Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2009, Síða 38

Læknablaðið - 15.04.2009, Síða 38
UMRÆÐUR O G FRETTIR WMA-FUNDUR Á ÍSLANDI Hávar Sigurjónsson Aukin kunnátta kallar á færslu verka Færsla á verkum (Task shifting) milli starfsstétta innan heilbrigðisgeirans var aðalumræðuefni á fundi WMA (World Medical Association) sem haldinn var hér á landi dagana 8.-9. mars sl. Að mestu leyti snýst umræðan um að ákveðin verk sem hingað til hafa verið í höndum lækna færist yfir til annarra stétta, svo sem hjúkrunarfræðinga, lyfjafræðinga og geislafræðinga. Ástæður eru margvíslegar og breytilegar eftir löndum og heimssvæðum en kemur þó upphaflega til vegna skorts á heilbrigðisstarfsfólki og viðleitni yfirvalda til að veita lágmarks heilbrigðisþjónustu með þeim starfskröftum sem völ er á. Á hinn bóginn hefur menntun og þekkingu annarra heilbrigðisstarfstétta en lækna fleygt svo fram á síðustu árum að ýmsum verkum sem áður voru einungis á færi lækna er nú talið borgið í höndum hinna. Heilbrigðisyfirvöld sjá einnig þann augljósa kost við verkfærsluna að lægra launaðar stéttir taki við verkum af þeim hærra launuðu enda er krafan um sparnað alls staðar hávær nú um stundir. Læknar benda hins vegar með réttu á að þrátt fyrir færslu á verkum til annarra er ábyrgðin enn á þeirra höndum og því mikilvægt að ganga varlega um þessar dyr og gæta vel bæði að siðferðilegri og lagalegri ábyrgð á framkvæmd verkanna. Ennfremur að tryggja menntun og þjálfun allra sem að koma svo gæðum þjónustunnar hraki ekki þrátt fyrir verkfærsluna. Um þetta ritaði Jón Snædal fyrrverandi forseti WMA grein í Læknablaðið fyrir réttu ári síðan (2008; 94: 239). I sameiginlegri yfirlýsingu alþjóðasamtaka heilbrigðisstarfsfólks (28.2.2008) sem taka til 25 milljóna einstaklinga er undirstrikaður skilning- ur á knýjandi þörf víða um heim fyrir lágmarks heilbrigðisþjónustu og að verkfærsla er víða nánast eini möguleikinn til að mæta þörfinni. Yfirlýsingin er ítarleg í mörgum liðum og tiltekur þær sameiginlegu áhyggjur sem heilbrigðisstarfs- fólk hefur af verkfærslu sem leiðir af sér lakari menntun, minni þjálfun, takmarkaðri þekkingu og á endanum verri þjónustu í þeim löndum þar sem heilbrigðiskerfin eru vel skipulögð. í yfirlýs- ingunni er lögð áhersla á að ávallt skuli taka tillit til aðstæðna í hverju landi fyrir sig áður en ráðist er í verkfærslu milli stétta. Fleiri og flóknari lyf Jill Martin-Boone er forseti Alþjóðasamtaka lyfjafræðinga og var gestur fundar WMA. Hún hefur tekið virkan þátt í færslu ýmissa verka frá læknum til lyfjafræðinga í Bandaríkjunum og hefur frá ýmsu að segja í þeim efnum. „Þátttaka lyfjafræðinga í klínísku ferli ýmissa verka hefur aukist mjög á undanfömum árum og þjálfun og menntun lyfjafræðinga hefur beinst meira í þá átt. Verkfærslan hefur tekið mið af þessu og þó okkur finnist stundum sem nokkuð skorti á skilning og viðurkenningu á þekkingu og þjálfun lyfjafræðinga þá er þróunin mjög jákvæð," segir Jill Boone í upphafi samtals okkar. Hún bendir á að menntun og þjálfun lyfja- fræðinga sé talsvert mismunandi eftir löndum og jafnvel breytileg innan sama lands. „Það er því mikilvægt fyrir lækna að kynna sér vel hvemig staðið er að menntun lyfjafræðinga í heima- landi þeirra svo þeir hafi alveg á hreinu hvað lyfjafræðingarnir eru færir um að gera og hvemig þekking þeirra getur nýst sem best í samstarfi við læknana. I erindi mínu á fundi WMA hér á Islandi var ég einmitt að hvetja lækna til að kynna sér í hverju menntun og þjálfun lyfjafræðinga sem nærri þeim starfa er fólgin, svo læknar geti nýtt sér til fulls kunnáttu þeirra og sérþekkingu." Aðspurð um hvers vegna lyfjafræðingar vilji stækka starfsvið sitt og taka við verkefnum frá læknum segir Jill Martin-Boone að meginástæðan sé sú að bæta gæði þjónustu við sjúklinga. „í dag eru notuð fleiri og flóknari lyf við lækningar en nokkum tíma fyrr í sögu læknis- 286 LÆKNAblaðið 2009/95
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.