Læknablaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 53
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
FÆÐINGARNAMSKEIÐ
ALSO-námskeið í fæðingarhjálp
Hávar Læknar og ljósmæður á kvennadeild Landspítala
SiaurÍÓn«?«50n stóðu á dögunum fyrir svokölluðu ALSO-
námskeiði sem 22 læknar og ljósmæður sóttu.
„ALSO stendur fyrir Advanced Life Support in
Obstetrics og er upprunnið í Bandaríkjunum þar
sem heimilislæknar þróuðu námskeið til þjálfunar
í bráðatilfellum á meðgöngu og í fæðingu/' segir
Berglind Steffensen, sérfræðingur á kvennadeild
Landspítala, einn skipuleggjenda námskeiðsins.
„Það hefur síðan komið í ljós að allir sem starfa að
fæðingarhjálp, læknar og ljósmæður, hafa mikið
gagn af námskeiðinu og það hefur tekið á sig mjög
staðlaða mynd og er kennt á sama hátt alls staðar
í heiminum."
Á Norðurlöndunum hafa Danir tekið að
sér að sjá um framkvæmd námskeiðsins. Hér
á íslandi hafa fjórir fæðingalæknar og fjórar
ljósmæður hlotið réttindi sem alþjóðlegir ALSO-
leiðbeinendur. Á þessu fyrsta námskeiði á Islandi
voru fæðingalæknir og ljósmóðir frá Danmörku
sem gættu þess að stöðluðu fyrirkomulagi
námskeiðsins væri fylgt í hvívetna.
„Markmið ALSO-námskeiðsins er að kenna
rétt viðbrögð og handtök í bráðatilfellum og auka
þannig fæmi þeirra sem að fæðingum koma ásamt
því að tryggja öryggi fæðandi kvenna og barna
þeirra," segir Berglind.
„Á námskeiðinu eru fyrirlestrar, farið yfir tilfelli
í litlum hópum en einnig eru notaðar brúður til
að skapa sem raunverulegastar aðstæður erfiðra
fæðinga. Kennd eru rétt handtök og viðbrögð
á staðlaðan hátt og er stuðst við eins konar
minnisþulur (mnemonics) þar sem skammstafanir
standa fyrir röð viðbragða við tilteknar aðstæður.
Það er farið í gegnum atriði eins og axlarklemmu,
sitjandafæðingar, notkun sogklukku, viðbrögð við
hættulegum blæðingum og endurlífgun þungaðra
kvenna og nýbura svo eitthvað sé nefnt. Lögð er
áhersla á nána samvinnu ljósmæðra og lækna.
Þessi þjálfun getur komið sér sérstaklega vel fyrir
þá sem starfa úti á landi þar sem óvæntar aðstæður
geta orðið til þess að ljósmóðirin eða læknirinn
þurfa að sinna erfiðri fæðingu án aðstoðar."
Berglind segir að fyrirhugað sé að halda fleiri
ALSO-námskeið hér á landi. „Við stefnum að því
að halda námskeið í byrjun næsta árs og síðan
reglulega til þess að tryggja að allir sem koma að
fæðingum fái þessa mikilvægu þjálfun."
LÆKNAblaðið 2009/95 465