Læknablaðið - 15.02.2008, Blaðsíða 66
AUGLYSING
Valtýr Bjarnason
svæfinga-læknir
hugar að sjúklingi á
Landspítala.
Myndin er tekin
1958 af Andrési
Kolbeinssyni Ijós-
myndara.
Birt með góðfúslegu
leyfi Ljósmyndasafns
Reykjavíkur.
Sameiginlegt vísindaþing Skurðlæknafélags íslands
og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands
Hótel Hilton Nordica 11.-12. apríl 2008
Haldið í samvinnu við Félag bráðalækna og félög háls-, nef- og eyrnalækna og kvensjúkdómalækna.
Þingið hefst á föstudagsmorgni og lýkur eftir hádegi á laugardegi.
Að þingi loknu verður sameiginlegur kvöldverður meó skemmtiatriðum, nánar auglýst síðar.
Fjöldi erlendra fyrirlesara mun sækja þingið og halda fyrirlestra um ýmis efni sem tengjast skurðlækningum og svæfingum. Einnig
verða frjáls erindi og veggspjaldakynning þar sem höfundar kynna veggspjöld sín og svara spurningum. Keppt verður um hvatn-
ingarverðlaun Jónasar Magnússonar prófessors, valin verða bestu ágrip unglækna eða læknanema og munu höfundar þeirra fiytja
erindi sín á laugardeginum.
• Ágrip erinda og veggspjalda verða birt í fylgiriti Læknablaðsins.
• Ágripin skulu skrifuð á íslensku, lengd 1800 slög (stafir með bilum), og í þeim skal koma fram:
a) inngangur, b) efniviður og aðferðir, c) niðurstöður og d) ályktun.
• Ágrip skulu send til Gunnhildar Jóhannsdóttur, skrifstofustjóra skurðdeildar Landspítala og ritara þingsins:
gunnhild@landspitali.is
• Erindi verða 7 mínútur að lengd og 3 mínútur í umræður.
• Veggspjöld eiga að vera 90 x 120 cm á stærð.
• Skilafrestur ágripa er á miðnætti 1. mars 2008.
Undirbúningsnefndin
í TENGSLUM VIÐ ÞINGIÐ VERÐA HALDNIR AÐALFUNDIR SKÍ OG SGLÍ.