Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2008, Page 66

Læknablaðið - 15.02.2008, Page 66
AUGLYSING Valtýr Bjarnason svæfinga-læknir hugar að sjúklingi á Landspítala. Myndin er tekin 1958 af Andrési Kolbeinssyni Ijós- myndara. Birt með góðfúslegu leyfi Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Sameiginlegt vísindaþing Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands Hótel Hilton Nordica 11.-12. apríl 2008 Haldið í samvinnu við Félag bráðalækna og félög háls-, nef- og eyrnalækna og kvensjúkdómalækna. Þingið hefst á föstudagsmorgni og lýkur eftir hádegi á laugardegi. Að þingi loknu verður sameiginlegur kvöldverður meó skemmtiatriðum, nánar auglýst síðar. Fjöldi erlendra fyrirlesara mun sækja þingið og halda fyrirlestra um ýmis efni sem tengjast skurðlækningum og svæfingum. Einnig verða frjáls erindi og veggspjaldakynning þar sem höfundar kynna veggspjöld sín og svara spurningum. Keppt verður um hvatn- ingarverðlaun Jónasar Magnússonar prófessors, valin verða bestu ágrip unglækna eða læknanema og munu höfundar þeirra fiytja erindi sín á laugardeginum. • Ágrip erinda og veggspjalda verða birt í fylgiriti Læknablaðsins. • Ágripin skulu skrifuð á íslensku, lengd 1800 slög (stafir með bilum), og í þeim skal koma fram: a) inngangur, b) efniviður og aðferðir, c) niðurstöður og d) ályktun. • Ágrip skulu send til Gunnhildar Jóhannsdóttur, skrifstofustjóra skurðdeildar Landspítala og ritara þingsins: gunnhild@landspitali.is • Erindi verða 7 mínútur að lengd og 3 mínútur í umræður. • Veggspjöld eiga að vera 90 x 120 cm á stærð. • Skilafrestur ágripa er á miðnætti 1. mars 2008. Undirbúningsnefndin í TENGSLUM VIÐ ÞINGIÐ VERÐA HALDNIR AÐALFUNDIR SKÍ OG SGLÍ.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.