Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.2009, Side 65

Læknablaðið - 15.04.2009, Side 65
UMRÆÐUR 0 G F R É T T I R F í F L Á F J Ö L L U M Hópurinn á toppi Kerlingar, hæsta tinds í Eyjafirði (1538 m). Útsýni varfrábært af tindinum og sást m.a. til Herðubreiðar, Dyngjufjalla og Mývatns. Mynd: Haraldur Sigurðarson. FIFLagangur að vori Tómas Guðbjartsson Engilbert Sigurðsson Á síðustu mánuðum hefur verið hljótt um starfsemi Félags íslenskra fjallalækna (FÍFL). Félagsmenn hafa notað tímann vel til rannsókna á háfjallaveiki og undirbúið sig fyrir verkefni vorsins sem nálgast óðfluga. Síðasta hópferð var farin 20. september síðastliðinn en þá gengu 26 FÍFL ásamt vinum á Kerlingu (1538 m) sem er hæsta fjall Eyjafjarðar. Skipulag var í höndum Norðandeildar FIFLs undir forystu Orra Einarssonar röntgenlæknis á FSA. Göngugarpar úr röðum svokallaðs Glerár- dalsgönguhóps sáu um leiðsögn og tók gangan rúmar 8 klukkustundir. Veður var frábært og allir náðu toppnum. Á næstu mánuðum er FIFL með ýmislegt á prjónunum. Ber þar hæst dagsgöngu á Tindfjallajökul (1462 m) föstudaginn 1. maí en þetta er í fyrsta skipti sem FÍFL stendur fyrir göngu á þennan mikilfenglega jökul. Flelsta verkefnið er síðan ganga á Hrútfjallstinda í Öræfajökli (1875 m) 22.-23. maí. Þetta er erfið ganga sem tekur um 18 klukkutíma og er aðeins ætluð vönu göngufólki með útbúnað eins og mannbrodda og ísaxir. Með í för verður reyndur fjallaleiðsögumaður og er gert ráð fyrir að gista í Skaftafelli bæði fyrir og eftir gönguna. Hámarksfjöldi þátttakenda í þessa göngu eru 18 manns og er hægt að skrá sig í ferðina á heimasvæði FÍFL á www.facebook.com eða með netpósti tomasgudbjnrtsson@hotmail.com í júní er síðan fyrirhuguð fjallaskíðaferð á Heklu og í sumar ganga á Herðubreið og Snæfell sem auglýstar verða nánar síðar. Hrútfjallstindar í Öræfajökli (1875 m). Mynd: Sverrir Jónsson. LÆKNAblaðið 2009/95 31 3

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.