1984). Upplýsingar um sjúklinga fengust úr sjúkra- skrám. Skráðar voru eftirfarandi breytur; aldur, kyn, aðrir sjúkdómar (til dæmis hjarta- og lungna- sjúkdómar), reykingasaga og einkenni við grein- ingu. Tilviljanagreining var skilgreind sem æxli sem greindust án einkenna, langoftast vegna myndrannsókna sem framkvæmdar voru vegna einkenna sem ekki var hægt að rekja til æxlis í lungum. Einnig var skráð staðsetning æxlis í lung- um og stærð þeirra. Vefjasýni voru yfirfarin að nýju af sérfræðingi í meinafræði (HJÍ), án þess að hann hefði klínískar upplýsingar til hliðsjónar. Við vefjagreiningxma var stuðst við nýjustu skilmerki sem gefin hafa verið út af Alþjóða heilbrigðismála- stofnuninni (WHO) (10). Æxlunum var skipt í tvo flokka, dæmigerð og afbrigðileg samkvæmt eftirfarandi skilmerkjum. í fyrrnefnda flokknum voru æxli sem einkennast af áberandi kirtilmynstri með hreiðrum og bjálkum af einsleitum frumum og kjörnum og þar sem færri en fimm frumuskipt- ingar sjást í 10 HPF-ljós-smásjáreiningum (high power field) og ekkert drep. Afbrigðilega vefja- gerðin einkennist hins vegar af fleiri en fimm frumuskiptingum og drepi þar sem frumurnar raðast óskipulega og kjarnar eru misleitir (10,11). Æxlin voru stiguð afturvirkt í samræmi við alþjóðlegt stigunarkerfi lungnakrabbameina frá 1999 (10). Stigunarrannsóknir fyrir aðgerð voru lungnamynd og tölvusneiðmyndir af brjóstholi auk tölvusneiðmynda af kviði eftir 1980. Einnig var stuðst við upplýsingar um berkjuspeglanir og miðmætisspeglanir sem gerðar höfðu verið. Jáeindaskanni (positron emission tomography, PET) var hins vegar ekki notaður við stigun í neinu tilfellanna. Skurðaðgerðimar voru yfirleitt í gegnum brjóstholsskurð á milli 4. og 5. rifbeins (post- erolateral thoracotomy) og voru sjö skurðlæknar sem framkvæmdu aðgerðirnar. Skurðdauði var skilgreindur sem dauði innan 30 daga frá skurð- aðgerð. Við tölfræðilega útreikninga var notast við t- próf og Mann-Whitney próf. Marktæki miðast við p-gildi undir 0,05. Reiknaðar vom út lífshorfur (sjúkdómasértækar) samkvæmt aðferð Kaplan- Meier. Log-rank próf var notað til að bera saman lífshorfur mismunandi hópa. Útreikningar mið- uðust annars vegar við aðgerðardag og hins vegar 31. desember 2006 en þá var kannað hvaða sjúk- lingar voru á lífi samkvæmt Þjóðskrá Hagstofu íslands. Dánarorsakir þeirra sem höfðu látist voru skráðar og kannað hvort þeir höfðu látist úr krabbalíki í lungum. Meðaleftirlitstími (follow-up) var 142 mánuðir. 126 LÆKNAblaðið 2008/94
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.