Læknablaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 59
HUGLEIÐING HOFUNDAR
völd og allir hugsa með hans höfði. Þannig er búið
að valta yfir Bjart í Sumarhúsum og allar hugmyndir
um sjálfstæði eru afgreiddar sem fortíðarhyggja.
Því segi ég einsog Halldór Laxness, skapari Bjarts,
eigum við ekki að lyfta umræðunni á hærra plan?
Skiptir til dæmis sjálfstæðið okkur máli? Viljum við
búskap? Viljum við byggð? Ætlum við bara að vera
kotungar hjá kóngi og smjaðra fyrir skriffinnum? Á
bara að svipta öllu burt með snyrtilegum reglugerð-
um og skjóta málinu til markaðarins sem mállaus
vinnur sín verk? Hvar stöndum við sem hreiðrað
höfum um okkur hér á hrjóstrugri hundaþúfu undir
Grænlandsjökli? Jú, heimskur er sá sem heima situr
en heima er best.
Og þá erum við komin aftur að upphafinu, miðju
heimsins, þar sem hver jarðarbúi stendur. Við þekkj-
um friðarboðskap Johns Lennon úr laginu Imagine,
að við eigum ekki að láta hugmyndir um himnaríki
eða helvíti stjórna okkur, og ekki landamæri - sbr.
læknar án landamæra - og þá er engin ástæða til að
drepa, og enginn málstaður til að deyja fyrir. Já, kallið
mig bara draumóramann, segir John Lennon, but I am
not the only one, ég er ekki sá eini... Friðarboðskapur
Chaplins í lok Einræðisherrans er ekkert ósvipaður
og fleiri mætti kalla til leiks.
En John Lennon var ekki bara tónlistarmaður
með boðskap, hann var líka orðheppinn maður. Til
að mynda á hann að hafa sagt í hálfkæringi þegar
hann frétti af dauða Elvis Presley: "Elvis, dó hann
ekki þegar hann gekk í herinn?" en það var sautján
árum áður en hann dó. Blessuð sé minning hans og
Lennons og Chaplins.
Af hverju er ég að rifja þetta upp? Jú, mér verður
hugsað til utanríkisráðherrans okkar því óneitanlega
hlýtur mikið að hafa gerst frá því að Ingibjörg Sólrún
mótmælti veru okkar í NATO, gat sungið Imagine
með góðri samvisku og tekið undir friðarboðskap
Chaplins, og þar til hún nú flýgur á einkaþotu til
herráðsfundar í Búkarest og samþykkir tillögur
Bandaríkjanna um eldvarnarhjúp yfir Evrópu vegna
þess hvað íranir eru hættulegir að mér skilst.
Come on Ingibjörg Sólrún! Hættu þessari vitleysu.
Heimurinn er að farast úr þessu bulli. Farðu á næsta
NATO-þing og syngdu fyrir þá Imagine og haltu
ræðu einsog Chaplin. Ef þú vilt syngja fleiri lög
get ég komið heilan lagalista handa þér. Ég mæli
með Masters of War eftir Bob Dylan. Vertu jafnvel
í lopapeysu. Þú getur líka vitnað í Halldór Laxness
og sagt þessum hernaðarsinnum að þeir eigi ekki að
drepa fleiri en þeir geti étið. Að sú hafi verið skoð-
un Bjarts í Sumarhúsum. Ef þú gerir þetta verður
þín minnst á blöðum sögunnar. Ef ekki, þá hefur
þú bara lent í vondum félagsskap einsog stundum
hendir unglinga, og við verðum að reyna að bjarga
þér. Flokkssystkini hljóta að reyna að koma fyrir þig
vitinu, sem sé, að þú átt frekar að syngja með draum-
óramönnunum en taka undir stríðsæsingar Georgs
Bush. Samþykktir NATO í Búkarest gagnast þegar
upp er staðið engum nema vopnaframleiðendum
og hálftjúlluðum hugmyndum þeirra um geimvarn-
arhjálm yfir lönd okkar. Ef þú vilt ekki þiggja þessi
einföldu ráð og segir bara að þetta séu draumórar þá
getum við ekkert fyrir þig gert og verðum að leyfa
þér að ná botninum í þessum vonda félagsskap, sem
kyndir markvisst undir stríði og ómældum þjáning-
um fólks sem ekkert hefur gert okkur.
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands
Deildarlæknir!
Óskaö er eftir deildarlækni á sjúkrasvið, (sjúkrahús) Heilbrigðisstofnunar Suðurlands frá og með 1. september n.k.
Ráðningartími er 3 mánuðir með möguleika á framlengingu. Um er að ræða 100% starf við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi, sjúkrasviði.
Læknir mun sinna hefðbundnum störfum deildarlæknis á sjúkrasviði þar sem er sinnt bæði almennum lyflækningum og skurðlækningum og er fjöldi legurúma um 30.
Reiknað er með að umsækjandi sinni framvöktum á sjúkrasviði samkv. nánara samkomulagi.
Við deildina starfa sérfræðingar I hjartalækningum, meltingarsjúkdómum, almennum skurðlækningum og fæðingar- og kvensjúkdómum.
Laun eru greidd samkvæmt ákvörðun kjaranefndar.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst n.k.
Frekari upplýsingar veitir Óskar Reykdalsson lækningaforstjóri í síma 480-5100 eða oskar@hsu.is
Heilbrigðisstofnun Suðurlands var stofnuð 1. sept. 2004 við sameiningu heilsugæslustöðva á Suðurlandi og Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi. Þjónustusvæði stofn-
unarinnar nær til um 20.000 íbúa á Suðurlandsundirlendinu.
Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, eitt sjúkrahús á Selfossi með 31 sjúkrarúmi og 40 hjúkrunarrúm frá miðju ári 2008, auk þess sem stofnunin rekur Réttargeðdeildina
á Sogni í Ölfusi.
Alls eru um 250 stöðugildi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
LÆKNAblaðið 2008/94 571