Læknablaðið - 15.04.2009, Blaðsíða 42
U M R Æ Ð U R
V I Ð T A L
O G
F R É T T I R
Mikilvægt að stjórn sjóðsins
geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir
Oddur Ingimarsson, deildarlæknir á geðsviði Landspítala, var nýverið
kjörinn í stjóm Almenna lífeyrissjóðsins. Samhliða læknisnámi
las Oddur viðskiptafræði við Háskóla íslands og eftir að hafa lokið
læknaprófi 2005 tók hann meistarapróf í viðskiptafræði í janúar 2008. Frá
því í apríl 2007 og til október 2008 starfaði Oddur hjá Landsbankanum,
fyrst í fyrirtækjaráðgjöf og síðan á sviði eigin fjárfestinga bankans.
Ekki þarf því að efast um að læknar hafi fengið hæfan fulltrúa í stjórn
Almenna lífeyrissjóðsins.
Hávar
Sigurjónsson
„Ástæða þess að ég ákvað að bjóða mig fram
í stjórn lífeyrissjóðsins var að við Andrés
Magnússon geðlæknir áttum líflegar samræður
um málefni sjóðsins í vetur. Hann hafði gagnrýnt
stjórn sjóðsins eftir bankahrunið og vildi fá að
vita hvort Bjarni Ármannsson, sem setið hafði í
stjórninni, hefði átt þátt í að hún tók stöðu með
krónunni en hann sjálfur tekið stöðu gegn henni.
Okkur varð fljótlega ljóst að í stjóm sjóðsins
voru alls ekki nægilega margir með menntun eða
reynslu af fjármálum og verðbréfaviðskiptum.
Ur varð að við buðum okkur báðir fram til
stjómarsetu en Andrés dró framboð sitt til baka
eftir að hann ákvað að bjóða sig fram í forvali VG.
Mér finnst því að þeir sem taka að sér að sitja í
stjórn lífeyrissjóðs og bera ábyrgð á fjárfestingum
sjóðsins þurfi að hafa einhverja þekkingu og
reynslu af fjárfestingum og fjármálamörkuðum.
Heildareignir Almenna lífeyrissjóðsins eru um
84 milljarðar og er því um talsverða fjármuni að
ræða. Hluti stjórnarinnar þarf að minnsta kosti
að hafa þessa þekkingu svo hún sé ekki algerlega
háð ráðleggingum rekstraraðilans. Stjórnin þarf að
geta myndað sér sjálfstæða skoðun á fjárfestingar-
ráðleggingum hans."
Aðspurður um stöðutöku sjóðsins með
krónunni segir Oddur að hann telji að það hafi
verið rangt að taka stöðu með þessum hætti.
„Sjóðurinn er langtímafjárfestir og skiptir því ekki
öllu máli þó að krónan sveiflist eitthvað milli ára
en það er langt í það að meirihluti sjóðsfélaga hefji
töku lífeyris. Undir eðlilegum kringumstæðum má
þó alveg halda uppi rökum fyrir gengisvörnum
til að minnka sveiflur í ávöxtun. Árið 2008 var
hins vegar óvenjulegt ár og áttu önnur rök að
vega þyngra. Á fyrstu mánuðum ársins fór
skuldatryggingarálag Kaupþings upp í 10%
en það þýddi að markaðurinn mat það svo að
raunveruleg hætta væri á því að Kaupþing færi
í þrot en Ijóst var að ef það gerðist myndi það
skapa mikla erfiðleika í íslenska bankakerfinu
ásamt mikilli veikingu krónunnar. Á þessum
tíma var eina vörn Almenna lífeyrissjóðsins gegn
bankahruni erlendar hlutabréfaeignir þar sem
þær hækka í verði ef krónan lækkar. Stöðutakan
með krónunni veikti þessar vamir talsvert og
varð tap upp á 5,3 milljarða á stöðutökunni. Þetta
tap lækkar þó væntanlega vegna möguleika á
skuldajöfnun en það er ekki ljóst í dag hvort það
gengur eftir. Almenna lífeyrissjóðnum til vamar
má segja að það var erfitt að spá fyrir um að það
yrði hrun á íslenska bankakerfinu og flestir aðrir
lífeyrissjóðir tóku einnig stöðu með krónunni en
það breytir því þó ekki að þessi ákvörðun var
mjög kostnaðarsöm fyrir sjóðsfélaga."
Á síðasta aðalfundi kom fram fyrirspum frá
einum fundargesta um hvort sjóðurinn hafi losað
eignir sínar í sjóði 9 síðustu vikuna í október
og kom þá í ljós að það var ekki gert. Oddur
var ekki sammála þeirra ákvörðun miðað við
þær upplýsingar sem voru til staðar á þeim
tíma. „Eftir yfirtöku ríkisins á 75% hlut í Glitni
var fagfjárfestum ljóst að áhættan við að eiga
í peningamarkaðssjóðum var gríðarlega mikil
og í litlu samræmi við væntan ávinning. Margir
losuðu eign sína í sjóðnum strax eftir yfirtökuna,
sérstaklega fagfjárfestar sem vom upplýstir um
áhættuna. Það olli mér vonbrigðum að Almenni
lífeyrissjóðurinn skyldi ekki hafa losað um þessa
stöðu."
Einnig vill Oddur minnast á athugasemd
endurskoðenda sjóðsins í ársreikningi sjóðsins
varðandi óvissu í verðmati á verðbréfaeign
sjóðsins en þessi óvissa getur leitt til þess að það
290 LÆKNAblaöið 2009/95