Læknablaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 49
U M R Æ Ð U R
O G FRÉTTIR
LÆKNADEILD
Nýir félagar í læknastétt
Læknafélag íslands bauð nýútskrifuðum
læknum úr læknadeild HÍ 2008 til móttöku
í húsakynnum félagsins að. Hinir nýbökuðu
læknar undirrituðu þar hinn forna læknaeið
og nutu veitinga og viðurkenninga í kjölfar
glæsilegs árangurs.
Birna Jónsdóttir formaður LI ávarpaði
hópinn og kynnti fyrir þeim hlutverk og
starfsemi Læknafélagsins en sagði síðan að
fyrir unga lækna í dag væri mikilvægt að
hugsa stórt og í alþjóðlegu samhengi.
Lilja Signln Jónsdóttir, formaður kvenna
í læknastétt, tók næst til máls og til-
nefndi óvænt til verðlauna Brynhildi Tinnu
Birgisdóttur fyrir hæstu meðaleinkunnina
í hópi kvenna í útskriftarárganginum.
Verðlaunin sjálf verða síðan veitt á aðalfundi
félagsins í haust.
Að lokum ávarpaði Stefán B. Sigurðsson,
formaður læknadeildar HI, hópinn. Hann
sagði þetta vera síðasta útskriftarhópinn
sem fór í gegnum klásusprófið svokallaða og
annar hópurinn sem tekið hefur bandaríska
CSE-prófið. Stefán sagði að íslenski hóp-
urinn hefði verið aðeins fyrir ofan ameríska
meðaltalið bæði núna og í fyrra og mættu
menn vera stoltir af því.
Nokkuð jöfn kynjaskipting er í útskriftar-
hópnum í ár en konurnar eru þó ívið fleiri.
I máli Stefáns kom fram að þróunin væri
greinilega sú að konur yrðu í meirihluta,
t.d. hefðu stúlkur verið um 70% nemenda
í inntökuprófunum síðastliðið haust og að
þannig væri skiptingin orðin í allflestum
deildum.
Embættispróf í læknisfræði frá HÍ14. júní 2008
Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir
Alda Birgisdóttir
Árdís Björk Ármannsdóttir
Ásthildur Erlingsdóttir
Baldur Helgi Ingvarsson
Bjarki Kristinsson
Brynhildur Tinna Birgisdóttir
Dýrleif Pétursdóttir
Elísabet Björgvinsdóttir
Eyjólfur Þorkelsson
Eyþór Örn Jónsson
Geir Hirlekar
Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir
Gunnar Þór Geirsson
Gunnar Steinn Mánason
Gunnar Thorarensen
Haukur Heiðar Hauksson
Hálfdán Pétursson
Heiðdís Valgeirsdóttir
Heiðrún P. Maack
Helgi Már Jónsson
Hildur Guðjónsdóttir
Hrafnhildur Hjaltadóttir
Hrefna Katrín Guðmundsdóttir
Ingi Hrafn Guðmundsson
Ingi Karl Reynisson
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir
Kristján Þór Gunnarsson
Lovfsa Björk Ólafsdóttir
Magnús Karl Magnússon
Ólöf Jóna Elíasdóttir
Ólöf Júlía Kjartansdóttir
Rannveig Linda Þórisdóttir
Sigríður Margrét Möller
Sigríður Erla Óskarsdóttir
Sigurður Árnason
Sigurður Ragnarsson
Svanhvít Hekla Ólafsdóttir
Sverrir Ingi Gunnarsson
Sverrir Jónsson
Sæmundur Jón Oddsson
Tryggvi Þorgeirsson
Vala Kolbrún Pálmadóttir
Valgerður Rós Sigurðardóttir
Þorsteinn Viðar Viktorsson
Þórarinn Arnar Ólafsson
Þórhildur Halldórsdóttir
Þórunn Helga Felixdóttir
Örlygur Arnarson
LÆKNAblaðið 2008/94 561