Læknablaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 57
U M R Æ Ð U R
M Y N D
O G FRÉTTIR
MÁNAÐARINS
Mynd: Jón Sigurðsson.
Mynd mánaðarins
Jón Sigurðsson íslenskir læknanemar á krufninganámskeiði á vegum Háskólans í Glasgow sumarið 1969. Á nám-
svæfingalæknir skeiðinu voru einnig danskir læknanemar. Tveimur árum áður höfðu Danir unnið íslendinga 14:2 í
jsb24@internet.is hinum dæmalausa knattspyrnulandsleik í Kaupmannahöfn. Þótti íslensku læknanemunum kominn
tími til að hefna ófaranna og skoruðu því Danina á hólm í knattspyrnulandsleik læknanema á óháðum
útivelli í Glasgow. íslendingamir unnu frækinn sigur 10:0.
Á myndinni eru frá vinstri: Skúli Bjarnason, Björn Magnússon, Kristján Arinbjarnarson, Magni
Jónsson, Brynjólfur Mogensen, Hjalti Björnsson (látinn), Geir Friðgeirsson, Þorsteinn Gíslason, Kristján
Steinsson og Arnar Ásgeirsson (látinn). Markvörðurinn Þórarinn Tyrfingsson var farinn í sturtu þegar
myndin var tekin að leik loknum.
Krabbameinsfélagið
Yfirlæknir röntgendeildar Krabbameinsfélagsins
Staða yfirlæknis á röntgendeild Krabbameinsfélags íslands er auglýst
laus til umsóknar frá og með 1. september 2009.
Umsækjandi skal hafa staðgóða þekkingu á myndgreiningu brjóstasjúkdóma.
Upplýsingar um stöðuna gefur sviðsstjóri leitarsviðs,
Kristján Sigurðsson, í síma 540-1900 eða á tölvupóstfangi kristjan@krabb.is
Umsóknir berist fyrir 1. júlí næstkomandi til
Krabbameinsfélags íslands, Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík.
LÆKNAblaðið 2009/95 469