Læknablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 36
FRÆÐIGREINAR
KRABBALÍKISÆXLI
100
80-
60-
40-
20-
Afbrigóilegar
Dæmigerðar
10
20
30
40
50
Ár
Mynd 1. Lífshorfiir (sjúk-
dóma sértækar) 64 sjúklinga
eftir vefjagerð (dæmigerð og
afbrigðileg) sem greindust
með kmbbalíki í lungum á
íslandi 1955-2006.
var hann greindur með endurtekið æxli í lunga,
meinvörp í miðmætiseitlum auk fjarmeinvarpa.
Við eftirlit höfðu fimm af 64 sjúklingum látist
úr sjúkdómnum (7,8%). Tveir þeirra höfðu lifrar-
meinvörp og var annar þeirra með dæmigerða
vefjagerð. Einn sjúklingur hafði meinvörp í litla
heila og annar greindist með efri holæðar heil-
kenni, báðir með afbrigðilega vefjagerð. Loks var
einn sjúklingur með dæmigerða vefjagerð sem
greindist með endurtekin meinvörp í lunga og dó
úr meinvörpum í lifur.
Fimm ára lífshorfur (disease/cancer specific
survival) voru 86% fyrir hópinn í heild og 96%
fyrir sjúklinga með dæmigerða vefjagerð og 70%
fyrir þá sem voru með afbrigðilega vefjagerð
(p<0,05) (mynd 1).
Umræða
Þessi rannsókn náði til allra tilfella krabbalíkis í
lungum á Islandi frá 1955-2006 og sýnir að lífslíkur
eru ágætar hér á landi. Arangur af skurðaðgerðum
var góður og fimm árum frá greiningu voru 86%
sjúklinga á lífi. Langtímahorfur voru sérstaklega
góðar hjá sjúklingum með dæmigerða vefjagerð
en 96% þeirra reyndust á lífi fimm árum eftir
greiningu. Meðal sjúklinga með afbrigðilega vefja-
gerð voru 70% á lífi fimm árum eftir aðgerð (p<
0,05). Vefjagerð æxlis reyndist þó ekki óbrigðul við
mat á klínískri hegðxm þessara æxla. Þannig höfðu
átta sjúklingar (14,8%) með dæmigerða vefjagerð
meinvörp við greiningu og einn greindist með
meinvörp fimm árum síðar. Tíðni meinvarpa var
vissulega lægri en meðal tilfella með afbrigðilega
vefjagerð (40%). Niðurstöður okkar sýna þó að
ekki er unnt að treysta því að krabbalíki með
dæmigerða vefjagerð sýni af sér „góðkynja" hegð-
un og þessi æxli geta meinverpst og leitt til dauða.
Þá hefur nýlega verið sýnt fram á að eitilmeinvörp
í miðmæti (3,10,12,13) séu ekki síður sterkur for-
spárþáttur hvað varðar lífshorfur en afbrigðileg
vefjagerð (3, 7,13,14) og er það í samræmi við nið-
urstöður þessarar rannsóknar.
Niðurstöðum okkar ber saman við fjölda er-
lendra rannsókna þar sem fimm ára lífshorfur eru
oftast á bilinu 78-90% fyrir hópinn í heild (1,3,4, 7,
8), 87-100% fyrir sjúklinga með dæmigerða vefja-
gerð (3-5, 7, 14) og 44-78% fyrir sjúklinga með
afbrigðilega vefjagerð (3-5, 7,8,14,15). Afbrigðileg
vefjagerð hefur því marktækt verri horfur og
munar allt að 20-30% í fimm ára lífshorfum sam-
anborið við dæmigerða vefjagerð (1, 3-5, 7, 8, 14,
15) .
Vefjagreining dæmigerðs krabbalíkis er yfirleitt
án vandkvæða en fyrir afbrigðileg krabbalíki eru
mismunagreiningar fleiri, svo sem önnur sjald-
gæfari æxli af taugainnkirtlafrumu-uppruna og
jafnvel lungnakrabbamein af smáfrumugerð.
Nýgengi krabbalíkis í lungum á Islandi er
svipað og í nágrannalöndum okkar (15). Sama er
að segja um hlutfall krabbalíkis af öllum illkynja
æxlum i lungum (1,9%), en í flestum rannsóknum
er þetta hlutfall í kringum 2% (bil 2-5%) (1-3, 16).
Tilhneiging var til aukningar í nýgengi þegar
leið á rannsóknartímabilið. Svipuð þróun hefur
sést erlendis (6, 15) og skýrist líklega að stórum
hluta af aukningu á tilviljanagreindum tilfellum,
aðallega vegna vaxandi notkunar myndrannsókna
á brjóstholi og þá sérstaklega tölvusneiðmynda
(16) . í þessari rannsókn greindist þriðji hver
sjúklingur fyrir tilviljun sem er svipað hlutfall og í
nýlegum erlendum rannsóknum (3, 7,16).
Þessi rannsókn nær til allra tilfella sem greind-
ust á landinu í rúmlega hálfa öld. Okkur er
ekki kunnugt um aðrar rannsóknir á krabbalíki
í lungum sem ná til heillar þjóðar á svo löngu
tímabili. Einnig er styrkur rannsóknarinnar að
leitað var að tilfellum í þremur mismunandi
skrám sem minnkar líkur á því að tilfelli vanti í
rannsóknina. Þarna vegur þyngst krabbameins-
skrá Krabbameinsfélags Islands en þar eru skráð
öll krabbamein sem greinst hafa á íslandi frá 1955
(17) . Því verða nýgengistölur sem reiknaðar eru út
í þessari rannsókn að teljast áreiðanlegar.
Meðalaldur sjúklinga við greiningu var 49 ár
sem er sambærilegt við aðrar rannsóknir (3,4, 7,8,
16) . Sama á við um hærri meðalaldur hópsins með
afbrigðilega vefjagerð en þeir reyndust rúmlega
10 árum eldri en sjúklingar með dæmigerða vefja-
gerð (1, 7,15,16). Þetta er þó ekki algilt og til eru
128 LÆKNAblaðið 2008/94