Læknablaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 66
■AFMÆLI LÆKNAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
1909-2009
Jón Ólafur
ísberg
sagnfræöingur
jonolafur@althingi.is
Hugmyndir um sérstakt hús fyrir íslenska
lækna kviknuðu snemma hjá félögum lækna,
Læknafélagi Reykjavíkur og síðar Læknafélagi
Islands. Það sem í fyrstu voru óljósar hugmyndir,
og kannski óraunhæfar, þróuðust eftir því
sem árin liðu. Á fimmta áratugnum mótaðist
hugmyndin um sérstakt hús þar sem læknar hefðu
starfsaðstöðu og þar væri eirtnig miðstöð alls
félagsstarfs lækna - Domus Medica. Seint á sjötta
áratugnum mynduðu læknar í Reykjavík með sér
samtök um að byggja Domus Medica og leitað var
eftir lóð hjá borgaryfirvöldum fyrir húsið. Loforð
fékkst fyrir byggingunni árið 1956 við Miklatorg
en síðar var henni valinn staður á horni Egilsgötu
og Snorrabrautar, þrátt fyrir andstöðu stjórnar
Heilsuvemdarstöðvarinnar. Fyrsta skóflustungan
var tekin 16. júní 1963 og byggingin var formlega
tekin í notkun 3. desember 1966.
Domus Medica var teiknað af Gunnari
Hanssyni og Halldóri Jónssyni og var byggingin
tæpir 1000 fermetrar, turninn sem þá var fimm
hæðir en er nú sex hæðir, er 380 fm og það sem
nefnt var félagsheimili, það er kjallari og jarðhæð,
var 580 fm. Þegar húsið var formlega opnað voru
34 læknar og þrír tannlæknar starfandi þar en
fljótlega fjölgaði læknunum. í Domus Medica var
skurðstofa og rannsóknarstofur og fljótlega var
einnig opnuð röntgendeild.
Margir læknar í Reykjavík störfuðu eingöngu
á eigin stofum en aðrir samhliða störfum á
spítölum. Nokkrir voru eingöngu í einu starfi
hjá hinu opinbera en slíkt var fátítt enda voru
launakjör miðað við venjulegan vinnudag fyrir
neðan meðallag. Læknastofur vom um allan bæ
en iðulega tóku nokkrir læknar, til dæmis 4-5,
sig saman og héldu úti læknastofum. Stofurnar
voru yfirleitt í skrifstofuhúsnæði eða jafnvel
íbúðarhúsnæði þannig að aðstaða og aðgengi var
kannski ekki upp á það besta. Hugmyndin um að
sem flestir sjálfstætt starfandi læknar í Reykjavík
tækju sig saman um að byggja sérhannað hús
fyrir starfsemina var þess vegna heillandi. Margir
höfðu þó efasemdir um að slíkt gæti borgað sig
fjárhagslega og ekki síður höfðu læknar áhyggjur
af innbyrðis samkeppni. Fyrir almenning skipti
aðgengið öllu máli og menn höfðu áhyggjur af
því að þeir fengju ekki aðgang að „sínum lækni",
þjónustan yrði ópersónuleg og líklega dýrari.
Læknafélag Islands og Læknafélag Reykja-
víkur vildu í fyrstu ekki eiga beina aðild að
framkvæmdinni og meðal lækna utan Reykjavíkur
var töluverð andstaða. Alls lögðu um 30 læknar
fram stofnfé í Domus Medica, voru þeir kallaðir
Nesstofumenn, en tryggð var lánafyrirgreiðsla frá
Tryggingastofnun ríkisins og Búnaðarbankanum.
Vegna dræmrar þátttöku lækna í Reykjavík og
dugleysis læknasamtaka var tannlæknum boðin
aðstaða í húsinu og þjónusturými á jarðhæð
ásamt samkomusölum var leigt út til fyrirtækja
og félaga. Þegar ljóst varð að byggingin yrði að
veruleika komu læknafélögin meira að verkinu og
skrifstofur þeirra var það fyrsta sem flutt var inn í
húsið, 9. mars árið 1966.
Domus Medica sannaði gildi sitt þegar frá
upphafi sem miðstöð sérfræðilækna í Reykjavík
og miðstöð félagsstarfs lækna í landinu. Síðar
voru byggðar upp aðrar læknastöðvar, til dæmis
í Glæsibæ, þannig að einyrkjabúskapur lækna
lagðist að mestu af. Árið 1995 fluttu læknafélögin
starfsemi sína í nýtt húsnæði og er húsnæðið
nú nær eingöngu nýtt undir lækningastarfsemi,
auk þess sem þar er apótek. í árslok 1996 var
sjálfseignarstofnunin Domus Medica lögð niður en
eignir hennar lagðar til Fræðslustofnunar lækna.
Læknar í Reykjavík sýndu með byggingu Domus
Medica að þeir höfðu framsýni og þor til að takast
á við nauðsynlegar breytingar í starfsumhverfi
lækna til að bæta þjónustu við almenning.
478 LÆKNAblaðið 2009/95