Læknablaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 13
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
marktækur munur á kynjum í aldurshópnum 59
ára og yngri (mynd 1). Meðalaldur karla var 69 ár
fyrir tímabilið 1955-1965 en 71 ár tímabilið 1995-
2004 (munur ómarktækur). Hjá konum hækkaði
meðalaldur fyrir sömu árabil úr 71 ári hið fyrra í
72 ár hið síðara (munur ómarktækur). Sjúklingar
undir 50 ára aldri voru 6% sjúklingahópsins hjá
körlum og 7% hjá konum.
Mynd 2 sýnir breytingu á aldursstöðluðu
nýgengi ristilkrabbameins meðal karla og kvenna
miðað við heimsstaðal. Hjá körlum er marktæk
línuleg nýgengisaukning (p= 0,001; 95% CI 1,032-
2,256) yfir allt tímabilið eða 1,6 af 100.000
persónuárum í áhættu fyrir hvert fimm ára tíma-
bil. Hjá konum er línuleg nýgengisaukning lægri
en hjá körlum eða 0,527 af 100.000 persónuárum
í áhættu fyrir hvert fimm ára tímabil (p=0,05;
95% CI 0,136-0,919). Þegar fyrstu fimm árin eru
undanskilin hjá konum fæst ekki marktæk línu-
leg nýgengisaukning yfir tímabilið (p>0,05; 95%
CI -0,039-0,689).
Mynd 3 sýnir tímabreytingar á nýgengi
meðal karla eftir aldurshópum. Marktæk línu-
leg nýgengisaukning kom fram hjá körlum í
aldurshópunum milli 55 og 84 ára (p<0,01) en
mest var hún hjá körlum milli 75 og 84 ára. Hjá
konum var einungis marktæk línuleg aukning
í aldurshópnum 65-74 ára (p<0,05) (mynd 4).
Aldursbundið nýgengi jókst með hækkandi aldri
hjá báðum kynjum og var hæst í aldurshópnum 85
ára og eldri (mynd 5).
Tafla I sýnir dreifingu tilfella á ristilhluta í
heild og með tilliti til kynja. f heildina voru nærri
jafnmörg æxli hægra megin og vinstra megin
en í undirflokkun voru flest æxli í bugaristli en
næstflest í botnristli. Ekki kom fram marktækur
Mynd 3. Ristilkrabbamein á íslandi 1955-2004: breytingar á nýgengi meðal karla eftir
aldurshópum.
Mynd 4. Ristilkrabbamein á íslandi 1955-2004: breytingar á nýgengi meðal kvenna eftir
aldurshðpum.
Tafla I. Ristilkrabbamein á íslandi 1955-2004: tilfelli flokkuð eftir staðsetningu innan ristils og kyni. Fjöldi, hlutfall (%) og
p-gildi fyrir kynjamun sýnt.
Karlar Konur Allir p-gildi
Fjöldi 1148 (%) 1145 (%) 2293(%)
Staðsetning
Hægri hluti ristils 522 (45) 554 (48) 1076(47) 0,06»
Botnristill 204 (18) 249 (22) 453 (20) 0,002b
Risristill 178 (16) 156 (14) 334 (15)
Hægri ristilbeygja 56(5) 34(3) 90(4)
Þverristill 84(7) 115(10) 199(9)
Vinstri hluti ristils 556 (48) 501 (44) 1057(46)
Vinstri ristilbeygja 35(3) 38(3) 73(3)
Fallristill 95(8) 86(8) 181 (8)
Bugaristill 426 (37) 377 (33) 803 (35)
Staðsetning óþekkt 70(6) 90(8) 160(7)
LÆKNAblaöið 2009/95 425