Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2009, Blaðsíða 13

Læknablaðið - 15.04.2009, Blaðsíða 13
Tölfræði F RÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR Aldursstöðluð tíðni og meðaltöl voru reiknuð miðað við árin 1967, 1970, 1976, 1981, 1987,1993, 2001 og 2007 ef gögn voru til, annars var einstökum árum sleppt eins og til dæmis 1993 fyrir sykursýki. Fyrir algengi sykursýki voru gögn fyrir árin 1967 og 1970 sameinuð vegna lágs algengis til að ná viðunandi nákvæmni. Miðársmannfjöldi frá Hagstofu íslands árið 2006 í fimm ára aldursbilum frá 45-64 ára var notaður sem staðall. Breyting á meðaltölum og tíðni með tíma var prófuð með leitni-prófi (orthogonal contrast) í aðhvarfslíkani þar sem leiðrétt var fyrir aldri. Tilviljunarkenndar sveiflur í algengi og meðaltölum eftir árum voru jafnaðar með almennum samleggjandi líkönum (generalized addititive models) þar sem leiðrétt var fyrir aldursdreifingu með því að nota stika fyrir hvert fimm ára aldursbil frá 45-64 ára og k-stuðull var valinn einum lægri en fjöldi ára í hermifalli (spline) fyrir breytingu í tíma.16 í greiningu á þróun í meðalþyngd var leiðrétt fyrir hæð og miðað við 180 sm fyrir karla og 167 sm fyrir konur. Línuleg leitnilína á mynd um þróun sykursýki var metin með einfaldri aðhvarfsgreiningu. Algengi sykursýki og offitu úr gögnum frá 2004-2007 var metið í 10 ára aldursbilum fyrir 25-84 ára. Miðársmannfjöldi frá Hagstofu íslands árið 2006 í þessum aldursbilum var svo notaður til að meta algengi á íslandi. Niðurstöður Á 40 árum, frá 1967 til 2007, jókst líkamsþyngd og hæð íslendinga 45-64 ára jafnt og þétt. Árið 1967 var meðalhæð kvenna 162 sm og karla 175 sm. Árið 2007 var meðalhæð kvenna komin í 167 sm og karla 180 sm. Meðalhæð karla og kvenna hefur því aukist um 5 sm á 40 árum. í töflu I sést meðalhæð, meðalþyngd og meðallíkamsþyngdarstuðull hjá fólki 25 til 84 ára á tímabilinu 2004-2007. Líkamsþyngd var metin bæði með og án leiðréttingar fyrir aukinni hæð. Karlmenn af meðalhæð árið 2007, 180 sm, vógu að meðaltali Ár (1967-2007) 91 kg árið 2007, en karlmenn af sömu hæð vógu Mynd 3. Þróun í algengi að meðaltali 83 kg árið 1967. Þalr haía því þyngat um 8 kg á síðastliðnum 40 árum. Svipuð þróun öryggismörkum. hefur átt sér stað hjá konum. Konur að meðalhæð árið 2007, 167 sm, vógu 76 kg árið 2007, en konur af sömu hæð vógu um 69 kg árið 1967 og hafa þannig þyngst um 7 kg að meðaltali á tímabilinu. Á mynd 1 sést meðalþyngd fólks á íslandi 2004- 2007 á aldrinum 25-84 ára þar sem ekki er leiðrétt fyrir hæð. Einnig eru sýnd efri mörk kjörþyngdar miðað við meðalhæð innan hvers aldurshóps. Karlar á miðjum aldri eru um 9 kg og konur um 6 kg umfram kjörþyngd samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (16). Á mynd 2 sést hvernig meðal líkamsþyngdar- stuðull hjá íslendingum hefur aukist frá 1967. Þyngdarstuðullinn hélst nær óbreyttur frá 1967 til 1981 en eftir það hefur hann aukist stöðugt. Meðallíkamsþyngdarstuðull 45-64 ára karla árið 1967 var 25,8 en kvenna 25,2. Það er við efri mörk þess sem skilgreint hefur verið sem kjörþyngd. Árið 2007 var meðallíkamsþyngdarstuðull karla 28,0 en kvenna 27,2. Líkamsþyngdarstuðullinn jókst því um tvær einingar hjá báðum kynjum á þessu tímabili. Meðalþyngd 45-64 ára íslendinga er því yfir 27 sem telst ofþyngd samkvæmt Tafla I. Meðalhæð, meðalþyngd og meðallíkamsþyngdarstuðull eftiraldri og kyni hjá 25-84 ára íslendingum 2004-2007. Konur Karlar Aldur (ár) Fjöldi Þyngda (kg) Hæða (sm) BMI" (kg/m2) Fjöldi Þyngda (kg) Hæða (sm) BMIa (kg/m2) 25-34 124 70.9 (14.3) 167.4(5.6) 25.3 (5.2) 124 88.3 (16.1) 182.0(7.2) 26.2 (4.5) 35-44 306 73.9 (14.9 168.0(5.5) 26.2 (5.2) 292 90.2 (14.5) 180.8(6.5) 27.6 (4.1) 45-54 342 75.4 (14.9) 167.2(6.3) 27.0 (5.0) 335 91.5 (14.4) 180.8(6.0) 28.0 (4.3) 55-64 341 77.0 (13.9) 166.0(5.7) 28.0 (5.0) 346 91.6 (15.3) 179.2(6.1) 28.5 (4.3) 65-74 863 73.8 (13.4) 163.0(5.4) 27.7 (5.0) 620 87.4 (14.2) 177.5(5.9) 27.7 (4.0) 75-84 967 69.4 (12.7) 160.0(5.6) 27.1 (4.8) 777 82.1 (13.2) 174.7(6.2) 26.9 (3.9) “ Meðaltöl (öryggismörk) LÆKNAblaðið 2009/95 261
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.