Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.06.2009, Qupperneq 34

Læknablaðið - 15.06.2009, Qupperneq 34
FRÆÐIGREINAR Y F I R L I T Tafla IV. Aðferðir til að fyrirbyggja og meðhöndla hæðarveiki. Fyrirbyggjandi meðferö Sjúkdómsmynd Meðferð Bráð háfjallaveiki Flæðaraðlögun, lyf: asetasólamíð, dexametasón Háfjallaheilabjúgur Flæðaraðlögun, lyf: asetasólamíð, dexametasón Fláfjallalungnabjúgur Flæðaraðlögun, forðast ofáreynslu, lyf: nífedipín, sddenafH, tadalafíl salmeteról, bósentan Meðferð sjúkdómseinkenna Sjúkdómsmynd Meðferð Bráð háfjallaveiki Hvíld, lækka sig í hæð, þrýstingspoki, lyf: asetasólamíð, dexametasón, verkjalyf, súrefni Háfjallaheilabjúgur Lækka sig I hæð, þrýstingspoki, lyf: asetasólamíð, dexametasón, verkjalyf, þrýstingspoki, súrefni Fláfjallalungnabjúgur Lækka sig I hæð, þrýstingspoki, lyf: nífedipln, súrefni Lyf og önnur meðferð Lyf má nota ein sér ef einkenni eru væg eða ef aðstæður leyfa ekki lækkun í minni hæð, til dæmis vegna veðurs. Nota má verkjalyf við vægum einkennum, sérstaklega höfuðverk. Tafla III sýnir hvaða lyfjum má beita. Asetasólamíð er best að gefa sem fyrst eftir að einkenni koma fram.33' 34 Dexametasón er kröftugt lyf og hægt að gefa í töfluformi, í vöðva eða í æð.34, 43 Súrefnisgjöf dregur fljótt úr einkennum en er oft ekki í boði, enda súrefnisflöskur þungar að bera.1-2 Sérstakir þrýstipokar sem sjúklingurinn fer í og þrýstingur hækkaður með fót- eða handdrifnum dælum, geta komið sér vel og samsvara hæðarlækkun upp á 1500-2000 m.2'4-6 Svefntruflanir lagast oft með asetasólamíði.4 Þeir sem hafa miklar svefntruflanir þrátt fyrir asetasólamíð geta tekið svefnlyf eins og zolpidem sem ekki bælir öndun.2'3 Meðferð háfjallalungnabjúgs Mjög mikilvægt er að lækka sig í hæð og þrýstingspoki getur komið að góðum notum þegar flutningi niður verður ekki komið við. Súrefnisgjöf er áhrifarík en oft ekki í boði. Hægt er að gefa nífedipín 10-20 mg fyrst en síðan 30-60 mg af langvirku formi á 12 klukkutíma fresti.44 Önnur lyf sem lækka lungnaslagæðaþrýsting, eins og endóþelín hamlar (til dæmis bósentan) og fosfódíesterasahamlar, betur þekktir sem stinningarlyf (til dæmis tadalafíl eða síldenafíl), geta verið hjálpleg en eru ekki eins vel rannsökuð.4'34-40 Þvagræsilyf og morfín lækna ekki háfjallalungnabjúg og þvagræsilyfin geta aukið á vökvaskort í líkamanum.4 Meðferð háfjallaheilabjúgs Lækkun og þrýstingspoki eiga hér við. Súrefni er gefið ef það er fyrir hendi. Einnig er gefið dexametasón í töfluformi (í æð eða vöðva ef aðstæður leyfa), 8 mg sem upphafsskammtur og síðan 4 mg töflur á sex klukkutíma fresti.4 34 Háfjallahósti: Þeir sem dvelja í mikilli hæð í langan tíma fá oft þrálátan hósta.1'2 Hóstinn getur verið vegna berkjuauðreitni, til dæmis vegna astma eða sýkinga en er oft án skýringa, en talið er að hóstaviðbrögð verði næmari í mikilli hæð. Erfitt getur verið að stilla þennan hósta nema lækka sig í hæð og hvíla sig í nokkra daga. Stundum eru reynd kódein-lyf en árangur er misjafn.1'2 Lokaorð Islendingar sækja í vaxandi mæli í afþreyingu á háfjöllum, til dæmis í skíðaferðir, fjallgöngur og fjallaklifur. Þess vegna er nauðsynlegt fyrir íslenska lækna að hafa grunnþekkingu á hæðarveiki. Rétt er að leita ráða hjá læknum með sérþekkingu á hæðarveiki fyrir þá sem hafa áður fengið alvarlega hæðarveiki. Einnig fyrir þá sem hafa fengið hjarta- eða lungnasjúkdóma og hyggja á ferðalög í mikilli hæð. Þakkir fá læknarnir Engilbert Sigurðsson, Magnús Gottfreðsson og Michael Grocott fyrir gagnlegar ábendingar og David R. Murdock fyrir útvegun mynda. Heimildir 1. West JB, Scoene RB, JS M. High altitude medicine and physiology. London: Hodder Amold Publisher; 2007. 2. Basnyat B, Murdoch DR. High-altitude illness. Lancet 2003; 361:1967-74. 3. Hackett PH, Roach RC. High-altitude illness. N Engl J Med 2001;345:107-14. 4. Schoene RB. Illnesses at high altitude. Chest 2008; 134: 402- 16. 5. Clarke C. Acute mountain sickness: medical problems associated with acute and subacute exposure to hypobaric hypoxia. Postgrad Med J 2006; 82:748-53. 6. Nussbaumer-Ochsner Y, Bloch KE. Lessons from high- altitude physiology. Breathe 2007; 4:122-32. 7. Khoo MC, Anholm JD, Ko SW, et al. Dynamics of periodic breathing and arousal during sleep at extreme altitude. Respir Physiol 1996; 103: 33-43. 8. Senn O, Clarenbach CF, Fischler M, et al. Do changes in lung function predict high-altitude pulmonary edema at an early stage? Med Sci Sports Exerc 2006; 38:1565-70. 9. Weil JV, Byrne-Quinn E, Sodal IE, et al. Hypoxic ventilatory drive in normal man. J Clin Invest 1970; 49:1061-72. 10. Fayed N, Modrego PJ, Morales H. Evidence of brain damage after high-altitude climbing by means of magnetic resonance imaging. Am J Med 2006; 119:168 el-6. 11. Scoene RB. Gas exchange in lung and muscle at high altitude. Marcel Dekker, New York 2000. 12. Leon-Velarde F, Maggiorini M, Reeves JT, et al. Consensus statement on chronic and subacute high altitude diseases. High Alt Med Biol 2005; 6:147-57. 13. Lake Louise consensus definition and quantification of altitude illness. Burlington (VT): Queen City Press; 1992. 14. Honigman B, Theis MK, Koziol-McLain J, et al. Acute mountain sickness in a general tourist population at moderate altitudes. Ann Intem Med 1993; 118: 587-92. 15. Hackett PH, Rennie D, Levine HD. The incidence, importance, and prophylaxis of acute mountain sickness. Lancet 1976; 2:1149-55. 16. Maggiorini M, Buhler B, Walter M, Oelz O. Prevalence of acute mountain sickness in the Swiss Alps. BMJ 1990; 301: 853-5. 446 LÆKNAblaðið 2009/95
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.