Læknablaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 45
U M R Æ Ð U R
K 0 N U R í
O G FRÉTTIR
LÆKNASTÉTT
- jíjj -
Lilja Sigrún Jónsdóttir,
formaÖur Félags kvenna í
læknastétt.
læknum hér á landi, svo að við vonumst til að þess
fari að sjá stað á Barnaspítala Hringsins."
Þrátt fyrir að kjaramál séu ekki meginviðfangs-
efni Félags kvenna í læknastétt segir Lilja Sigrún
jafnréttisáætlun vera mikilvægt verkfæri í öllu
starfi stéttarfélaga og að FKLÍ fylgist með þeim
málum af áhuga. „Það er auðvitað hverju félagi
nauðsynlegt að hafa virka jafnréttisáætlun og geta
sýnt fram á að eftir henni sé farið. Við stofnun FKLÍ
varð vilji til að styrkja stöðu kvenna í læknastétt
sýnilegur og félagið getur verið málsvari kvenna
útávið, eftir því sem við á. Við höfum haldið
málþing og reynt að skapa umræðu í samfélaginu
um jafnréttismál. Við höfum hvatt Læknafélag
íslands, háskólann og Landspítalann til að yfirfara
jafnréttisstefnur sínar og fylgja þeim eftir. Skort
hefur á tölfræði um laun og tekjur lækna eftir kyni
og er það miður. Það stendur vonandi til bóta,
en við höfum fengið áætlun á tekjum kvenlækna
út frá lífeyrissjóðsréttindum, sem gaf til kynna
nokkurn tekjumun eftir kyni. Það er þó ekki hægt
að skoða nánar án betri gagna, sem brýnt er að
bæta úr. Félagið hefur staðið fyrir námskeiðum
fyrir kvenlækna og mál einstaklinga innan
félagsins hafa komið til kasta stjómar sem þarfnast
eftirfylgni og úrlausnar. Af öðru starfi félagsins má
nefna að það studdi við framkvæmd rannsóknar
á starfsumhverfi lækna á íslandi, sem unnin var
í samstarfi við þrjú háskólasjúkrahús; í Noregi,
Svíþjóð og Ítalíu. Hún var framkvæmd hér á landi
á árunum 2004-05 og er á úrvinnsluskeiði. Hér á
landi hafa þrjú meistaraprófsverkefni verið unnin
upp úr þessari rannsókn við Háskóla Islands
og Háskólann í Lundi, auk úrvinnslu erlendu
samstarfsaðilanna."
LÆKNAblaðið 2009/95 457