Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 49
U M R Æ Ð U R O G FRÉTTIR LÆKNADEILD Nýir félagar í læknastétt Læknafélag íslands bauð nýútskrifuðum læknum úr læknadeild HÍ 2008 til móttöku í húsakynnum félagsins að. Hinir nýbökuðu læknar undirrituðu þar hinn forna læknaeið og nutu veitinga og viðurkenninga í kjölfar glæsilegs árangurs. Birna Jónsdóttir formaður LI ávarpaði hópinn og kynnti fyrir þeim hlutverk og starfsemi Læknafélagsins en sagði síðan að fyrir unga lækna í dag væri mikilvægt að hugsa stórt og í alþjóðlegu samhengi. Lilja Signln Jónsdóttir, formaður kvenna í læknastétt, tók næst til máls og til- nefndi óvænt til verðlauna Brynhildi Tinnu Birgisdóttur fyrir hæstu meðaleinkunnina í hópi kvenna í útskriftarárganginum. Verðlaunin sjálf verða síðan veitt á aðalfundi félagsins í haust. Að lokum ávarpaði Stefán B. Sigurðsson, formaður læknadeildar HI, hópinn. Hann sagði þetta vera síðasta útskriftarhópinn sem fór í gegnum klásusprófið svokallaða og annar hópurinn sem tekið hefur bandaríska CSE-prófið. Stefán sagði að íslenski hóp- urinn hefði verið aðeins fyrir ofan ameríska meðaltalið bæði núna og í fyrra og mættu menn vera stoltir af því. Nokkuð jöfn kynjaskipting er í útskriftar- hópnum í ár en konurnar eru þó ívið fleiri. I máli Stefáns kom fram að þróunin væri greinilega sú að konur yrðu í meirihluta, t.d. hefðu stúlkur verið um 70% nemenda í inntökuprófunum síðastliðið haust og að þannig væri skiptingin orðin í allflestum deildum. Embættispróf í læknisfræði frá HÍ14. júní 2008 Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir Alda Birgisdóttir Árdís Björk Ármannsdóttir Ásthildur Erlingsdóttir Baldur Helgi Ingvarsson Bjarki Kristinsson Brynhildur Tinna Birgisdóttir Dýrleif Pétursdóttir Elísabet Björgvinsdóttir Eyjólfur Þorkelsson Eyþór Örn Jónsson Geir Hirlekar Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir Gunnar Þór Geirsson Gunnar Steinn Mánason Gunnar Thorarensen Haukur Heiðar Hauksson Hálfdán Pétursson Heiðdís Valgeirsdóttir Heiðrún P. Maack Helgi Már Jónsson Hildur Guðjónsdóttir Hrafnhildur Hjaltadóttir Hrefna Katrín Guðmundsdóttir Ingi Hrafn Guðmundsson Ingi Karl Reynisson Kamilla Sigríður Jósefsdóttir Kristján Þór Gunnarsson Lovfsa Björk Ólafsdóttir Magnús Karl Magnússon Ólöf Jóna Elíasdóttir Ólöf Júlía Kjartansdóttir Rannveig Linda Þórisdóttir Sigríður Margrét Möller Sigríður Erla Óskarsdóttir Sigurður Árnason Sigurður Ragnarsson Svanhvít Hekla Ólafsdóttir Sverrir Ingi Gunnarsson Sverrir Jónsson Sæmundur Jón Oddsson Tryggvi Þorgeirsson Vala Kolbrún Pálmadóttir Valgerður Rós Sigurðardóttir Þorsteinn Viðar Viktorsson Þórarinn Arnar Ólafsson Þórhildur Halldórsdóttir Þórunn Helga Felixdóttir Örlygur Arnarson LÆKNAblaðið 2008/94 561
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.