Læknablaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 11
Pétur
Snæbjörnsson1’2’3
læknir
Lárus Jónasson2
meinafræðingur
Þorvaldur
Jónsson15
skurðlæknir
Páll Helgi Möller15
skurðlæknir
Ásgeir Theodórs6
meltingarfærasérfræðingur
Jón Gunnlaugur
Jónasson12’4
meinafræðingur
Lykilorð: ristilkrabbamein,
meinafræði, faraldsfræði, kyn,
lýðgrunduð.
'Læknadeild HÍ,
2rannsóknastofu í
meinafræði á Landspítala,
3meinafræðideild
VU Medical Center,
Amsterdam,
“Krabbameinsskrá íslands,
5skurðdeild Landspítala,
6meltingarsjúkdómadeild
Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Jón Gunnlaugur Jónasson,
meinafræðingur,
rannsóknastofu í
meinafræði á Landspítala,
húsi 8 við Barónstíg,
101 Reykjavík.
jongj@landspitali. is
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Ristilkrabbamein á íslandi
árin 1955-2004
Faraldsfræðileg og meinafræðileg athugun
og samanburður á kynjum
Ágrip
Inngangur: Krabbamein í ristli er þriðja algengasta
krabbamein á íslandi. Þessi rannsókn gerir grein
fyrir faralds- og meinafræði ristilkrabbameins á
íslandi, skurðtíðni og kynjamun.
Efniviður og aðferðir: Vefjasvör og krufninga-
skýrslur þeirra sem greindust með ristilkrabba-
mein á árunum 1955-2004 voru yfirfarin. Vefjasýni
sjúklinga voru endurskoðuð og meinafræðilegir og
lýðfræðilegir þættir skráðir. Aldursstaðlað nýgengi
var reiknað fyrir bæði kyn. Meinafræðilegir þættir
voru athugaðir með tilliti til kyns. Breyting yfir
tíma var skoðuð með línulegri aðhvarfsgreiningu
og kynjamunur með kí-kvaðratsprófi.
Niðurstöður: Eftir endurmat urðu eftir 2293
ristilkrabbamein (karlar 1148, konur 1145). Nýgengi
jókst hjá körlum úr 7,5 í 22,2/105 og hjá konum úr
8,6 í 15,1/105. Flest æxlin voru í bugaristli (35%).
Skurðtíðni jókst úr 50% í 85%. Kirtilkrabbamein
voru 84% æxla en slímkirtilkrabbamein 7%. Alls
voru 7% sjúklinga á TNM-stigi I, 32% á stigi II,
24% á stigi III, 21% á stigi IV en stig var óþekkt
hjá 16%. Lítilsháttar kynjamunur var á gráðu,
æðaíferð, íferðardýpt og staðsetningu.
Ályktun: Nýgengi ristilkrabbameins jókst veru-
lega á tímabilinu, aðallega hjá körlum. Skurðtíðni
og meinafræðileg birtingarmynd er svipuð því
sem lýst hefur verið erlendis fyrir utan heldur
færri tilfelli á TNM-stigi I. Lítill munur er á kynjum
með tilliti til einstakra meinafræðiþátta.
Inngangur
Krabbamein í ristli er verulega alvarlegt heilsu-
farsvandamál á Vesturlöndum og er nú þriðja
algengasta krabbamein karla og kvenna á Islandi.1
Birtar voru tvær greinar í Læknablaðinu 2001 og
2002 um ristilkrabbamein á íslandi fyrir tímabilið
1955-1989.13 Ráðist var í framhaldsvinnu á þessum
efnivið til að mynda heildstæða rannsókn yfir
50 ára tímabil (1955-2004). Hér eru birtar fyrstu
niðurstöður úr þessari lýðgrunduðu rannsókn þar
sem öll vefjasýni og meinafræðiniðurstöður voru
endurmetin með samhæfðri aðferð. Markmið
þessarar rannsóknar var að gera grein fyrir
faraldsfræði og meinafræði ristilkrabbameins auk
skurðtíðni. Einnig að gera samanburð á kynjum
með tilliti til þeirra þátta sem voru skoðaðir
og athuga hvort meinafræðileg birtingarmynd
ristilkrabbameins sé frábrugðin því sem fram
hefur komið í erlendum rannsóknum.
Efni og aðferðir
Rannsóknin er afturskyggn og nær til sjúklinga
með ristilkrabbamein sem skráðir höfðu verið í
Krabbameinsskrá íslands (KÍ) á 50 ára tímabili,
1955-2004. Æxlisvöxtur þurfti að vera af þekju-
uppruna og ná niður í slímubeð (tela submucosa)
eða dýpra til að teljast ristilkrabbamein og þar
með komast inn í rannsóknina.4 Rannsóknin
byggir á upplýsingum frá öllum skráðum ristil-
krabbameinssjúklingum í heilu þýði og telst
því lýðgrunduð. Vefjasvör, smásjárgler vefja-
sýna og vefjakubbar voru fengin úr söfnum
rannsóknarstofu í meinafræði á Landspítala,
meinafræðideildar Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri og Vefjarannsóknastofunni Álfheimum 74.
Skráðar voru eftirfarandi upplýsingar: fæðingar-
dagur, kyn, greiningardagsetning, aldur við
greiningu, grundvöllur greiningar (ristilúmám,
sepataka, sýnataka úr frumæxli, sýnataka úr
meinvarpi, kmfning, klínísk greining, annað/
óþekkt), staðsetning æxlis innan ristils (hægri hluti:
botnristill, risristill, hægri ristilbeygja, þverristill;
vinstri ristill: vinstri ristilbeygja, fallristill, buga-
ristill; óþekkt), stórsætt útlit (sepalaga, sármynd-
andi, sepalaga og sármyndandi, dreifður æxlis-
vöxtur, óþekkt), hringvöxtur/æxlisvöxtur nær yfir
allan hringferil garnar (til staðar, ekki til staðar,
óþekkt), stærð æxlis (námundað að 0,5 cm), vefja-
gerð samkvæmt skilmerkjum Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunar (WHO),4 þroskunargráða (Gl-
3, GX),4‘6 gerð æxlisjaðars (ýtandi, ísmjúgandi,
óþekkt),7'8 eitilfmmuíferð við æxlisjaðar (áberandi
bólga, lítil/engin bólga, óþekkt),7' 8 staðbundin
íferðardýpt æxlisvaxtar (Tl-4, TX), ástand
LÆKNAblaðið 2009/95 423