Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 58

Læknablaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 58
Mynd: Hörður Ásbjörnsson HUGLEIÐING HOFUNDAR Ingibjörg Sólrún gengur í NATO. Um kímnigáfu, þjóðerni og hernað Einar Már Guðmundsson Einar Már Guðmundsson (1954) er löngu landsþekkt skáld. Bækur hans eru m.a.: Er nokkur í kórónafötum hér inni? (1980), Riddarar hringstigans (1982), Fólkið í steininum (1992), Englar alheimsins (1993), Fótspor á himnum (1997), Draumar á jörðu (2000), Bítlaávarpið (2004) og Rimlar hugans (2007). Hann skrifaði handrit að kvikmyndunum Börn náttúrunnar og Englar alheimsins ásamt Friðriki Þór Friðrikssyni. Einar Már hefur fengið fjölmargar viðurkenningar fyrir ritstörf sín, verið margtilnefndur til íslensku bókmenntaverðlaunanna og fékk Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Engla alheimsins árið 1995. Bækur hans hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál um allan heim. Ég las eitt sinn úr verkum mínum á Englandi. Að upplestri loknum reis kona úr sæti sínu og sagði: "You seem to have a very English sense of humour." Konan var að hrósa mér. Þegar Englendingar tala um enskt skopskyn meina þeir gott skopskyn. Samt sýnir þetta hrokann, hvernig hann er vaxinn inn í tungumálið, þegar hin fornu stórveldi telja jafnvel kímnigáfuna séreign sína. í annað sinn las ég upp fyrir Zulumenn í borginni Durban í Suður-Afríku. Ég las upp á ensku og allt var um leið þýtt yfir á tungumál þeirra. Zulumennirnir hlógu að öllu sem ég sagði, hvort sem þeim þótti ég svona spaugilegur eða fyndinn, en enginn þeirra sagði: "You seem to have a very Zulu sense of humour." Við búum á hnetti. Hann er einsog kúla í laginu. Þess vegna er engin miðja. Miðjan er undir iljum sérhvers jarðarbúa. Því segi ég: Ekki tala um stórar þjóðir og litlar þjóðir, útkjálka, heimshorn og jaðra. Ef þessari eðlilegu landafræði væri fylgt byggjum við í betri heimi og þá væru voldugar og vanmáttugar þjóðir ekki til. Þá væri engin ástæða til að ráðast inn í lönd og slá eign sinni á olíulindir og önnur nátt- úrugæði. Við notum tvö orðatiltæki sem í fljótu bragði virðast stangast á. Annað segir: Heimskur er sá sem heima situr, en hitt er Heima er best. Þetta þýðir í rauninni að við eigum að fara burt og koma svo aftur, eða með öðrum orðum: Við eigum að vera opin fyrir heiminum en rækta okkar eigin garð. Þannig kemur heimurinn til okkar og við til hans. Margir líta svo á að alþjóðavæðingin hafi fokkað þessu upp, að menn séu hvorki heima hjá sér né að heiman, en í gegnum tíðina höfum við litið svo á að við eigum að vera sjálfstæð en í stöðugum sam- skiptum við umheiminn. Nú virðist hins vegar sjálf- stæðið hætt að skipta máli af því að það sé hvort eð er horfið. Bjartur í Sumarhúsum sagði að sjálfstæði væri betra en kjöt. Því virðist nútíminn algjörlega ósam- mála. Nú má nánast gefa allt fyrir ódýrar matvörur þó flestir virðist hafa nóg að éta að því er best verður séð í hjáveituaðgerðum og öðru. Aumingja krónan, hún er einsog Bjartur í Sumarhúsum, nema ekki jafnstolt, og erfitt um að segja hver sé Rauðsmýrarmaddaman, seðlabankastjóri eða evruspekingarnir. Hugmyndir Fjölnismanna og Jóns Sigurðssonar, innblásnar af þýsku rómantíkinni og frönsku bylt- ingunni, hafa ekkert gildi lengur ef við getum étið á okkur gat af innfluttu svínakjöti og þegið um leið reglugerðir um allt milli himins og jarðar. Þetta er veruleikinn, en spurningin er, hvað finnst okkur um hann? Hver er við völd? Er það feiti þjónninn eða barði þrællinn? Ég sá heimildarmynd um Almeria-svæðið á Suður-Spáni. Þar er framleiddur þriðjungur af vetr- arneyslu Evrópubúa á grænmeti og ávöxtum. I enda- lausri þyrpingu gróðurhúsa vinna 80.000 innflytj- endur í andrúmslofti sem búið er að eyðileggja með skordýraeitri. Innflytendumir eru á skítakaupi og eru margir orðnir vitskertir út af aðbúnaðinum. Þetta er ekkert annað en þrælahald þó það heiti eitthvað artnað. Þetta er ein skýringin á því hvernig hægt er að halda matvælaverði niðri í Evrópu og sá kraumandi pottur sem margir íslendingar vilja svo ólmir komast í og bera einmitt fyrir sig þetta, matvælaverðið. Nú þegar orkukreppan er skollin á með tilheyr- andi bensínhækkunum, skiptir þá ekki einmitt máli að geta framleitt sín eigin matvæli, að rækta sinn garð? Tahítíbúar lögðu niður kornrækt til að fá ódýrt korn frá Bandaríkjunum. Nú hefur kornið hækkað en engin kornrækt á Tahítí. Því segi ég: Byrjum að taka til heima hjá okkur. Lækkum raforkuverð til gróð- urhúsabænda og virkjum líka orkuna sem í okkur býr. Hugsum um gæðin, ekki bara magnið. Tökum til. Við getum ekki gefið það af okkur sem við höfum ekki öðlast sjálf. í heimildamyndinni um Almeria-svæðið var nefni- lega ekki síður fróðlegt að heyra eigendur búgarð- anna réttlæta athafnir sínar. Jú, sögðu þeir, þeir voru í samkeppni á markaði og kepptu við markaði þar sem enn meira þrælahald tíðkaðist, í Mið-Ameríku og Afríku. Þetta eru nákvæmlega sömu röksemdirnar og fulltrúar íslenska kvótakerfisins nota þegar heilu byggðalögin eru skilin eftir tómhent. Eða einsog segir í ljóðinu: Hinn frjálsi maður er ekki lengur veginn með vopnum, ekki höggvinn í herðar niður eða brenndur á báli. Þess í stað er honum svipt burt með snyrtilegri reglugerð og málinu skotið til markaðarins sem mállaus vinnur sín verk. Fyrir nokkrum árum stóð til að Færeyingar hlytu fullt sjálfstæði. Deilt var um aðlögunartíma. Færeyingar vildu hafa hann fimmtán árum lengri en danska stjórnin vildi veita þeim. Nú kunna að hafa legið ýmis rök fyrir því, en samt var þetta skrýtið. Ég fór að hugsa, hvað hefðu íslensku frelsishetjurnar frá nítjándu öld sagt við þessu? Nú eða Bjartur í Sumarhúsum? Kannski eru Færeyingar bara svona vel upp aldir, að þegar þeim er boðið að verða sjálfstæðir strax vilja þeir fá að vera ósjálfstæðir fimmtán árum lengur. Er það ekki bara staðreynd að nú er feiti þjónninn við 570 LÆKNAblaðið 2008/94
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.