Læknablaðið - 15.02.2008, Page 45
U M R Æ Ð U R 0 G F R É T T I R |
L Æ K N A R A Ð STJ Ó R N A
einföldu spurningar hvort vinnubrögðin væru
rétt. Samkeppnisgreinar á börð við lyfjaiðnaðinn
og tækniiðnaðinn hafa þróast á allt annan hátt og
vinnubrögð haldist í hendur við tækniframfarir.
Starfið á sjúkrahúsinu er auðvitað ólíkt því sem
viðgengst í iðnaðarframleiðslu en við erum þó að
fást við flæði sjúklinga í gegnum sjúkrahúsin og
heilbrigðiskerfið hefur ekki notfært sér kunnátt-
una sem er til staðar í öðrum greinum við hagræð-
ingu og framleiðni."
Er pá ekki tiltölulega auðvelt aðframkvæma róttæk-
ar breytingar úr pví vinnubrögðin eru svo gamaldags?
„Það er hreinlega lygilegt hvað hægt er að ná
miklum árangri með smávægilegum breyting-
um á vinnuferlum. Hver gerir hvað og hvað eru
margir í rauninni að gera það sama. Tökum lítið
dæmi. Sjúklingur sem kemur á bráðamóttöku hitt-
ir fyrst starfsmann í móttöku og svarar nokkrum
spumingum. Síðan hittir hann sjúkraliða, þar á
eftir hjúkrunarfræðing og loks lækni. Þetta tekur
kannski tvo klukkutíma og á þeim tíma er búið
að spyrja sjúklinginn sömu spurningam-ia allt
að fjórum sinnum. Ekkert hefur í rauninni gerst
ennþá. Þegar maður svo sýnir starfsfólkinu þetta
þá rennur upp fyrir því ljós og það spyr strax
hvað það geti gert til að breyta þessu. Það er mik-
ilvægast. Að starfsfólkið byrji sjálft að hugsa um
hvernig hægt sé að breyta þessu. Það hefur stuðn-
ing stjórnendanna sem hjálpa því að taka í notkun
nýja starfshætti."
Reynslan af læknisstarfinu nauðsynleg
Hefur petta haft íför með sérfækkun starfsfólks?
„Nei, enda er það alls ekki markmið breyting-
anna að fækka starfsfólki. Markmiðið er að bæta
þjónustuna og gera hana skilvirkari. Hins vegar
hefur komið á daginn að á vissum starfsstöðvum
eru of margir starfsmenn og á öðrum of fáir. Þá
hefur verið hægt að færa fólk til í samræmi við
það. Starfsmenn þurfa ekki að hafa áhyggjur af því
að þessar breytingar hafi í för með sér að þeir missi
vinnuna. Heilbrigðiskerfið hefur skort hæft starfs-
fólk og eftirspurnin eykst þar sem eftirspurnin
eftir þjónustunni fer vaxandi. Markmið breyting-
anna er að auka þjónustuna og framleiðnina án
þess að auka kostnaðinn og það er mjög vel hægt
að gera það ef skilningur starfsmanna er vakinn."
Telurðu aðstarfpitt sem læknir liafi komiðaðgóðum
notum í starfi pínu sem sjúkrahússtjóri?
„Skýrar línur um starfs- og
valdsvið eru nauðsynleg-
ar," segir Birgir Jakobsson,
sjúkrahússtjóri Karolinska
sjúkrahússins í Stokkhólmi.
LÆKNAblaðið 2008/94 137