Læknablaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 41
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR
HEIÐURSVÍSINDAMAÐUR
með upplýsingar um hvaða einstaklingar eiga í
hlut þar sem reglur Persónuverndar kveða skýrt
á um slíkt. Hins vegar geta einstaklingar leitað til
erfðaráðgjafaþjónustu og látið greina hvort þeir
bera í sér þessi stökkbreyttu gen. Þá veitum við
rannsóknarþjónustu og það er algerlega ótengt
okkar vísindavinnu. Slík greiningarþjónusta er
unnin út um allan heim og tilheyrir í rauninni
nútíma sjúkrahúsþjónustu og er sjálfsagður hluti
af forvörnum í nútímakrabbameinslækningum."
Rannsóknir og þjónusta
Vísindaverkefni Rósu Bjarkar og samstarfsfólks
hennar beinast þó ekki eingöngu að leit að
áhættugenum brjóstakrabbameins í ættum með
háa tíðni meinsins. „Við höfum einnig rannsakað
hlutverk gena í framvindu illkynja æxlisvaxtar
í brjósti og þá óháð meðfæddri áhættu. Þetta
eru gen sem verða fyrir áunnum breytingum í
æxlum sem eru að vaxa. Þetta er mjög spennandi
rannsóknarverkefni og meðal annars í tengslum
við það höfum við tekið þátt í umfangsmiklu nor-
rænu samstarfi við uppbyggingu gagnabanka. Þar
nýtum við örflögutækni og markmiðið er að
kortleggja erfðabrenglanir og genatjáningar-
mynstur brjóstaæxla með og án ættarsögu og
með og án stökkbreytinga í BRCAl og BRCA2.
Nú þegar er kominn upp gagnabanki með
nálægt 500 æxlissýnum með tjáningu yfir 20
þúsund gena. Rannsóknarvinna okkar þessa
stundina beinist meðal annars að því að kortleggja
ákveðin mögnunarsvæði til að finna markgen
mögnunarinnar sem síðan getur nýst við þróun
lyfja gegn ákveðnum tegundum æxlisfruma.
Það má gjaman koma því að hér að eitt af okkar
þjónustuverkefnum á rannsóknarstofunni er að
Endurkjör
stjórnar FÍFK
Á aðalfundi Félags fæðingar- og kvensjúk-
dómalækna 7. maí síðastliðinn var stjórnin
endurkjörin, en hana skipa nú:
Amar Hauksson formaður
Ólafur Hákansson gjaldkeri
Sigrún Arnardóttir ritari
Kristín Jónsdóttir
umsjónarmaður heimasíðu
Arnfríður Henrysdóttir fulltrúi unglækna.
stökkbreytigreina ákveðin gen í æxlum sem svara
lyfjagjöf á mjög misjafnan hátt. Það getur sparað
bæði tíma og peninga að greina í viðkomandi
genum ummerki þess hvort ákveðin krabbameins-
lyf virki á æxlið eða ekki. Þannig er vinnan hér í
grunninn tvíþætt, annars vegar vísindavinnan og
hins vegar dagleg rannsóknarstofuþjónusta við
ýmsar deildir sjúkrahússins."
Aðspurð segist Rósa Björk ekki sjá annað en
þetta tvennt muni áfram koma til með að haldast í
hendur. „Það er mjög mikilvægt að á Landspítala
séu stundaðar vísindarannsóknir og þær eru í
rauninni undirstaða þess að háskólasjúkrahús
standi undir nafni. Allir njóta góðs af því, bæði
starfsfólk og sjúklingar. Það gerir góðan spítala að
miklu betri spítala."
Domus
Medica
Hef opnað læknastofu í
Læknahúsinu
Domus Medica,
Egilsgötu 3, 6. hæð.
Almennar - og
æðaskurðlækningar.
Meðferð við æðasliti,
æðahnútum og
slagæðasjúkdómum.
Lilja Björnsdóttir
Æðaskurðlæknir
Domus Medica - Egilsgötu 3
101 Reykjavík
Simi: 563-1060 - Fax:563-1075
lilja@ liljab jor n s. is
liljabjorns.is
LÆKNAblaðið 2009/95 453