Læknablaðið - 15.04.2009, Blaðsíða 38
UMRÆÐUR O G FRETTIR
WMA-FUNDUR Á ÍSLANDI
Hávar
Sigurjónsson
Aukin kunnátta
kallar á færslu verka
Færsla á verkum (Task shifting) milli starfsstétta innan
heilbrigðisgeirans var aðalumræðuefni á fundi WMA (World
Medical Association) sem haldinn var hér á landi dagana 8.-9. mars
sl. Að mestu leyti snýst umræðan um að ákveðin verk sem hingað
til hafa verið í höndum lækna færist yfir til annarra stétta, svo sem
hjúkrunarfræðinga, lyfjafræðinga og geislafræðinga. Ástæður eru
margvíslegar og breytilegar eftir löndum og heimssvæðum en kemur
þó upphaflega til vegna skorts á heilbrigðisstarfsfólki og viðleitni
yfirvalda til að veita lágmarks heilbrigðisþjónustu með þeim
starfskröftum sem völ er á.
Á hinn bóginn hefur menntun og þekkingu
annarra heilbrigðisstarfstétta en lækna fleygt
svo fram á síðustu árum að ýmsum verkum
sem áður voru einungis á færi lækna er nú talið
borgið í höndum hinna. Heilbrigðisyfirvöld sjá
einnig þann augljósa kost við verkfærsluna að
lægra launaðar stéttir taki við verkum af þeim
hærra launuðu enda er krafan um sparnað alls
staðar hávær nú um stundir. Læknar benda hins
vegar með réttu á að þrátt fyrir færslu á verkum
til annarra er ábyrgðin enn á þeirra höndum og
því mikilvægt að ganga varlega um þessar dyr og
gæta vel bæði að siðferðilegri og lagalegri ábyrgð
á framkvæmd verkanna. Ennfremur að tryggja
menntun og þjálfun allra sem að koma svo gæðum
þjónustunnar hraki ekki þrátt fyrir verkfærsluna.
Um þetta ritaði Jón Snædal fyrrverandi forseti
WMA grein í Læknablaðið fyrir réttu ári síðan (2008;
94: 239).
I sameiginlegri yfirlýsingu alþjóðasamtaka
heilbrigðisstarfsfólks (28.2.2008) sem taka til 25
milljóna einstaklinga er undirstrikaður skilning-
ur á knýjandi þörf víða um heim fyrir lágmarks
heilbrigðisþjónustu og að verkfærsla er víða
nánast eini möguleikinn til að mæta þörfinni.
Yfirlýsingin er ítarleg í mörgum liðum og tiltekur
þær sameiginlegu áhyggjur sem heilbrigðisstarfs-
fólk hefur af verkfærslu sem leiðir af sér lakari
menntun, minni þjálfun, takmarkaðri þekkingu
og á endanum verri þjónustu í þeim löndum þar
sem heilbrigðiskerfin eru vel skipulögð. í yfirlýs-
ingunni er lögð áhersla á að ávallt skuli taka tillit
til aðstæðna í hverju landi fyrir sig áður en ráðist
er í verkfærslu milli stétta.
Fleiri og flóknari lyf
Jill Martin-Boone er forseti Alþjóðasamtaka
lyfjafræðinga og var gestur fundar WMA. Hún
hefur tekið virkan þátt í færslu ýmissa verka frá
læknum til lyfjafræðinga í Bandaríkjunum og
hefur frá ýmsu að segja í þeim efnum.
„Þátttaka lyfjafræðinga í klínísku ferli ýmissa
verka hefur aukist mjög á undanfömum árum
og þjálfun og menntun lyfjafræðinga hefur beinst
meira í þá átt. Verkfærslan hefur tekið mið af
þessu og þó okkur finnist stundum sem nokkuð
skorti á skilning og viðurkenningu á þekkingu og
þjálfun lyfjafræðinga þá er þróunin mjög jákvæð,"
segir Jill Boone í upphafi samtals okkar.
Hún bendir á að menntun og þjálfun lyfja-
fræðinga sé talsvert mismunandi eftir löndum og
jafnvel breytileg innan sama lands. „Það er því
mikilvægt fyrir lækna að kynna sér vel hvemig
staðið er að menntun lyfjafræðinga í heima-
landi þeirra svo þeir hafi alveg á hreinu hvað
lyfjafræðingarnir eru færir um að gera og hvemig
þekking þeirra getur nýst sem best í samstarfi við
læknana. I erindi mínu á fundi WMA hér á Islandi
var ég einmitt að hvetja lækna til að kynna sér
í hverju menntun og þjálfun lyfjafræðinga sem
nærri þeim starfa er fólgin, svo læknar geti nýtt sér
til fulls kunnáttu þeirra og sérþekkingu."
Aðspurð um hvers vegna lyfjafræðingar vilji
stækka starfsvið sitt og taka við verkefnum frá
læknum segir Jill Martin-Boone að meginástæðan
sé sú að bæta gæði þjónustu við sjúklinga.
„í dag eru notuð fleiri og flóknari lyf við
lækningar en nokkum tíma fyrr í sögu læknis-
286 LÆKNAblaðið 2009/95